Reykjavík minnst eftirsótta höfuðborg Norðurlandanna

Reykja­vík er minnst eft­ir­sótta höf­uð­borgin á Norð­ur­löndum, sam­kvæmt nýrri sam­nor­rænni skýrslu. Suð­ur­nesin bæta stöðu sína á meðan að fram­tíð­ar­sýn ann­arra svæða á Íslandi hrakar. Horft er á þróun og fram­tíð­ar­horfur ein­stakra svæða.

Skólavörðustígur í miðborg Reykjavíkur
Skóla­vörðu­stígur í mið­borg Reykja­víkur Mynd: Birgir Þór Harðarson

Osló í Noregi, Kaup­manna­höfn í Danmörku, Stokk­hólmur í Svíþjóð og Helsinki í Finn­landi eru eft­ir­sótt­ustu staðir Norð­ur­land­anna. Reykja­vík ratar ekki í efstu sætin og endar í því tíunda. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um stöðu Norð­ur­land­anna, The State of the Nordic Region 2016, sem birt var í Kaup­manna­höfn í morgun. Norð­ur­löndin eru skil­greind sem Ísland, Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk, ásamt Færeyjar, Grænland og Álandseyjar.

Svæðin í eftstu sæt­unum búa yfir mik­illi sam­keppn­is­hæfni og laða að sér bæði fjár­magn og mannauð. Horft er á þróun og fram­tíð­ar­horfur ein­stakra svæða eru háðar efna­hags­horfum, horfum á vinnu­mark­aði og íbúa­þróun. Notast er við nýjan flokk­un­ar­stuðul Nor­dregio til að greina og flokka ein­staka þætti.

Höfuðborgarsvæðið best á Íslandi

Höf­uð­borg­ar­svæði hinna Norð­ur­land­anna; Dan­merkur, Finn­lands, Noregs og Sví­þjóðar raða sér í efstu sætin þegar frammi­staða land­anna er metin. Einungis tvö íslensk svæði kom­ast inn á lista efstu tutt­ugu sæt­anna, höf­uð­borg­ar­svæðið vermir tíunda sætið og Suð­ur­nesin eru í því átj­ánda.

Bæði svæðin telj­ast hafa nokkuð góða mögu­leika varð­andi íbúa­þróun og eru yfir með­al­lagi þegar kemur að fram­tíð­ar­mögu­leikum efna­hags og vinnu­mark­aðar. Önnur svæði á Íslandi eru í 26. til 41. sæti en sam­an­borið við úttekt á árunum 2010 til 2015 eru Suð­ur­nesin eina svæðið sem hefur bætt sína stöðu á meðan fram­tíð­ar­sýn hinna hefur hrakað.

Þriðja mesta fjölgunin á höfuðborgarsvæðinu

Fljóts­dals­hreppur og Breið­dals­hreppur eru meðal þeirra sveit­ar­fé­laga sem verst standa varð­andi fólks­fækkun sem er um 1,5% að með­al­tali á ári. Aust­firsku hrepp­irnir tveir eru þar með í hópi sjö sveit­ar­fé­laga sem glíma við hvað mestan vanda varð­andi nei­kvæða íbúa­þróun. Í skýrsl­unni eru tekin dæmi um önnur sveit­ar­fé­lög eins og Loppa í Finn­mörku og Puumala og Hyrynsalmi í Norður-Finn­landi.

Á sama tíma var fólks­fjölgun hlut­falls­lega mikil í Kjós­ar­hreppi, um þrjú pró­sent, sem þykir nokkuð mikið jafn­vel sam­an­borðið við stærri byggð­ar­lög þar sem fólks­fjölgun er jafnan mest. Höf­uð­borg­ar­svæðið er með þriðju mestu hlut­falls­legu fólks­fjölg­un­ina á öllum Norð­ur­lönd­unum á árunum 1995 til 2015 eða 35%, aðeins í Stavan­ger í Noregi og Oulu í Finn­landi hefur fjölg­unin verið meiri hlut­falls­lega.

Ísland stendur upp úr með húsnæðisframkvæmdir

Hús­næð­is­verð á Íslandi virð­ist vera í með­al­lagi þegar borið er saman við hin Norð­ur­löndin. Svíþjóð er með dýrasta verðið sam­kvæmt skýrsl­unni og Noregur með næst­dýr­ast. Ísland kemur þar á eftir. Ódýrasta hús­næðið er í Danmörku.

Tekið er fram í skýrsl­unni að það sé slá­andi að fram­kvæmdir vegna nýbygg­inga og íbúða á Norð­ur­lönd­unum hafa alls staðar staðið í stað á árunum 2013 til 2014, að Íslandi und­an­skildu, þar sem er örlítil aukn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár