„Við þurfum að skuldsetja ríkissjóð verulega“

Full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna kvört­uðu undan sam­ráðs­leysi af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar í Silfrinu í morgun og sögð­ust telja að stjórn­völd þyrftu að bæta veru­lega í hvað varðar efna­hags­leg við­brögð við heims­far­aldr­inum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV

Full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna köll­uðu eftir auk­inni sam­stöðu í stjórn­mál­unum, er þeir komu einn af öðrum í Silfrið á RÚV í morgun til að ræða þær aðgerðir sem kynntar hafa verið af hálfu stjórn­valda til þess að spyrna við áhrifum heims­far­ald­urs­ins.

„Það sem rík­is­stjórnin er að gera er fínt en ekki nóg,“ sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar, sem sagði deg­inum ljós­ara að kreppan vegna heims­far­ald­urs­ins væri og yrði engin venju­leg kreppa. „Við þurfum að skuld­setja rík­is­sjóð veru­lega,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Hún sagði að henni þætti gott ef „gagn­kvæm hlustun“ en ekki bara ein­tal ætti sér stað af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar og bætti við að Við­reisn­ar­fólk hefði orðið þess vart í nefndum þings­ins að ekki mætti taka inn þeirra hug­myndir, til dæmis eina um að afnema trygg­inga­gjald tíma­bundið á fyr­ir­tæki með sjö starfs­menn eða færri.

Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­leið­togar töl­uðu á svip­uðum nótum og létu glitta í óánægju með sam­ráðs­leysi af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar.

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagð­ist þannig „hissa“ á því að stjórn­ar­and­staðan væri ekki höfð meira með í ráðum, sér­stak­lega í ljósi þess að hún hefði sýnt að hún skipti máli, til dæmis í þeim breyt­ingum sem voru gerðar á hluta­bóta­frum­varpi félags­mála­ráð­herra í nefnda­starfi þings­ins og þegar ákvæðum var bætt við um að fyr­ir­tækjum sem fengju lán með rík­is­á­byrgð yrði tíma­bundið óheim­ilt að greiða sér arð.

„Betur sjá augu en auga,“ sagði Logi að ætti við á þessum tímum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins sagði sam­starfið við rík­is­stjórn­ina hafa verið ágætt, en að það væri byrjað að líta út fyrir að vera „bara í aðra átt­ina“.

For­mað­ur­inn sagð­ist hafa orðið fyrir von­brigðum með að hver ein og ein­asta til­laga stjórn­ar­and­stöð­unnar hefði verið felld. Hann sagði að fyrst að þessi sund­ur­leita stjórn­ar­and­staða hefði náð saman, um „hóf­sama“ breyt­inga­til­lögu við sér­stakt fjár­fest­ing­ar­á­tak rík­is­stjórn­ar­innar, væri ljóst að eitt­hvað væri í til­lög­una spunnið.

„Þetta voru til­lögur sem voru aug­ljós­lega til bóta,“ sagði Sig­mundur, sem kall­aði eftir því að rík­is­stjórnin veiti inni­stæðu fyrir tali sínum um sam­stöðu á þessum erf­iðu tímum með því að taka til­lögur stjórn­ar­and­stöð­unnar til greina.

Saknar róttækni

„Það sem ég sakna mest er meiri rót­tækni, en hennar var kannski ekki að vænta hjá frekar íhalds­samri stjórn,“ sagði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata, sem sagð­ist einnig telja að ástand dags­ins í dag kalli á „ákveðna sam­fé­lags­lega sjálfs­skoðun og að við end­ur­skoðum verð­mæta­mat okkar.“

Hún benti á að fólkið sem héldi sam­fé­lag­inu gang­andi í dag væru heil­brigð­is­starfs­fólk, starfs­fólk í vel­ferð­ar­þjón­ustu, kenn­arar, sorp­hirðu­fólk, fólk í mat­væla­fram­leiðslu og fleiri hópar.

„Við sjáum það bara að þeirra verð­mæti fyrir sam­fé­lagið, þessa grund­vall­ar­fólks, það end­ur­spegl­ast ekki í þeim launa­seðlum sem þau fá,“ sagði Þór­hildur Sunna, sem nefndi einnig að það hefði verið höf­uð­á­hersla Pírata að reyna að stjórn­völd til að sjá mik­il­vægi þess að eng­inn félli utan þess­ara aðgerða og sagð­ist telja að stjórn­völd gerðu illt verra með því að búa til „ölm­usu­kerfi“ sem væru flókin fyrir not­endur.

„Við höfum talað fyrir borg­ara­launum,“ sagði Þór­hildur Sunna og benti á að sú hug­mynd væri að njóta auk­innar hylli þessa dag­ana, jafn­vel úr óvæntum áttum eins og frá leið­ar­ara­höf­undum breska blaðs­ins Financial Times.

Tími til að endurskoða almannatryggingakerfið

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður Flokks fólks­ins sagð­ist ótt­ast að eldri borg­arar og öryrkjar yrðu skildir eftir í við­brögðum stjórn­valda. Hann sagði þá 20 þús­und króna ein­greiðslu sem öryrkjar fá nú í aðgerðum stjórn­valda ekki nægi­legt fram­lag og sagði að hann hefði kosið að greiðsl­urnar næmu 50 þús­und krónum bæði núna þessi mán­aða­mót og næstu, þar sem þessi hópur væri í þröngri stöðu.

Einnig sagði hann að þörf væri á því að hækka atvinnu­leys­is­bætur og end­ur­skoða almanna­trygg­inga­kerfið gjör­sam­lega frá A til Ö. Logi Ein­ars­son tal­aði með svip­uðum hætti og sagði að þegar veiru­far­ald­ur­inn væri far­inn hjá yrðu stjórn­völd að hafa það hug­fast að það þyrfti alltaf að verja veik­ustu hópana í sam­fé­lag­inu, ekki bara fyrir heims­far­aldri heldur almennt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár