Miðflokkurinn eykur mest við sig fylgi í nýrri könnun

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Pírata, Mið­flokks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins eykst milli kann­ana MMR en fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Fram­sóknar, VG og Flokks fólks­ins minnkar.

Gunnar Bragi og Sigmundur Davíð
Gunnar Bragi og Sig­mundur Davíð Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mæld­ist nú 25,6 pró­sent, sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Það er rúm­lega einu og hálfu pró­sentu­stigi hærra en við síð­ustu könnun MMR sem fram­kvæmd var í ágúst.

Fylgi Pírata jókst um tæpt pró­sentu­stig og mæld­ist nú 15 pró­sent en fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar minnk­aði um tvö pró­sentu­stig og mæld­ist nú 12,8 pró­esnt. Þá jókst fylgi Mið­flokks­ins um tæp­lega þrjú pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingu og mæld­ist nú 10,8 pró­sent.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mæld­ist nú 51 pró­sent og jókst um tæpt pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun, þar sem stuðn­ingur mæld­ist 50,1 pró­sent.

[adspot]

Fylgi Við­reisnar mæld­ist nú 9,4 pró­sent og mæld­ist 10 pró­sent í síð­ustu könnun og fylgi Vinstri grænna mæld­ist nú 8,5 pró­sent, sam­an­borið við 9,6 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mæld­ist 8,3 pró­sent og mæld­ist 8,9 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands jókst og mæld­ist nú 4,3 pró­sent en það mæld­ist 3,4 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Flokks fólks­ins mæld­ist nú 3,6 pró­sent og mæld­ist 4,8 pró­sent í síð­ustu könnun. Stuðn­ingur við aðra mæld­ist 1,7 pró­sent sam­an­lagt.

Í úrtak­inu voru ein­stak­lingar 18 ára og eldri, valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR. 2.043 ein­stak­lingar svör­uðu könn­un­inni en hún var fram­kvæmd 10. til 23. sept­em­ber 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár