Arion banki ætlar að hætta við tíu milljarða króna arðgreiðslu

Á fram­halds­að­al­fundi Arion banka sem hefur verið boð­aður 14. maí næst­kom­andi er ein­ungis eitt mál á dag­skrá, að hætta við að greiða tíu millj­arða króna í arð til hlut­hafa.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Boðað hefur verið til fram­halds­að­al­fundar í Arion banka þann 14. maí næst­kom­andi þar sem ein­ungis eitt mál er á dag­skrá: að hætta við greiðslu arðs vegna síð­asta árs.

Arion banki hagn­að­ist um 1,1 millj­arð króna í fyrra og arð­semi eigin fjár bank­ans var 0,6 pró­sent. Til stóð að greiða tíu millj­arða króna arð­greiðslu til hlut­hafa vegna síð­asta árs. Það stóð því til að greiða út nífaldan hagnað í arð. Þau áform eru í takti við yfir­lýsta stefnu bank­ans, sem er að öllu leyti í einka­eigu og skráður á hluta­bréfa­mark­að, að greiða út tugi millj­arða króna eigin fé hans til eig­enda hans.

Frá því að upp­haf­leg ákvörðun um þá end­ur­greiðslu var tekin hefur staðan í efna­hags­líf­inu gjör­breyst.

[adspot]Greint var frá því að sveiflu­jöfn­un­ar­auk­i, sem á að auð­velda banka­­kerf­inu að styðja við heim­il­i og fyr­ir­tæki með því að skapa svig­­rúm til nýrra útlána sem nemur að öðru óbreyttu allt að 350 millj­­örðum króna, hefði verið afnumin 18. mars síð­ast­lið­inn.

Dag­inn áður, 17. mars, fór fram aðal­fundur Arion banka. Þar var sam­þykkt að fresta arð­greiðsl­unni til hlut­hafa um tvo mán­uði, eða fram í miðjan maí. Auk þess var heim­ild stjórnar til að kaupa allt að tíu pró­­­sent af hlutafé bank­ans end­­­ur­nýj­uð. Miðað við mark­aðsvirði Arion banka í dag myndi það þýða að í kringum ell­efu millj­­arða króna greiðslu til eig­enda bank­ans.

Þrýstingur á að sleppa arðgreiðslu

Þegar hafði verið gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir ætl­aðar arð­greiðslur úr rík­is­bönk­unum tveimur, Íslands­banka og Lands­bank­anum. Þann 20. mars, var sent bréf til Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hald rík­is­ins í bönk­unum tveimur, fyrir hönd Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þar var farið fram á að hún myndi horfa fram hjá kröfum um ávöxtun og arð­greiðslur á árinu 2020 og að þeim skila­boðum yrði komið áfram til stjórna fjár­mála­fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins.

[links]Bjarni var að segja rík­is­bönk­unum tveimur að í ljósi þeirra aðstæðna sem komnar eru upp vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins þá ættu þeir ekki að greiða út arð.

Arion banki hafði hins vegar ekki end­ur­skoðað sín áform um að greiða út arð í maí. Í til­kynn­ingu sem bank­inn sendi til Kaup­hallar Íslands 27. mars síð­ast­lið­inn, vegna aðgerða sem hann hefur gripið til vegna COVID-19, kom þvert á móti fram að eig­in­fjár- og lausa­fjár­staða bank­ans væru mjög sterk án þess að til­lit sé tekið til „fyr­ir­sjá­an­legrar arð­greiðslu að fjár­hæð 10 millj­arða króna“.

Þar sagði enn fremur að auk ákvörð­unar um að fresta arð­greiðslu í tvo mán­uði myndi bank­inn „ekki fara í frek­ari kaup á eigin bréfum fyrr en óvissa vegna heims­far­ald­urs­ins hefur minnkað.“ 

Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri sagði í við­tali við Frétta­blaðið í síð­ustu viku að Seðla­bank­inn yrði „mjög brúna­þung­ur“ ef sú staða kæmi upp síðar á árinu að Arion banki myndi greiða hlut­höfum sínum út arð. „Það væri algjör­lega ótækt af bank­anum að íhuga slíkar arð­greiðslur við þessar aðstæð­ur, þar sem verið er að veita bönk­unum til­slak­an­ir, og hið sama gildir um kaup á eigin bréf­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár