Stærstu stjórnarandstöðuflokkarnir þrír mælast með meira fylgi en ríkisstjórnin

Ný könnun sýnir að Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn eru með meira sam­eig­in­legt fylgi en Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Ekki yrði hægt að mynda þriggja flokka stjórn án þess að bæði Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing sætu í henni.

Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja: Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, mælist 40,8 pró­sent í nýrri könnun Zenter sem gerð var fyrir Frétta­blaðið og greint er frá í blaði dags­ins. Allir stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast undir kjör­fylgi.

Sama könnun sýnir að þrír stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir: Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn, mæl­ast nú með 41,1 pró­sent fylgi, eða aðeins meira en sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna. Þeir mynda, ásamt Vinstri grænum, meiri­hluta í næst stærsta stjórn­valdi lands­ins, Reykja­vík­ur­borg og hafa allir ýjað að því að þeir flokkar sem skil­greina sig sem kerf­is­breyt­inga­öfl þurfi að mynda rík­is­stjórn eftir næstu kosn­ingar, sem fara fram eftir tæpt ár, eða 25. sept­em­ber 2021. Ef Vinstri grænum er bætt við þá er sam­an­lagt fylgi þeirra flokka sem mynda meiri­hluta í Reykja­vík 50,8 pró­sent.

Eina leiðin til að mynda þriggja flokka rík­is­stjórn, yrði nið­ur­staða könn­unar Zenter það sem talið yrði upp úr kjör­köss­unum, væri með aðkomu bæði Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ingar. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði í sam­tali við Frétta­blaðið að það væri „ekki að fara ger­ast“. Samstarf flokk­anna gerð­ist bara í sjón­varps­þáttum, og vís­aði þar til þáttar­að­ar­innar „Ráð­herr­ann“ sem nú er til sýn­ingar á RÚV. Logi hefur ítrekað sagt það opin­ber­lega á und­an­förnum árum að ekki komi til greina að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki.

Sjálfstæðisflokkurinn stærsti flokkurinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins og mælist með 23,2 pró­sent fylgi. Vinstri græn mæl­ast nú með 9,7 pró­sent fylgi, sem þýðir að flokk­ur­inn hefur tapað lang­leið­ina að helm­ingi þess fylgis sem hann fékk í kosn­ing­unum 2017, þegar 16,9 pró­sent kjós­enda kusu hann. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sömu­leiðis að mæl­ast mjög lágt, eða með 7,9 pró­sent fylgi, sem yrði versta útkoma hans í sög­unni yrði hún að veru­leika.

Mið­flokk­ur­inn, sem varð til þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son klauf sig úr Fram­sókn­ar­flokknum, mælist með sama fylgi og gamli flokk­ur­inn, eða 7,9 pró­sent. Það þýðir að sitj­andi stjórn­ar­flokkar gætu ekki tekið Mið­flokk­inn, sem er deilir mörgum kerf­is­varn­ar­á­herslum með þeim, með í rík­is­stjórn sem væri með meiri­hluta kjós­enda á bak­við sig.

[adspot]Í ljósi þess að Flokkur fólks­ins, sem mælist með tæp­lega fimm pró­sent fylgi, og Sós­í­alista­flokkur Íslands, með 3,9 pró­sent fylgi, myndu að öllum lík­indum ekki ná inn á þing miðað við nið­ur­stöðu Zenter, og atkvæði greidd þeim því falla niður dauð, þá gætu þessir fjórir flokkar þó lík­lega myndað mjög tæpan meiri­hluta.

Samfylkingin mælist næst stærst

Sam­fylk­ingin mælist með 17,2 pró­sent í könnun Zenter sem myndi gera hana að næst stærsta flokki lands­ins. Píratar mæl­ast með 13,9 pró­sent og yrðu þriðji stærsti flokk­ur­inn miðað við þá nið­ur­stöðu. Viðreisn hefur nokkuð stöðugt, í könn­unum Zenter og þeim sem önnur könn­un­ar­fyr­ir­tæki gera, mælst með í kringum tíu pró­sent fylgi síð­ustu mán­uði. Á því er engin breyt­ing í þess­ari könnun.

Samtals myndu þessir þrír flokkar bæta við sig 13,1 pró­sentu­stigi frá síð­ustu þing­kosn­ingum ef nið­ur­staða könn­unar Zenter yrði að veru­leika. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír myndu á sama tíma tapa 12,1 pró­sentu­stigi frá því að kosið var síð­ast. Þorri þess taps yrði hjá Vinstri grænum, eða um 60 pró­sent.

Könnunin var send á könn­un­ar­hóp Zenter rann­sókna og svar­tími var frá 23. til 28. sept­em­ber. Í hópnum voru 2.500 ein­stak­lingar á Íslandi, átján ára og eldri og voru svör þeirra vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu. Svar­endur voru 1.281 eða 51 pró­sent.

Kannanir ekki að sýna sömu stöðu

Nið­ur­staða könn­unar Zenter er ansi ólík því sem síð­asta könnun MMR sýndi. Þar mæld­ist til að mynda fylgi Sjálf­stæð­is­flokks 25,6 pró­sent en Sam­fylk­ingar 12,8 pró­sent.

[links]Mið­flokk­ur­inn mæld­ist þar í kjör­fylgi, eða 10,8 pró­sent, en Vinstri græn fengu sína verstu mæl­ingu frá því fyrir Panama­skjölin vorið 2016 í könn­unum MMR og mæld­ust með 8,5 pró­sent fylgi. 

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir voru með sam­an­lagt 42,4 pró­sent í könnun MMR en sam­an­lagt fylgi Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar var 37,2 pró­sent.

Í síð­ustu könnun Gallup, sem birt var í byrjun sept­em­ber, mæld­ust Vinstri græn með 12,6 pró­sent fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn naut stuðn­ings 22,8 pró­sent kjós­enda og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var með 7,9 pró­sent fylgi. Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja sam­kvæmt því var 43,3 pró­sent.

sam­an­lagt fylgi Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar mæld­ist þá 39 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár