Ákært fyrir áform

Fyrir nokkrum dögum hófust í Danmörku rétt­ar­höld yfir fimm mönnum. Þótt rétt­ar­höld séu dag­legt brauð eru þessi óvenju­leg því afbrotið sem ákært er fyrir hefur ekki verið framið.

Mynd tengd ráninu sem var framið í Dansk Værdihåndtering árið 2008.
Mynd tengd rán­inu sem var framið í Dansk Vær­di­håndter­ing árið 2008. Mynd: Finnska lögreglan

Rétt­ar­höldin sem hófust sl. mið­viku­dag (24.2.) eiga sér langan aðdrag­anda. Fimm menn, fjórir þeirra sænskir rík­is­borg­arar og sá fimmti franskur, eru ákærðir fyrir að und­ir­búa rán hjá fyr­ir­tæk­inu Loomis í Taastrup, skammt fyrir vestan Kaup­manna­höfn. Loomis er fyr­ir­tæki sem geymir, og flytur, seðla og mynt fyrir banka og versl­anir. Loomis starfar í mörgum löndum og er með rúm­lega átta þús­und starfs­menn.

Nöfn fjög­urra manna sem nú eru fyrir rétt­inum hafa ekki verið gefin upp en fimmti mað­ur­inn er Tayeb Si M´Rabet. Nafnið kemur almenn­ingi kannski ekki kunn­ug­lega fyrir sjónir en danska lög­reglan og dóm­stólar þar í landi þekkja þennan fimm­tuga Frakka hins­vegar mæta­vel. Hann hefur hlotið marga dóma fyrir rán og grip­deildir víða í Danmörku. Hann var aðal­mað­ur­inn og skipu­leggj­andi eins stærsta ráns í sögu Dan­merkur og rétt er að rifja upp áður en lengra er haldið.

Stóra ránið 2008

Snemma morg­uns 10. ágúst árið 2008 var stórri trakt­ors­gröfu ekið á vegg seðla­geymslu og flutn­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Dansk Vær­di­håndter­ing í Brøndby, skammt vestan við Kaup­manna­höfn. Trakt­ors­gröf­unni hafði verið rænt frá verk­taka­fyr­ir­tæki í nágrenn­inu.

Nokkru áður hafði lög­reglan fengið veður af að „eitt­hvað stæði til“ eins og einn yfir­manna lög­regl­unnar komst að orði. Vart hafði orðið manna­ferða í nágrenni Dansk Vær­di­håndter­ing og ýmis­legt fleira hafði vakið grun­semdir lög­reglu.

[adspot]Komið var fyrir mynda­vélum á þaki fyr­ir­tæk­is­ins og á nokkrum stöðum í nágrenn­inu. Mynda­vél­arnar voru tengdar við skjái á lög­reglu­stöð­inni í Albertslund. Þegar lög­reglu­maður á vakt þar sá á skjánum hvað var að ger­ast, trúði hann vart sínum eigin augum. Með trakt­ors­gröf­unni tókst ræn­ingj­unum að brjóta leið gegnum vegg á aðal­bygg­ingu Dansk Vær­di­håndter­ing og kom­ast inn í seðla­geymsl­urnar. Fjórir vopn­aðir menn í sam­fest­ingum, með lamb­hús­hettur og stórar töskur (eins­konar íþrótta­töskur) stopp­uðu í sjö mín­útur inni í seðla­geymsl­unum og létu hendur standa fram úr ermum. Höfðu á brott með sér um það bil 62 millj­ónir danskra króna (rúmar 1200 millj­ónir íslenskar).

Vel undirbúnir

Þótt menn­irnir sem athöfn­uðu sig inni í seðla­geymslum Dansk Vær­di­håndter­ing væru aðeins fjórir var ljóst að þeir voru ekki einir að verki. Og ránið var vel und­ir­búið. Ræn­ingj­arnir vissu nákvæm­lega hvar seðla­geymsl­urnar voru og hver væri auð­veldasta leiðin (ef hægt er að orða það svo) þangað inn. En eitt er að brjót­ast inn og krækja í seðl­ana og annað að kom­ast undan. Ræn­ingj­arnir höfðu ekki gleymt þeim þætti í skipu­lagn­ing­unni. Þeir höfðu stolið 11 stórum bílum, vöru­bílum, stræt­is­vagni og sorp­bílum. Þessum bílum höfðu þeir lagt þversum á nokkrum götum í nágrenni næstu lög­reglu­stöðvar, og einum bílnum hafði verið lagt þvert fyrir útkeyrsl­una á bíla­geymslu lög­regl­unnar. Til að bæta um betur kveiktu þeir í bíl­unum. Enn­fremur höfðu þeir stráð nagla­lykkjum (caltrop) á nokkrar umferð­ar­götur til að tefja enn frekar fyrir lög­regl­unni.

Und­ir­bún­ingur ræn­ingj­anna skil­aði sér. Þegar lög­reglan, seint og um síðir, kom á stað­inn voru ræn­ingj­arnir á bak og burt. Horfnir eins og jörðin hefði gleypt þá. Þrátt fyrir mikla eft­ir­grennslan fann lög­reglan hvorki tangur né tetur. Ekki ræn­ingj­ana, ekki pen­ing­ana, ekki bíl­ana sem höfðu sést á eft­ir­lits­mynda­vél­unum. Ekkert. Vitað var að ræn­ingj­arnir höfðu á flótt­anum not­ast við þrjá stolna Audi bíla, þeir fund­ust ekki þrátt fyrir mikla leit.

Lögreglan kemst á sporið

Áfram hélt leit lög­regl­unnar. Og loks gerð­ist eitt­hvað, lög­reglan fékk ábend­ingu. Hún leiddi til þess að Audi bíl­arnir þrír fund­ust. Þeir voru lok­aðir inni í gámum í mal­ar­námu í Seng­eløse, smábæ vestan við Kaup­manna­höfn. Lög­reglan fylgd­ist með gámunum og eftir nokkra daga bar biðin árangur. Lög­regl­unni tókst þannig að hafa hendur í hári ræn­ingj­anna, en það sama verður ekki sagt um pen­ing­ana. Það eina sem enn hefur fund­ist af millj­ón­unum 62 sem ræn­ingj­arnir höfðu á brott með sér voru 4 millj­ónir, sem for­sprakk­inn hafði falið undir svöl­unum við hús fyrr­ver­andi kær­ustu sinnar í Óðins­véum á Fjóni. Þessi for­sprakki var Tayeb Si M´Rabet, einn þeirra sem nú hefur verið ákærður fyrir að und­ir­búa rán.

14 menn dæmdir fyrir ránið

15. sept­em­ber 2010 féll í und­ir­rétti dómur yfir 14 mönnum sem staðið höfðu að rán­inu í Dansk Vær­di­håndter­ing. Samtals hlutu menn­irnir yfir 100 ára fang­els­is­dóm, þyngsta dóm­inn hlaut for­sprakki hóps­ins, Tayeb Si M´Rabet.

Hann var dæmdur í 10 ára fang­elsi, og brott­vísun úr landi að afplánun lok­inni. Sex úr hópnum áfrýj­uðu til Eystri Lands­réttar (í Danmörku eru þrjú dóm­stig) sem stað­festi dóm und­ir­réttar í jan­úar 2012. Fjórir úr hópnum voru Danir, hinum 10 var vísað úr landi þegar afplánun lauk.

Stórt rán í undirbúningi

Haustið 2019 komst lög­reglan á snoðir um að hópur manna væri að und­ir­búa rán hjá seðla­geymslu og pen­inga­flutn­inga­fyr­ir­tæk­inu Loomis í Taastrup. Hjá Loomis er meðal ann­ars geymdur seðlaforði Danska Seðla­bank­ans og um það bil 70 pró­sent allra seðla í land­inu er að finna í geymslum Loomis.

Eftir að lög­reglan fékk ábend­ing­una voru settar upp nokkrar mynda­vélar í nágrenni Loomis og stað­settar þannig að þær sæj­ust ekki auð­veld­lega. 12. nóv­em­ber 2019 sást á mynda­vél hvar fjórir menn stigu út úr bíl við hliðslá við Loomis. Þeir lyftu upp slánni og óku inn­fyrir. Lögregla sá skrá­setn­ing­ar­núm­erið á bílnum, í ljós kom að sænskur maður hafði leigt bíl­inn á Kastrup flug­velli. Sænska lög­reglan bar kennsl á menn­ina sem sést höfðu við hliðs­lána. Slóð lög­reglu lá að leigu­í­búð í Herlev við Kaup­manna­höfn. Ákveðið var að gera þar hús­leit en þegar lög­reglan kom inn í íbúð­ina, sem talið var að væri mann­laus, kom í ljós að kona var þar inn­an­dyra. Þá beið lög­regla ekki boð­anna en hand­tók Svíana fjóra sem höfðu haldið til í íbúð­inni og sést höfðu á upp­tökum við áður­nefnda hliðslá. Í íbúð­inni fannst ýmis bún­aður, lamb­hús­hettur, gríma með hár­kollu, tæki sem ruglar stað­setn­ing­ar­búnað og fleira.

Mætti Tayeb Si M‘Rabet á götu í Kaupmannahöfn

Þegar þarna var komið sögu vissi lög­reglan að sá sem stjórn­aði und­ir­bún­ingi hins fyr­ir­hug­aða ráns var „gam­all kunn­ingi“ ef svo mætti segja. Nefni­lega Tayeb Si M´Rabet, mað­ur­inn sem hafði skipu­lagt og stjórnað rán­inu hjá Dansk Vær­di­håndter­ing árið 2008. Hann var nú laus eftir afplánun en lög­regla var viss um að hann væri í Danmörku, þótt honum hafi verið vísað úr landi eftir að hann losn­aði úr fang­elsi. Lýst var eftir Tayeb Si M´Rabet 26. nóv­em­ber 2019 en tveimur dögum síðar mætti lög­reglan honum á reið­hjóli í Kaup­manna­höfn. Hann var hand­tek­inn á staðnum en þegar hann sá lög­reglu­þjón­ana kastaði hann frá sér sím­anum, sem hann hélt á. Lög­reglan fann sím­ann og þar voru meðal ann­ars kort af Loomis og nágrenni. Sums staðar höfðu verið teiknuð strik þvert yfir götur, þar taldi lög­regla að ætl­unin hafi verið að koma fyrir stórum bílum til að loka götum. Margs konar aðrar upp­lýs­ingar fann lög­reglan á síma Tayeb Si M´Rabet. Hann neit­aði í fyrstu að eiga sím­ann, hann hefði verið beð­inn fyrir hann og átt að koma honum til ann­ars manns.

Lög­reglan gaf lítið fyrir þessar skýr­ingar og Tayeb Si M´Rabet hefur setið í gæslu­varð­haldi síðan hann var hand­tek­inn.

Líkist mjög ráninu hjá Dansk Værdihåndtering

Rétt­ar­höldin yfir Tayeb Si M´Rabet og sam­verka­mönnum hans hófust eins og áður sagði fyrir nokkrum dögum. Lögregla segir und­ir­bún­ing ráns­ins, miðað við gögn sem hún hefur undir höndum, minna mjög á ránið hjá Dansk Vær­di­håndter­ing árið 2008. Enda skipu­leggj­and­inn sá sami.

Gert er ráð fyrir að rétt­ar­höldin standi í tvær vikur og dómur verði kveð­inn upp 26. mars næst­kom­andi.

Hér í lokin má geta þess að 1. apríl 2008 var framið rán hjá Loomis fyr­ir­tæk­inu. Þá komust ræn­ingjar undan með um það bil 60 millj­ónir danskra króna. Aldrei hefur fund­ist tangur né tetur af þeim pen­ingum. Sex Svíar voru síðar hand­teknir en lög­reglu tókst ekki að færa fram næg sönn­un­ar­gögn og sex­menn­ing­arnir fengu greiddar bætur. Yfir­maður i dönsku lög­regl­unni sagði í við­tali að „Svíarnir hefðu örugg­lega skemmt sér vel yfir því að fá greitt fyrir að fremja rán“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár