Hlutfall fyrstu íbúðakaupa hefur aukist

Árið 2008 voru fyrstu kaup­endur innan við 10% af við­skiptum með fast­eignir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í fyrra var hlut­fallið 23%. Hag­fræð­ingur spyr hvort fyr­ir­komu­lagið á íbúða­mark­aði sé að auka aðstöðumun milli hópa.

Hlutfall þeirra sem eru að kaupa sér íbúðir í fyrsta skipti hefur auk­ist tals­vert á und­an­förnum árum, sam­kvæmt tölum sem Þjóðskrá Íslands tekur saman. Tölurnar hafa verið teknar saman frá árinu 2008 og á þeim tíma voru fyrstu kaup yfir­leitt lít­ill hluti við­skipta. Það ár voru innan við 10% fast­eigna­við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hjá fyrstu kaup­endum. Árið 2016 var hlut­fall fyrstu kaup­enda hins vegar 23%.

Þetta kemur fram í pistli hag­fræð­ings­ins Ara Skúla­sonar hjá Lands­bank­anum. Sömu sögu er að segja á öðrum lands­svæðum og þró­unin er alls staðar sú sama. „Fyrstu kaupum hefur þannig ekki ein­ungis fjölgað, heldur hefur þeim fjölgað hlut­falls­lega mikið,“ segir Ari meðal ann­ars.

„Það er því ljóst að ungt fólk hefur verið að eign­ast sínar fyrstu fast­eignir á síð­ustu árum og virkni þess á mark­aðnum hefur auk­ist tölu­vert með árunum. Því miður eru tölur um fyrstu kaup ekki til nema frá árinu 2008 og því ekki hægt að gera sam­an­burð við önnur tíma­bil. Þessi nið­ur­staða stang­ast nokkuð á við þá skoðun að ungt fólk geti ekki eign­ast fast­eignir og vekur líka upp margar spurn­ingar,“ skrifar Ari.

Það megi til dæmis spyrja hvort ungt fólk geti almennt keypt íbúðir hjálp­ar­laust eða hvort það fái stuðn­ing frá for­eldrum eða öðrum ætt­ingum. Þá megi í fram­haldi af því spyrja hvort það sé fyrst og fremst ungt fólk úr betur stæðum fjöl­skyldum sem á mögu­leika á að kaupa hús­næði. „Spurn­ing­arnar eru fleiri en margar þeirra snú­ast um hvort núver­andi fyr­ir­komu­lag á íbúða­lána­mark­aði sé að auka aðstöðumun milli hópa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár