Mynd: Samsett

Reykjavíkurstjórn líklegasti valkosturinn við sitjandi ríkisstjórn

Stjórn­mála­flokk­arnir vega nú og meta hvenær þeir eru lík­legir til að hámarka árangur sinn í kosn­ingum. Og eru fyrir nokkuð löngu síðan farnir að máta sig í næstu rík­is­stjórn. Þar virð­ast, eins og er, aðal­lega vera tveir skýrir val­kostir á borð­inu.

Alþing­is­kosn­ingar frá banka­hruni hafa allar verið haldnar í kjöl­far mik­illa póli­tískra tíð­inda. Í febr­úar 2020 stefndi í að þær næstu myndu verða und­an­tekn­ingin frá þeirri reglu. Kór­ónu­veiran og efna­hags­legar afleið­ingar hennar breyttu þeirri stöðu snögg­lega. Og nú skyndi­lega komin, enn og aftur, for­dæma­laus staða sem kallar á nýjar hug­myndir og nýja nálgun. Það ástand mun móta þing­kosn­ing­arnar á næsta ári.

Þeir sem hafa horft með sökn­uði til þess 4+1 kerfis sem var við lýði hér­lendis ára­tugum saman í íslenskum stjórn­málum hljóta eru flestir búnir að kveðja þann draum, og farnir að aðlaga sig að veru­leika þar sem að minnsta kosti níu flokkar keppa um að kom­ast að á Alþingi. Og að minnsta kosti sjö eru lík­legir til að tryggja sig þangað inn. Í dag eru flokk­arnir á þingi átta og hafa verið frá 2017. Í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, sem í var kosið 2018, eru þeir jafn­margir en ekki alveg þeir sömu.

Samfylkingin hafnar Sjálfstæðisflokknum

Ómögu­legt er að mynda sterka tveggja flokka rík­is­stjórn. Miðað við kann­anir nú um stundir yrði lík­lega ómögu­legt að mynda þriggja flokka stjórn, þar sem slíkt þyrfti að inni­halda bæði Sjálf­stæð­is­flokk og Sam­fylk­ing­una. Miðað við orð Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á flokks­stjórn­ar­fundi flokks­ins í nóv­em­ber í fyrra, eru lík­urnar á slíku sam­starfi engar. Þar sagði hann í ræðu að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tróni ekki lengur yfir öllum hinum flokk­unum. Sú staða kalli á að aðrir flokkar þurfi að bregð­ast við þessum nýja veru­leika sem blasi nú við í íslenskum stjórn­mál­um. Logi sagði þetta vera sögu­legt tæki­færi fyrir Sam­fylk­ing­una til að fylkja saman því sem hann kall­aði „umbóta­öfl­unum í land­inu“ og sýna að það væri til betri val­kostur fyrir íslenskan almenn­ing en núver­andi rík­is­stjórn.

Í umræðum á Alþingi um stöð­una í stjórn­málum í byrjun árs og verk­efnin framundan, sem fór fram í jan­úar síð­ast­liðnum, sló hann svip­aðan streng.

Þar sagði hann að tími væri kom­inn til að hætta að láta Sjálf­stæð­is­flokk­inn enda­laust velja sér nýja dans­fé­laga eftir kosn­ingar og stjórna eftir eigin geð­þótta. „Nú er kom­inn tími sam­stilltr­ar, djarfrar og víð­sýnnar stjórn­ar, án Sjálf­stæð­is­flokks­ins - fyrir allt fólkið í land­inu og kom­andi kyn­slóð­ir. Stjórn sem leggur alla áherslu á rík­ara félags­legt rétt­læti og hefur á sama tíma meiri sköp­un­ar­kraft, fram­sýni og hug­rekki.“

Þrír flokkar mynda kjarna „umbótaaflanna“

Þau „umbóta­öfl“ sem Logi, for­maður næst­stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins, er að biðla til eru auk Sam­fylk­ing­ar­innar flokkur Pírata og Viðreisn. Þessir þrír flokkar vinna mikið saman í stjórn­ar­and­stöðu, áherslur þeirra skar­ast umtals­vert, allir flokk­arnir eru með alþjóða­sinn­aðir og þeir deila því að vilja ráð­ast í kerf­is­breyt­ingar sem þeir sjá ekki að verði að veru­leika með Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rík­is­stjórn. Þar er sér­stak­lega horft til breyt­inga á stjórn­sýsl­unni og í auð­linda­málum. Miðað við þau sam­töl sem Kjarninn hefur átt við lyk­il­fólk úr öllum þessum flokkum þá er þetta hug­mynd sem öllum hugn­ast ágæt­lega, þótt Viðreisn sér­stak­lega vilji ekki binda sig neinum flokkum fyrir kosn­ingar sem stendur, heldur hafa alla mögu­leika opna ef miklar breyt­ingar verða á fylgi flokka þegar talið verður upp úr kjör­köss­unum.

Kosið verður á næsta ári. Hvenær árs mun liggja fyrir eftir fundi forsætisráðherra með formönnum flokka sem fara fram á næstunni. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Kosið verður á næsta ári. Hvenær árs mun liggja fyrir eftir fundi for­sæt­is­ráð­herra með for­mönnum flokka sem fara fram á næst­unni. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Í nýj­ustu könnun MMR var sam­eig­in­legt fylgi þess­ara þriggja flokka 39,5 pró­sent. Í könnun sem Zenter gerði fyrir Frétta­blaðið nokkrum dögum áður mæld­ist fylgi þeirra 39,7 pró­sent. Í nýj­ustu könnun Gallup er það 36,1 pró­sent. Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn fengu sam­tals 28 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017. Flokk­arnir þrír hafa allir bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu og sú fylg­is­aukn­ing hefur hald­ist nokkuð stöðug í kringum tíu pró­sentu­stig. Miðað við þann fjölda atkvæða sem sam­kvæmt könn­unum fara til flokka sem mæl­ast rétt svo eða vart inni á þingi þá gætu allt að tíu pró­sent atkvæða fallið niður dauð. Flokk­arnir þrír geta átt von á því að fá 25 til 28 þing­menn. Þá þyrftu þeir ein­ungis fjóra til sjö til við­bótar til að fá meiri­hluta. 

Hefur fest sig í sessi sem næst stærsti flokkurinn

Eftir að hafa nán­ast þurrkast út í kosn­ing­unum 2016, þegar flokk­ur­inn fékk ein­ungis 5,7 pró­sent atkvæða, hefur Sam­fylk­ingin hægt og rólega náð vopnum sínum, þótt hún sé enn langt frá því að vera sá mót­vægis­turn við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem til stóð þegar hún var stofnuð, og hún var um tíma snemma á öld­inni.

Haust­kosn­ing­arnar 2017 reynd­ust mikil gjöf fyrir flokk­inn, sem var kom­inn í mik­inn fjár­hags­vanda vegna þess að fjár­fram­lög til hans skruppu gríð­ar­lega saman í sam­ræmi við hrun í fylgi, en í þeim fjölg­aði þing­mönnum hans úr ein­ungis þremur í sjö og hann fór frá því að vera minnsti flokk­ur­inn á þingi í að vera sá þriðji stærsti.

Sam­fylk­ingin mælist nokkuð stöðugt næst stærsti flokkur lands­ins í könn­unum. Í síð­ustu könnun Zenter mæld­ist fylgi flokks­ins 16,1 pró­sent, hjá MMR mælist það 16,3 pró­sent og hjá Gallup er það 14,9 pró­sent. Ef það yrði nið­ur­staða kosn­inga er ljóst að flokk­ur­inn mun leika lyk­il­hlut­verk í því að reyna að mynda næstu „Reykja­vík­ur­stjórn“. Við­mæl­endur Kjarnans innan flokks­ins eru allir á saman máli um að þangað stefni hugur hans, og Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur ekki verið feim­inn við að segja það opin­ber­lega. Í við­tali við Mannlíf í byrjun síð­asta árs sagði hann til að mynda: „Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmti­legum og góðum málum á dag­skrá ef við myndum mynda rík­is­stjórn frá miðju til vinstri þar sem Sam­fylk­ingin væri kjöl­festu­flokkur og við hefðum svo Við­reisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okk­ur.“

For­ystu­mál Sam­fylk­ing­ar­innar virð­ast vera nokkuð borð­leggj­andi eins og stendur. Logi, sem varð óvart for­maður flokks­ins eftir afhroðið 2016, mun leiða flokk­inn inn í næstu kosn­ingar taki Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, ekki stökkið yfir í lands­málin. Dagur er umdeildur stjórn­mála­maður, enda hefur honum tek­ist að koma sínum áherslum á þróun borg­ar­mála frá því að hann kom inn í borg­ar­stjórn árið 2002. Sú þróun hugn­ast póli­tískum and­stæð­ingum hans illa og mjög skýrar átaka­línur hafa verið í borg­ar­stjórn nán­ast allt frá því að R-list­inn náði völdum þar 1994. Síðan þá hafa félags­hyggju­flokkar farið með stjórn borg­ar­innar ef und­an­skilið er hluti kjör­tíma­bils­ins 2006 til 2010, þegar alls fjórir meiri­hlutar voru mynd­aðir.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjórinn í Reykjavík, hefur hingað til hafnað því að stiga inn á landsmálasviðið.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík, hefur hingað til hafnað því að stiga inn á lands­mála­sviðið.

Dagur er sterkasti stjórn­mála­maður sem Sam­fylk­ingin á, og sá eini á meðal for­víg­is­manna flokks­ins með sterka sig­ur­hefð í reynslu­bank­anum. Hann hefur hins vegar ítrekað sagt það á síð­ustu árum að hann hafi hvorki metnað til að verða for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar né í lands­málin. Í við­tali við Kjarnann 2014 sagð­ist hann til að mynda ekki sjá það ger­ast á næstu tíu árum hið minnsta.

Fyrir og eftir Birgittu

Píratar hafa markað sér sér­stöðu í íslenskum stjórn­málum frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður síðla árs 2012 utan um aukið gagn­sæi í stjórn­sýslu og verndun og efl­ingu borg­ara­legra rétt­inda. Pólitísk til­vera flokks­ins hefur verið rús­sí­ban­areið. Hann náði mönnum á þing 2013, komst í meiri­hluta­stjórn í Reykja­vík 2014 og mæld­ist um tíma með um og yfir 40 pró­sent fylgi í könn­unum árið 2016, í kjöl­far þess að Panama­skjölin svoköll­uðu voru opin­beruð.

Innan Pírata er svo­kall­aður flatur strúktúr sem felur meðal ann­ars í sér að eng­inn for­maður er í flokknum, heldur fram­kvæmda­ráð. Á þingi skipt­ast þing­menn flokks­ins á að veita honum for­ystu þar sem kallað er á slíkt í gang­virki þings­ins.

Vaxt­ar­verkir hafa fylgt þessum upp­gangi. Um tíma fjölg­aði flokks­fé­lögum gríð­ar­lega á skömmum tíma og virt­ist sem margir þeirra væru ekki sam­mála um mikið annað en að vera Píratar. Fyrir vett­vang sem byggir á mik­illi þátt­töku gras­rótar í öllum helstu ákvörð­unum þá skap­aði þetta ýmsar áskor­anir. Þá er ótalin per­sóna Birgittu Jóns­dóttur, sem var and­lit flokks­ins árum saman og helsti tals­maður hans. Í raun óform­legur leið­togi. Birgitta bauð sig ekki fram í síð­ustu þing­kosn­ingum en ljóst hafði verið lengi í aðdrag­anda þess að henni lynti ekki við flesta aðra kjörna full­trúa Pírata.

Helgi Hrafn Gunnarsson og Birgitta Jónsdóttir voru einu sinni saman í þingflokki. Ljóst er að ekki er mikil velvild á milli þeirra í dag.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son og Birgitta Jóns­dóttir voru einu sinni saman í þing­flokki. Ljóst er að ekki er mikil vel­vild á milli þeirra í dag.

Sá ágrein­ingur opin­ber­að­ist nokkuð skýrt fyrir um ári síðan þegar Birgitta ætl­aði sér end­ur­komu í starfið með því að sækj­ast eftir sæti í trún­að­ar­ráði Pírata. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður flokks­ins, hélt þá þrumu­ræðu þar sem hann sagð­ist hafa ára­langa reynslu af því að kynn­ast því frá Birgittu, að henni væri ekki treystandi. „Hún grefur undan sam­herjum sínum ef hún sér af þeim ógn. Hún hótar sam­herjum sínum þegar hún fær ekki það sem hún vill. „Ég vona inni­lega að þess­ari til­nefn­ingu verði hafn­að.“ Birgitta hlaut ekki braut­ar­gengi, með afger­andi hætti, í kosn­ingu sem fram fór í kjöl­farið.

Meiri festa og stöðugleiki í fylgi

Und­an­farin ár hefur tek­ist að mynda festu í til­veru Pírata. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, Halldóra Mogensen og Björn Leví Gunn­ars­son hafa skapað sér nafn með fram­göngu sinni á þingi sem ofbýður póli­tískum and­stæð­ingum þeirra en hugn­ast mjög þeim sem styðja póli­tíska veg­ferð Pírata.

Þetta end­ur­spegl­ast í fylgi flokks­ins. Þegar gagn­rýni á hann er mikil, til dæmis nýverið vegna for­mennsku Þór­hildar Sunnu í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, þá hefur fylgið til­hneig­ingu til að taka við sér. Eins og stendur mælist fylgi Pírata á bil­inu 10,7 til 13,6 pró­sent í þremur síð­ustu könn­unum. Minnst mælist það hjá Gallup en mest hjá Zenter, þótt að MMR sé ekki langt þar undan. Efri mörk þess­ara mæl­inga myndu þýða að Píratar myndu auka fylgi sitt um tæp­lega 50 pró­sent milli kosn­inga.

Við­mæl­endur Kjarnans innan raða Pírata segja mark­miðið fyrir næsta kjör­tíma­bil ljóst: Þeir ætla sér í rík­is­stjórn. Sú rík­is­stjórn, eigi hún að verða að veru­leika, getur ekki inni­haldið Sjálf­stæð­is­flokk­inn vegna gagn­kvæms óþols flokk­anna tveggja á hvorum öðrum.

Búast má við því að flestir þing­menn Pírata bjóði sig áfram fram og að Þór­hildur Sunna verði áfram helsti tals­maður þeirra. Flokk­ur­inn er hluti af meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík annað kjör­tíma­bilið í röð sem gengur vel og ánægja er með á meðal allra flokka sem það mynda. Hann hefur því sýnt það á þeim vett­vangi að Píratar eru stjórn­tækir, þótt ýmsir póli­tískir and­stæð­ingar haldi öðru fram.

Klofningsframboðið sem reis upp frá dauðum

Viðreisn var lengi í und­ir­bún­ingi. Flokk­ur­inn spratt upp úr óánægju hjá áhrifa­miklum sjálf­stæð­is­mönnum með ákvörðun flokks­ins um að aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu yrði ekki dregin til baka nema með þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Sú ákvörðun var kynnt í febr­úar 2014. Fyrsti form­legi stefnu­mót­un­ar­fundur hins nýja stjórn­mála­afls var hald­inn 11. júní sama ár þótt Viðreisn hafi ekki verið form­lega stofnuð sem stjórn­mála­flokkur fyrr en í maí 2016, þegar ljóst var að kosn­ingar færu fram þá um haustið vegna Panama­skjal­ana.

Tvíeykið Benedikt Jóhannesson og Óttarr Proppé bundu flokka sína, Viðreisn og Bjarta framtíð, saman í stjórnarmyndunarviðræðum eftir kosningarnar 2016.
Tvíeykið Benedikt Jóhann­es­son og Óttarr Proppé bundu flokka sína, Viðreisn og Bjarta fram­tíð, saman í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum eftir kosn­ing­arnar 2016.

Benedikt Jóhann­es­son var kjör­inn for­maður flokks­ins og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var í fram­varð­ar­sveit hans. Viðreisn fékk 10,5 pró­sent atkvæða í októ­ber 2016 og end­aði á því að mynda skamm­líf­ustu meiri­hluta­stjórn lýð­veld­is­tím­ann með gamla móð­ur­flokknum og Bjartri fram­tíð, sem sprakk eftir tæpa átta mán­uði.

Í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2017 stefndi í að Viðreisn myndi mögu­lega deyja út. Þegar Benedikt hætti sem for­maður í októ­ber 2017, og Þor­gerður Katrín tók við, mæld­ist fylgi flokks­ins 3,3 pró­sent. Við­reisn náði að halda sér inni á þingi í síð­ustu kosn­ing­um, fékk 6,7 pró­sent atkvæða og fjóra þing­menn, en tap­aði rúm­lega þriðj­ungi atkvæða sinna milli ára.

Ekkert einfalt svar

Viðreisn hefur mælst með nokkuð stöðugt fylgi í könn­unum það sem af er kjör­tíma­bil­inu. Í síð­ustu könn­unum Zenter og MMR mæld­ist það slétt tíu pró­sent en aðeins meira hjá Gallup, eða 10,5 pró­sent. Því stefnir allt að óbreyttu í að Viðreisn nái þeim þing­styrk sem flokk­ur­inn hafði eftir kosn­ing­arnar 2016 þegar þing­menn­irnir voru sjö.

Opin­ber­lega þá hefur flokks­for­ystan lítið gefið upp hvert hugur hennar stefnir hvað varðar stjórn­ar­myndun. Af sam­tölum við áhrifa­fólk innan flokks­ins á síð­ustu árum er þó ljóst að reynslan af stjórn­ar­sam­starf­inu 2017 situr í fólki. Ýmislegt má ráða í það að eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018 ákvað Viðreisn að mynda meiri­hluta í Reykja­vík með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri grænum.

Fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, Benedikt Jóhann­es­son, er tal­inn mjög lík­legur til að fara fram á ný í næstu kosn­ingum. í apríl skrif­aði hann stöðu­upp­færslu á Facebook sem vakti mikla athygli þar sem hann sagði að þær stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður sem hefðu gengið best eftir kosn­ing­arnar 2016 hafi verið þegar flokkur hans ræddu við Bjarta fram­tíð, Sam­fylk­ingu og Pírata. „Þar hefðum við náð fram flestum af okkar málum til umbóta í land­bún­aði, sjáv­ar­út­vegi og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Evr­ópu­um­sókn­ina.“

Í umræðu um stöðu­upp­færsl­una sagði hann að það væri ekk­ert ein­falt svar við því hvað hefði valdið því að Viðreisn hefði þrátt fyrir þetta myndað rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. „Það var því aug­ljóst að fram­sókn­ar­flokk­arnir þrír hefðu meiri­hluta og höfðu örugg­lega mikla löngun til þess að mynda stjórn saman þá þegar um óbreytt ástand eins og þau gerðu ári síð­ar. Þegar þannig háttar er stærð­fræði­lega ómögu­legt að mynda meiri­hluta­stjórn án eins þess­ara stöðn­un­ar­flokka.“

Eftirsjá af Þorsteini

Þor­gerður Katrín mun að öllum lík­indum verða áfram for­maður flokks­ins. Af orðum hennar í nýlegu við­tali við Kjarnann liggur fyrir hvert hugur hennar stefnir eftir næstu kosn­ingar. „Við þurfum fólk sem raun­veru­lega meinar það þegar það talar um gagn­sæi og um að miðla upp­lýs­ingum og situr ekki á skýrslum rétt fyrir kosn­ingar. Þess vegna þarf að vera þungi og alvara af okkar hálfu sem erum í stjórn­málum því við getum breytt hlut­unum. Það þýðir ekki að tipla á tánum í kringum þetta gamla. Það gamla varð til út af ákveð­inni ástæðu og allt í góðu með það en í dag er annar tími sem gerir kröfur og setur ábyrgð á herðar okkar sem eru í stjórn­málum að breyta – og upp­færa.“

Þorsteinn Víglundsson ákvað að hætta beinni þátttöku í stjórnmálum fyrr á þessu ári.
Þor­steinn Víglunds­son ákvað að hætta beinni þátt­töku í stjórn­málum fyrr á þessu ári.

Viðreisn varð fyrir mik­illi blóð­töku þegar Þor­steinn Víglunds­son, vara­for­maður flokks­ins, ákvað að hætta þátt­töku í stjórn­málum fyrr á þessu ári og hverfa aftur til starfa í atvinnu­líf­inu. Þor­steinn var virtur þvert á póli­tískar línur og þótti afar hæfur stjórn­mála­maður með mikla þekk­ingu á efna­hags­málum. Daði Már Krist­ó­fers­son, frá­far­andi for­seti Félags­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands og pró­fessor í hag­fræði, hefur þegar ákveðið að gefa kost á sér í vara­for­manns­emb­ættið í stað Þor­steins á aðal­fundi Við­reisnar sem fram fer í haust. Ekki er ósenni­legt að ein­hver af núver­andi þing­mönnum flokks­ins muni sækj­ast eftir því emb­ætti þegar nær dregur.

Reykjavíkurstjórn fyrsti valkostur

Sam­an­dregið þá sýna fjöl­mörg sam­töl Kjarnans við áhrifa­fólk innan þess­arra þriggja flokka fram á að þar sé fyrsti kostur í stjórn­ar­myndun eftir kom­andi kosn­ingar rík­is­stjórn sem geti ráð­ist í kerf­is­breyt­ingar, t.d. í sjáv­ar­út­vegi og stjórn­sýsl­unni. Þar er horft til þess að Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn myndi und­ir­stöð­una í slíkri rík­is­stjórn með fjórða flokki ef með þarf. Þar eru Vinstri græn efst á blaði, að minnsta kosti hjá Sam­fylk­ingu og Pírötum, og þá með Katrínu Jak­obs­dóttur áfram sem for­sæt­is­ráð­herra.

Samstarf þess­arra fjög­urra flokka í meiri­hluta­stjórn­inni í Reykja­vík­ur­borg hefur gengið vel og því er talað um að „Reykja­vík­ur­stjórn“ sé raun­hæfur mögu­leiki eftir næstu kosn­ingar. Slík gæti, að mati við­mæl­enda Kjarnans, orðið upp­haf að svip­uðum breyt­ingum og urðu í Reykja­vík­ur­borg 1994 þegar R-list­inn komst að völdum sem flokk­arnir sem stóðu að honum hafa að mestu haldið alla tíð síðan. 

Það er þó nægur tími í kosn­ingar og ýmis­legt sem getur breyst þangað til að atkvæðin verða talin upp úr köss­unum. Ofan­greindum flokkum hefur gengið frekar illa í að halda í fylgi sitt í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga á sama tíma og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru þekktar kosn­inga­vélar.

Þeir rót­grónu flokkar kunna íslenskar kosn­ingar betur en nokkur annar og geta leitað til fjöl­margra reyndra ein­stak­linga til að hjálpa til við að næla í lyk­il­at­kvæði sem tryggja aðgang að áfram­hald­andi völdum á loka­spretti kosn­inga­bar­áttu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sýnt það að hann á mörg pólitísk líf og gæti haft áhrif á áætlanir annarra flokka um myndum ríkisstjórna, takist honum vel upp í aðdraganda næstu kosninga.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur sýnt það að hann á mörg póli­tísk líf og gæti haft áhrif á áætl­anir ann­arra flokka um myndum rík­is­stjórna, tak­ist honum vel upp í aðdrag­anda næstu kosn­inga.

Þá eru ótaldir hinir flokk­arnir sem mæl­ast með umtals­vert fylgi, en stærri flokk­arnir vilja helst ekki þurfa að starfa með í rík­is­stjórn. Þar ber fyrst að nefna Miðflokk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Hann sýndi það í kosn­ing­unum 2017 að þar fer afl sem veit vel hvert það getur sótt atkvæði, í end­ur­reisn sinni eftir Klaust­urs­málið að þar fer hópur stjórn­mála­manna með að minnsta kosti níu líf og í orku­pakka­mál­inu að hann býr yfir leikja­fræði­getu til að blása upp eitt­hvað sem höfðar til kjarna­kjós­enda hans upp í risa­mál. Flokk­ur­inn var kom­inn á gott flug fyrir COVID-19 far­ald­ur­inn og fékk sína bestu fylg­is­mæl­ingu hjá Gallup frá upp­hafi í könnun sem birt var í byrjun mars. Síðan hefur fylgið hins vegar dalað hratt og til­raunir til að gera and­stöðu gegn borg­ar­línu og sam­göngu­úr­bótum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, með til­heyr­andi mál­þófi og póli­tískum lát­bragðs­leik, gekk illa upp. Fylgi hans mælist nú frá átta pró­sentum og upp í 10,2 pró­sent, eða að jafn­aði vel undir kjör­fylgi.

Vandamál Mið­flokks­ins er einnig að það vill eng­inn annar flokkur vinna með honum nema hluti íhalds­samasta arms Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það gæti þó breyst ef flokk­ur­inn finnur nýtt orku­pakka­mál til að blása upp á réttum tíma í aðdrag­anda kosn­inga þar sem Mið­flokk­ur­inn getur stillt sér upp sem varð­manni íslensks sjálf­stæðis gegn ásælni óbil­gjarna útlend­inga líkt og Sigmundi Davíð hefur tek­ist svo vel að gera nokkrum sinnum á sínum stjórn­mála­ferli, t.d. í Icesave, átökum við erlenda kröfu­hafa og síð­ast í áður­nefndu orku­pakka­máli. Þá gæti fylgið rokið hratt upp á ný, og mögu­lega búið til nýja rík­is­stjórn­ar­mögu­leika. Kannanir á þessu kjör­tíma­bili hafa þó sýnt að þegar Mið­flokk­ur­inn bætir við sig, þá er það helst á kostnað Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Slík staða vinnur því helst með þeim flokkum stjórn­ar­and­stöð­unnar sem horfa til mynd­unar á Reykja­vík­ur­stjórn, enda dregur fylgis­tap Sjálf­stæð­is­flokks veru­lega úr lík­unum á því að núver­andi rík­is­stjórn eigi ein­hverja mögu­leika á að sitja áfram að loknum kosn­ingum.

Ekki hægt að vanmeta Sósíalistaflokkinn eða Flokk fólksins

Sós­í­alista­flokkur Íslands sýndi það í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík 2018 að þar fer afl sem ætlar sér mikið í íslenskum stjórn­málum. Með því að vera stað­sett til vinstri við Vinstri græn þá mun Sós­í­alista­flokk­ur­inn höfða vel til vinstra fólks sem telur Vinstri græn hafa svikið vinstri­mál­stað­inn með stjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Árangur Sós­í­alista­flokks­ins í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, þegar hann fékk 6,4 pró­sent atkvæða og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir var kjörin í borg­ar­stjórn, sýndi umtals­verða póli­tíska getu. Í þeim kosn­ingum fékk flokk­ur­inn næstum 40 pró­sent fleiri atkvæði en hinn vinstri flokk­ur­inn, Vinstri græn.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mæld­ist með 3,5 til 3,8 pró­sent fylgi í nýj­ustu könn­unum Zenter, MMR og Gallup og næðu lík­ast til ekki inn manni á því fylgi. Vert er þó að taka fram að kosn­inga­bar­átta flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum þótti einkar vel heppnuð og áhrifa­rík og skil­aði umtals­verðri fylg­is­aukn­ingu. Í ljósi þess að ekk­ert liggur enn fyrir um t.d. hverjir muni manna lista Sós­í­alista­flokks­ins í þing­kosn­ing­unum á næsta ári þá má ekki úti­loka að flokk­ur­inn eigi nóg inni.

Flokkur fólks­ins hefur átt erfitt fyrsta kjör­tíma­bil á þingi eftir að hafa átt ótrú­legan loka­sprett í síð­ustu kosn­ingum sem skil­uðu honum fjórum þing­mönnum. Tveir þeirra voru reknir úr flokknum eftir Klaust­ur­málið og eftir sitja Inga Sæland og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son. Lítið skipu­lagt flokks­starf virð­ist vera í gangi sem hægt yrði að byggja á í næstu kosn­ingum. Það má hins vegar ekki van­meta Flokk fólks­ins. Honum tókst að ná inn manni í borg­ar­stjórn 2018 og Inga Sæland hefur gott lag á því að tala til efna­minni kjós­enda, oft með popúl­ískum áherslum.

Ef ein­hver þess­ara þriggja flokka: Mið­flokks­ins, Sós­í­alista­flokks­ins eða Flokks fólks­ins tekst að taka sér mikið pláss í næstu Alþing­is­kosn­ingum, þá gæti það leitt til þess að áætl­anir sitj­andi stjórn­ar­flokka, eða þeirra sem skil­greina sig sem frjáls­lynd umbóta­öfl, um hvernig næsta rík­is­stjórn mun líta út, fari út um þúfur. Og að gripa verði til mála­miðl­ana sem áður hefði þótt óhugs­andi til að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár