Allir bankar í Evrópu hvattir til að greiða ekki arð né kaupa eigin bréf

Evrópska banka­eft­ir­lits­stofn­unin vill að allir bankar innan EES-svæð­is­ins sleppi því að greiða arð og að kaupa eigin bréf. Það aukna svig­rúm sem bankar fá til að bregð­ast við COVID-19 eigi að fjár­magna fyr­ir­tæki og heim­ili, ekki greið­ast til hlut­hafa.

Höfuðstöðvar EBA í París.
Höf­uð­stöðvar EBA í París. Mynd: Skjáskot

Evrópska banka­eft­ir­lits­stofn­unin (EBA) hvetur alla banka til að halda að sér höndum varð­andi arð­greiðslur og kaup á eigin hluta­bréfum ef slíkar ráð­staf­anir gætu leitt til dreif­ingar fjár­magns út fyrir banka­kerfið. Sú hvatn­ing er send út til að standa vörð um fjár­hags­styrk banka­kerf­is­ins.

[links]Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu EBA um arð­greiðslur, kaup á eigin hluta­bréfum og breyti­legar þókn­anir sem birt var á íslensku á vef Seðla­banka Íslands í dag.

Þar er ítrekað það sem sagt var í fyrri yfir­lýs­ingu EBA frá 12. mars síð­ast­liðnum, þar sem bankar voru ein­dregið hvattir til að „fylgja var­færn­is­legri stefnu um arð­greiðslur og aðrar greiðslur, þ.m.t. breyti­legar þókn­anir og nota fjár­magn fremur til að tryggja sam­fellt fjár­magns­flæði til hag­kerf­is­ins“ á meðan að COVID-19 far­ald­ur­inn stendur yfir.

EBA hefur einnig lagt áherslu á að eig­in­fjár­stuðn­ingur sem stafar af aðgerðum yfir­valda vegna far­ald­urs­ins í hverjum landi fyrir sig sem er aðili að Evrópska efna­hags­svæð­inu (EES), sem stofnun setur reglur fyrir, skuli nýttur til að „fjár­magna fyr­ir­tæki og heim­ili en ekki til að hækka arð­greiðslur eða kaupa eigin hluta­bréf í þágu hlut­hafa“.

Mark­miðið með því að úthluta fjár­magni innan banka­sam­stæðu eigi að vera að „styðja við svæð­is­bundin hag­kerfi sem og evr­ópska hag­kerfið almennt, auk þess að tryggja eðli­lega starf­semi innri mark­að­ar­ins , sen er bráð­nauð­syn­legt við núver­andi aðstæður“.

Seðlabankinn getur bannað arðgreiðslur

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um arð­greiðslur og mögu­leg kaup á eigin bréfum banka í frétta­skýr­ingu sem birt­ist á laug­ar­dag. Þar kom fram að enn sem komið er þá hefur Seðla­banki Íslands ein­ungis hvatt við­skipta­bank­anna til að „sýna þá sam­fé­lags­legu ábyrgð á þessum sér­stöku tímum að nýta ekki það svig­rúm sem aflétt­ing sveiflu­jöfn­un­ar­aukans skapar til þess að greiða út arð.“

[adspot]Telji Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands þó, byggt á gögnum eða upp­lýs­ingum sem það styðst við, að líkur séu á að banki upp­fylli ekki ákvæði laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki, svo sem um eig­in­fjár- eða lausa­fjár­hlut­fall, getur það gripið til vald­heim­ilda sam­kvæmt lögum. „Á meðal þeirra vald­heim­ilda er bann við arð- og vaxta­greiðslum til hlut­hafa og fjár­festa og tak­mörkun á kaupaukum við hlut­fall af hreinum hagn­aði.“

Þá þarf fjár­mála­fyr­ir­tæki, eins og banki, alltaf að fá fyrir fram sam­þykki Fjár­mála­eft­ir­lits­ins Seðla­bank­ans fyrir end­ur­kaupum á eigin hlutum og lækkun hluta­fjár og hefur Fjár­mála­eft­ir­litið tals­vert svig­rúm við mat á veit­ingu slíks sam­þykkis.

Á skömmum tíma hefur bindi­skylda verið lækkun niður í núll og sveiflu­jöfn­un­ar­auki sem lagð­ist á eigið fé bank­anna afnumin. Aflétt­ing kröfu um ­sveiflu­jöfn­un­ar­auka á að auð­velda banka­kerf­inu að styðja við heim­il­i og fyr­ir­tæki með því að skapa svig­rúm til nýrra útlána sem nemur að öðru óbreyttu allt að 350 millj­örðum króna, eða um 12,5 pró­sent af núver­andi útlána­safni.

Það er þó ekk­ert sem segir til um að það svig­rúm sem skap­ist verði ekki nýtt til ann­arra verka, eins og að greið­ast út til hlut­hafa.

Arion banki ætlar enn að greiða arð

Íslenska ríkið á tvo banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann. Þann 20. mars síð­ast­lið­inn var sent bréf til Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hald rík­is­ins í Íslands­banka og Lands­bank­anum, fyrir hönd Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þar var farið fram á að hún myndi horfa fram hjá kröfum um ávöxtun og arð­greiðslur á árinu 2020 og að þeim skila­boðum yrði komið áfram til stjórna fjár­mála­fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins.

[adspot]Bjarni var að segja rík­is­bönk­unum tveimur að í ljósi þeirra aðstæðna sem komnar eru upp vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins þá ættu þeir ekki að greiða út arð.

Enn eru hins vegar uppi áform um arð­greiðslur og mögu­leg end­ur­kaup á eigin bréfum hjá Arion banka, sem er í einka­eigu. Á aðal­fundi bank­ans 17. mars síð­ast­lið­inn var sam­þykkt að fresta tíu millj­arða króna arð­greiðslu til hlut­hafa um tvo mán­uði, eða fram í miðjan maí. Auk þess var heim­ild stjórnar til að kaupa allt að tíu pró­sent af hlutafé bank­ans end­ur­nýj­uð.

Arion banki hefur enn sem komið er ekki end­ur­skoðað sín áform um að greiða út arð í maí. Í til­kynn­ingu sem bank­inn sendi til Kaup­hallar Íslands 27. mars síð­ast­lið­inn, vegna aðgerða sem hann hefur gripið til vegna COVID-19, kemur þvert á móti fram að eig­in­fjár- og lausa­fjár­staða bank­ans sé mjög sterk án þess að til­lit sé tekið til „fyr­ir­sjá­an­legrar arð­greiðslu að fjár­hæð 10 millj­arða króna“. Þar sagði enn fremur að auk ákvörð­unar um að fresta arð­greiðslu í tvo mán­uði myndi bank­inn „ekki fara í frek­ari kaup á eigin bréfum fyrr en óvissa vegna heims­far­ald­urs­ins hefur minnkað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár