Norðurlöndin dæla peningum til að berjast gegn kórónukreppunni

Rík­is­stjórnir Sví­þjóðar, Dan­merkur og Noregs hafa til­kynnt miklar útgjalda­aukn­ingar til að berj­ast gegn efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veirunnar á síð­ustu vikum.

Magdalena Andersson, fjármálaráðherra Svíþjóðar, og Per Bolund, viðskipta- og húsnæðismálaráðherra, á kynningu frumvarpsins í morgun.
Magda­lena And­ers­son, fjár­mála­ráð­herra Sví­þjóðar, og Per Bolund, við­skipta- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, á kynn­ingu frum­varps­ins í morgun. Mynd: EPA

Noregur, Svíþjóð og Danmörk hafa kynnt stór­huga áætl­anir til þess að bregð­ast við efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veirunnar í vetur og á næsta ári. Fjár­mála­ráð­herra Sví­þjóðar segir að pen­ingar séu engin hindrun fyrir hið opin­bera, á meðan starfs­bróðir hennar í Danmörku talar um „stríðskistu“ og Norðmenn beina sjónum sínum að ferða­þjón­ust­unni.

Peningar engin hindrun

Fjár­mála­ráð­herra Sví­þjóðar, Magda­lena And­ers­son, lagði í dag fram fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar á sænska þing­inu. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir inn­spýt­ingu að and­virði 200 millj­arða sænskra króna, eða um 3 þús­und millj­arða íslenskra króna, fyrir næstu tvö árin.

í við­tali við sænska rík­is­út­varpið SVT er haft eftir Anderson að far­ald­ur­inn krefj­ist for­dæma­lausra aðgerða til að sporna gegn enn frek­ari hækkun atvinnu­leysis og fá hjól sænska hag­kerf­is­ins til að snú­ast aftur. „Peningar munu ekki standa í vegi þess,” segir hún.

Fjár­lögin gera ráð fyrir að um 105 millj­arðar sænskra króna verði not­aðar í efna­hags­að­gerðir gegn kór­ónu­krepp­unni á næsta ári, en það jafn­gildir tveimur pró­sentum af lands­fram­leiðslu lands­ins í fyrra. Sömu­leiðis er gert ráð fyrir 85 millj­örðum sænskra króna fyrir árið 2022.

Fjár­lögin inni­halda meðal ann­ars lækkun skatta á unga starfs­menn og flýt­ingu á fjár­fest­ingum í umhverf­is­vænum verk­efnum, sem rík­is­stjórnin reiknar með að geti skapað allt að 75 þús­und störf í land­inu.

Vegna auk­inna útgjalda rík­is­sjóðs er búist við halla­rekstri á næstu árum, þannig að hlut­fall opin­berra skulda af lands­fram­leiðslu muni hækka úr 35 pró­sentum í 42 pró­sent.

Innspýting fyrir ferðaþjónustuna

Á sama tíma og fjár­laga­frum­varp sænsku rík­is­stjórn­ar­innar var lagt fram í morgun til­kynnti iðn­að­ar­ráð­herra Noregs, Iselin Nybø, ásamt sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herr­anum Linda Hell­eland, sér­stakan krísu­pakka fyrir ferða­þjón­ust­una þar í landi. Pakkinn inni­heldur lækkun virð­is­auka­skatts, leng­ingu brú­ara­lána og styrki fyrir föstum kostn­aði, eins og greint er frá á vef Túrista.

Ráð­herr­arnir bentu á að þessi krísu­pakki kæmi ekki í stað­inn fyrir áður til­kynntar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar, sem eru að and­virði 124 millj­arða norskra króna, eða um 3,5 pró­sent af lands­fram­leiðslu lands­ins.

Hins vegar er nýi pakk­inn, sem mun gefa ferða­manna­iðn­að­inum rúman millj­arð norskra króna, eða 15 millj­arða íslenskra króna, lagður fram til að kom­ast til móts við versn­andi skil­yrði í atvinnu­grein­inni. Í því sam­hengi nefndu ráð­herr­arnir sér­stak­lega fækkun ferða­manna í kjöl­far fjölg­unar smita í Evrópu í ágúst­mán­uði.

Fjárlög norsku rík­is­stjórn­ar­innar verða svo kynnt þann 7. októ­ber, en sam­kvæmt norska miðl­inum E24 ríkir mikil óvissa um hvers eðlis hann verður. Fjár­mála­ráð­herra Noregs, Jan Tore Sanner, sagði það vera sér­stak­lega erfitt að gera fjár­lög á kreppu­tímum. Samkvæmt honum verður þó lögð áhersla á að við­halda atvinnustig­inu í land­inu.

Opin stríðskista í Danmörku

Með fyr­ir­heitum sínum um aukin útgjöld hins opin­bera til að draga úr áhrifum kór­ónu­krepp­unnar feta Norðmenn og Svíar í fót­spor Dana, sem kynntu fjár­laga­frum­varp sitt um síð­ustu mán­að­ar­mót.

Frum­varpið inni­heldur neyð­ar­sjóð, sem rík­is­stjórnin kallar „stríðskist­una“, að and­virði 9,2 millj­arða danskra króna, en það jafn­gildir um hálfu pró­senti af árlegri lands­fram­leiðslu lands­ins.

Stríðskistan svo­kall­aða á að fara í efna­hags­að­gerðir til að sporna gegn kór­ónu­krepp­unni í vetur, en ekki liggja fyrir frek­ari útfærslur á það hvert pen­ing­arnir muni fara. Nicolai Wammen, fjár­mála­ráð­herra Dan­merkur útskýrir hins vegar að rík­is­stjórnin vilji nota pen­ing­ana í heil­brigð­is­kerfið og atvinnu­lífið, þar sem áherslan er sett á að draga úr atvinnu­leysi.

„Þetta eru mjög miklir pen­ingar sem eru klárir til að hjálpa dönskum fyr­ir­tækjum. Og sem renna til heil­brigð­is­kerf­is­ins okkar, sem stendur frammi fyrir miklum áskor­unum. Það gæti til dæmis komið bólu­efni sem þyrfti að eða pen­ingum í. Við vitum ekki hvaða áskorun við stöndum frammi fyrir en við höfum pen­ing­ana til­búna,” segir Wammen.

Danska rík­is­stjórnin reiknar með fjár­laga­halla sem nemur 0,4 pró­sentum af lands­fram­leiðslu, sem er hámark þess sem gera má ráð fyrir sam­kvæmt fjár­mála­stefnu lands­ins. Með því hefur rík­is­stjórnin nið­ur­fært spá sína um rekstur fjár­mála um 0,8 pró­sentu­stig frá síð­ustu spá sinni.

Búist er við 4,5 pró­senta sam­drætti í lands­fram­leiðslu Dan­merkur í ár, miðað við síð­asta ár. Atvinnu­leysi í land­inu stóð í 4,8 pró­sentum í júlí og hafði þá lækkað frá yfir 5 pró­sentum yfir vor­mán­uð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár