Leifsstöð og Bláa lónið halda Suðurnesjum uppi

Hlutfall alþjóð­legra ferða­manna er almennt hærra á Íslandi, sam­an­borðið við hin Norð­ur­löndin. Eldgosi og efna­hags­hruni að mörgu leyti að þakka. Leifs­stöð og Bláa lónið ýta Suð­ur­nesjum í næstefsta sæti yfir eft­ir­sótt sveit­ar­fé­lög á Íslandi.

Ferðamannaiðnaðurinn á Íslandi getur meðal annars þakkað efnahagshruni og eldgosi í Eyjafjallajökli fyrir að hafa aukið flæði túrista hingað til lands.
Ferða­manna­iðn­að­ur­inn á Íslandi getur meðal ann­ars þakkað efna­hags­hruni og eld­gosi í Eyja­fjalla­jökli fyrir að hafa aukið flæði túrista hingað til lands.

Ferða­manna­iðn­að­ur­inn á Íslandi sker sig mikið úr sam­an­borið við hin Norð­ur­löndin. Hlutfall erlendra ferða­manna er almennt hæst á Íslandi þó að ferða­mönnum hafi líka fjölgað víðar, eins og í Svíþjóð. Flestir ferða­menn fara þó til Dan­merkur.

Fram kemur í yfir­grips­mik­illi skýrslu um stöðu Norð­ur­land­anna sem birt var í gær, The State of the Nordic Region 2016, að hvergi ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum hafi fjöldi ferða­manna vaxið jafn mikið und­an­farin ár og á Íslandi. Þar er tekið fram að hlut­falls­leg fjölgun hafi verið mest á Suð­ur­nesjum, 176 pró­sent, en það er að stórum hluta vegna stað­setn­ingu alþjóða­flug­vall­ar­ins í Keflavík og Bláa lóns­ins.

Suðurnesin næstefst á íslenska listanum

Höfð­borg­ar­svæði hinna Norð­ur­land­anna; Dan­merkur, Finn­lands, Noregs og Sví­þjóðar raða sér í efstu sætin þegar frammi­staða land­anna er metin. Einungis tvö íslensk svæði kom­ast inn á lista efstu tutt­ugu sæt­anna, höfðu­borg­ar­svæðið vermir tíunda sætið og Suð­ur­nesin eru í því átj­ánda.

Bæði svæðin telj­ast hafa nokkuð góða mögu­leika varð­andi íbúa­þróun og eru yfir með­al­lagi þegar kemur að fram­tíð­ar­mögu­leikum efna­hags og vinnu­mark­aðar. Önnur svæði á Íslandi eru í 26. til 41. sæti en sam­an­borið við úttekt á árunum 2010 til 2015 eru Suð­ur­nesin eina svæðið sem hefur bætt sína stöðu á meðan fram­tíð­ar­sýn hinna hefur hrakað. Hlutfall þeirra sem búa í sveit er lægst á Íslandi af öllum Norð­ur­lönd­unum, sex pró­sent. Það er tutt­ugu pró­sent í Noregi, þar sem hlut­fallið er hæst.

Eldgos og efnahagshrun gerðu góða hluti

Þá segir einnig í skýrsl­unni að þrátt fyrir þær áskor­anir sem ferða­þjón­ustan á Íslandi stóð frammi fyrir vegna efna­hags­hruns­ins árið 2008 og goss­ins í Eyja­fjalla­jökli árið 2010, hefur ferða­manna­iðn­að­ur­inn vaxið gríð­ar­lega hér á landi. Svo virð­ist sem það hafi náðst að snúa sér ferða­þjón­ust­unni í hag.

Reykja­vík­ur­höfn var helsti við­komu­staður skemmti­ferða­skipa á Íslandi á tíma­bil­inu 2011 til 2014, en þangað komu 91 skip með 105 þús­und far­þega. 73 þús­und far­þegar komu til Akur­eyrar og 40 þús­und til Ísa­fjarðar. Alls staðar varð fjölgun á tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár