Mynd: Bára Huld Beck

Það þarf að hlusta á ákall um breytingar – og ekki „tipla á tánum í kringum þetta gamla“

Kjarninn tal­aði við full­trúa í stjórn­ar­and­stöð­unni til þess að kanna hvernig þeir sæju fram­tíð­ina fyrir sér – og hvaða leiðir væru bestar út úr þessu ástandi. Næstur er for­maður Við­reisnar, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir.

Ákallið frá sam­fé­lag­inu fellst í því að breyta raun­veru­lega vinnu­brögð­unum sem við­höfð eru á Alþingi. Það er sama hvaðan gott kemur. Ég bind vonir við einmitt þetta; að við skor­umst ekki lengur undan því að fylgja því sem þarf að breyta inni á þingi og í þessum stóru mik­il­vægu kerfum okkur sem hafa áhrif á þjóð­arsál­ina. Því fólkið hefur skoðun á því að það þurfi meira rétt­læti, sann­girni og gagn­sæi í öll þessi kerfi okkar; land­bún­að­inn, sjáv­ar­út­veg­inn og mennta­kerfið.“

Þetta segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, um þær áherslur sem henni finnst mik­il­vægt að ein­blína á á næstu miss­erum og árum.

Hún seg­ist skynja þetta ákall frá sam­fé­lag­inu – sem sé hvatn­ing fyrir fólk í stjórn­málum að sýna meira hug­rekki gagn­vart sér­hags­munum og fleira – að það verði eitt­hvað til þess að breyt­ast og að það verði breyt­ing á næst­unni.

Þor­gerður Katrín segir að meg­in­þungi næsta kjör­tíma­bils verði að takast á við efna­hags­málin, sam­hliða þeim verk­efnum sem fylgja COVID-19. Hún segir að margt þurfi að laga þegar þessu kór­ónu­veiru­tíma­bili verður lokið. „Við megum ekki skor­ast undan stórum áskor­unum,“ segir hún og bendir á að núna sé meg­in­verk­efnið að kom­ast í gegnum veiruna en eftir það verði hægt að ræða almenna hug­mynda­fræði um upp­bygg­ingu efna­hags­kerf­is­ins.

Þegar hún er spurð út í aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna far­ald­urs­ins segir hún að á heild­ina litið hafi þær verið skyn­samar en að í aðstæðum sem þessum megi þó alltaf gera ráð fyrir mis­tökum. „Og mis­tökin geta ein­kennst af yfir­sjón ann­ars vegar og hins vegar að menn eru kannski að láta sína eigin flokks­bundnu hug­mynda­fræði þvæl­ast fyrir. Þannig að þetta er sam­bland af tvennu; ann­ars vegar mann­leg yfir­sjón sem í miklu harki og hraða og spennu og álagi og óvissu sem ger­ist alltaf. Hins vegar hefði verið hægt að koma í veg fyrir slíkt með því að hafa meira sam­starf – en það var bara póli­tísk ákvörðun,“ segir hún.

Hún gagn­rýnir það að rík­is­stjórnin hafi ákveðið að hafa ekk­ert sam­starf en víða ann­ars staðar í heim­inum hafi þessu verið öðru­vísi farið.

„Það sem er svo mik­ill lyk­ill í svona krísum er að reyna að ná raun­veru­legu sam­starfi, ekki bara yfir­borðs­legri sam­stöðu heldur raun­veru­legri til þess að koma í veg fyrir óþreyju og reiði – því reiðin er þarna handan við hornið ef við gætum ekki ekki að því að þegar atvinnu­leysi fer enn meira af stað þá verður óvissan mikil fyrir stóran hóp af fólki sem er ekki að fá nægi­lega skýr svör.“

Þorgerður Katrín var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra árið 2017 í ríkisstjórn Viðreisnar, Sjálfstæðisflokksins og Bjartrar framtíðar. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Þor­gerður Katrín var sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra árið 2017 í rík­is­stjórn Við­reisnar, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Bjartrar fram­tíðar. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Þor­gerður Katrín bendir á að þrátt fyrir að rík­is­stjórnin hafi byrjað sam­starf sitt með fögur fyr­ir­heit um það að efla þingið og sam­starfið þá hafi ekk­ert orðið úr því. Hún seg­ist við­ur­kenna það að hún hafi búist við meiru af rík­is­stjórn­inni er varðar þessi mál. Þor­gerður Katrín seg­ist þó alls ekki vilja dvelja við þá gagn­rýni eða velta sér of mikið upp úr því.

Einkaframtakið verður að vera hluti af lausninni

Þess vegna skipti það máli að það séu sem flestir á sömu blað­síð­unni – og ekki síst á hinu póli­tíska lit­rófi. „Þess vegna höfum við í Viðreisn lagt mikla áherslu á það að nálg­ast þetta með því að segja: Ok, gott og blessað. Við ætlum að gera það sem við getum gert og við höfum hugsað það þannig: Hvernig getum við orðið að liði?

Síðan sé það alveg ljóst að hug­mynda­fræði­leg nálgun flokk­anna með mis­mun­andi póli­tískan bak­grunn á verk­efnið hefur líka leitt til mis­taka.“

Sem dæmi tekur hún sam­skipti Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra og Kára Stef­áns­sonar for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar. „Þarna er póli­tíkin komin með málið í fangið. Alma, Þórólfur og Víðir kveðja okkur á mánu­deg­inum og tveimur dögum seinna er rík­is­stjórnin komin með málið og ætlar að sýna fram á að Íslend­ingar geti gert þetta sem best – en það bara klikkar. Grund­völl­ur­inn af því er meðal ann­ars andúð Vinstri grænna á öllu því sem heitir einka­fram­tak og þau vilja helst ekki ræða þau mál. Ég held aftur á móti að einka­fram­takið hafi skilað sínu í þessu og gott betur. Einka­fram­takið verður að vera hluti af lausn­inni.“

Hugmyndafræðin má ekki þvælast fyrir

Þor­gerður Katrín bendir á að nú séu farnir að mynd­ast langir biðlistar í heil­brigð­is­kerf­inu og á Land­spít­al­anum. „Það þarf með ein­hverjum hætti að létta á álag­inu og það verður ekki gert nema í sam­vinnu við einka­að­ila. Og til þess að fólk fái líka lausn við sínum þján­ingum, hvort sem það er í lið­skipta­að­gerðum eða í rann­sóknum og eft­ir­liti. Þarna má hug­mynda­fræðin ekki þvæl­ast fyrir því að fólk fái svör.“

Að hennar mati er þetta eitt­hvað sem hefði mátt gera ráð fyrir. „En í heild­ina tel ég að margt hafi verið mjög vel gert. Ég hefði samt viljað sjá meira. Við í Viðreisn vildum fara ein­fald­ari leiðir. Við vildum nýta þau tæki sem voru fyrir eins og til dæmis að lækka skatta tíma­bundið. Að lækka trygg­ing­ar­gjald tíma­bundið. Við hefðum farið strax í að stór­efla sjóð­ina og svo viljum við sjá mun meiri fram­kvæmdir.“

Hún bendir á að nið­ur­sveifla hafi þegar verið hafin fyrir COVID-19 far­ald­ur­inn og segir hún að rík­is­sjóður hafi verið orð­inn ósjálf­bær fyrir veiruna. Hún telur enn fremur að rík­is­stjórnin hafi ekki verið reiðu­búin þegar áfallið skall á. „Það kom mér á óvart að þau skildu ekki vera til­búin í ljósi þess að nið­ur­sveiflan var hafin. Þau máttu gera sér grein fyrir því.

Við í Viðreisn bentum líka á að rík­is­stjórnin væri að eyða um efni fram. Hag­vöxt­ur­inn var ekki í sam­ræmi við útgjalda­þenslu rík­is­sjóðs og við erum ekki lengur með þrotabú föllnu bank­anna sem borga allt. Það var stóri lottó­vinn­ing­ur­inn eftir að við fengum og gátum greitt svona hratt niður rík­is­skuldir. Af því að þar komu þessar risa­greiðslur inn til okkar, í gegnum þrota­búin.“

Spennandi að vera í pólitík núna

Þor­gerður Katrín segir þetta jafn­framt vera ótrú­lega áhuga­verða tíma sem við lifum nú. „Það er spenn­andi að vera í póli­tík núna – og ég spái því ekki síst í haust að þá muni hug­mynda­fræði­legar póli­tískar línur skerp­ast.

Ég held að þegar fram líður á árið þá munum við sem elskum stjórn­mál og höfum áhuga á þeim sjá hversu áhuga­verðir tímar séu framundan. Og það er mjög stutt í ákveðna kontrasta í sam­fé­lag­inu sem við megum ekki hunsa eða líta fram hjá. Því þeir munu líka vera veg­vísar inn í fram­tíð­ina – það er hvernig fram­tíð við ætlum að skapa og móta eftir veiruna.“

Þessa kontrasta má meðal ann­ars sjá í sjáv­ar­út­vegs­málum, að sögn Þor­gerðar Katrínar. Hún bendir á að ekki fyrir svo mörgum árum hafi lang­flestir verið sam­mála um svo­kall­aða samn­ings­leið en hún bygg­ir á því að ríkið geri samn­inga við nú­ver­andi hand­hafa fisk­veiði­heim­ilda um veiði­heim­ild­ir gegn gjaldi.

Þorgerður Katrín með Ingibjörgu H. Bjarnason sem var fyrsta konan sem tók sæti á Alþingi.
Þor­gerður Katrín með Ingi­björgu H. Bjarna­son sem var fyrsta konan sem tók sæti á Alþingi.

„Samn­ings­leiðin er lyk­il­at­riði til þess að rétta af þetta órétt­læti sem við höfum nú – það er að við gerum tíma­bundna samn­inga.“ Þor­gerður Katrín telur að auð­linda­at­kvæðið sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ætlar að setja í stjórn­ar­skrá sé hand­ó­nýtt vegna þess að rík­is­stjórnin sé tvisvar búin að fella á þessu kjör­tíma­bili tilllögur um tíma­bundna samn­inga. „Þar er eng­inn vilji fyrir tíma­bundna samn­inga og þess vegna þarf að skrifa þetta beint inn í stjórn­ar­skrána. Sáttin sem for­sæt­is­ráð­herra vill ná um þetta auð­linda­á­kvæði er sátt við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, er sátt við Fram­sókn­ar­flokk­inn og er sátt við Mið­flokk­inn – en það er ekki sátt við þjóð­ina eða þingið.“

Þurfum ekki að kollvarpa samfélaginu – en við þurfum að uppfæra

Þor­gerður Katrín telur lausn þessa mál vera eitt skref í átt­ina að því að fara „sátt­ari inn í nýtt sam­fé­lag sem við þurfum að upp­færa. Við þurfum ekki að koll­varpa því en við þurfum að upp­færa það – og þá þarf póli­tískan kjark en ekki stjórn­mála­fólk sem dansar í kringum gömlu sér­hags­mun­ina og láti þá alltaf lifa af og verða óbreytta frá kyn­slóð til kyn­slóðar.“

Að hennar mati þarf næstu miss­eri og ár fólk í póli­tík sem er algjör­lega frjálst. „Við þurfum fólk sem raun­veru­lega meinar það þegar það talar um gagn­sæi og um að miðla upp­lýs­ingum og situr ekki á skýrslum rétt fyrir kosn­ingar. Þess vegna þarf að vera þungi og alvara af okkar hálfu sem erum í stjórn­málum því við getum breytt hlut­unum. Það þýðir ekki að tipla á tánum í kringum þetta gamla. Það gamla varð til út af ákveð­inni ástæðu og allt í góðu með það en í dag er annar tími sem gerir kröfur og setur ábyrgð á herðar okkar sem eru í stjórn­málum að breyta – og upp­færa.“

Þarf að gera miklu meira í nýsköpun en nú er gert

Þor­gerður Katrín dregur talið að nýsköp­un­inni en hún hefur verið áber­andi í umræð­unni í og eftir far­ald­ur­inn. „Nýsköpun er algjört lyk­il­at­riði til þess að við lendum ekki í djúpri nið­ur­sveiflu þegar næst verður kreppa, því hún mun koma. Það þarf að gera miklu meira en nú er gert. Og það þarf að ganga þvert yfir ráðu­neytin. Hvað geta ráðu­neytin öll gert til að taka þátt svo nýsköp­unin geti lifað og dafnað?“ spyr hún.

Hún telur enn fremur að Íslend­ingar þurfi að efla hug­vitið miklu meira og það sé gert til dæmis með því að upp­færa rann­sóknar- og mennta­kerfið og sam­eina háskóla.

„Af því að við erum ekki eina landið sem dettur það í hug að fara að veðja meira á hug­vitið. En það þarf að gera eitt­hvað meira en eitt­hvað mél­kisu­legt og setja millj­ónir hér og millj­ónir þar. Það þarf að fara í upp­stokkun – og þessa upp­færslu á kerf­inu. Vegna þess að grunn­stoð­irnar eru þarna en það þarf aðeins að ýta við þeim svo aftur komi líf í þetta.“

Eigum ekki að óttast skiptar skoðanir

Þor­gerður Katrín seg­ist vera sann­færð um að með enn öfl­ugri háskólum þá nái Ísland, með allt þetta land­svæði og land­búnað – þar sem stór­kost­leg tæki­færi séu – að kom­ast á góðan stað. Þá þurfi að taka út milli­lið­ina og ein­blína á bændur og neyt­endur á grunni umhverfis- og nýsköp­un­ar­sjón­ar­miða. Ekki á þeim grunni að milli­lið­irnir vaxi og dafni.

Þá þurfi enn fremur að tengja nýsköp­un­ina við allt annað og segir hún að það muni kosta póli­tíska umræðu og ágrein­ing. „Ég held að við eigum ekki að ótt­ast skiptar skoð­anir, alls ekki. Við eigum frekar að hvetja til umræðu og ég fagna því að póli­tískar línur fari að skerp­ast.“

Hún segir að ákveðin öfl á Íslandi vilji nýta tæki­færið og loka land­inu enn meira – og jafn­vel herða „á ákveð­inni umgjörð“. Á hinn bóg­inn kalli allur heim­ur­inn á meira sam­starf og sam­vinnu. „Við verðum þess vegna að þora að vera fram­sækin og láta í okkur heyra,“ segir hún.

Breytingar til frambúðar

Varðandi ástandið sem nú er uppi vegna COVID-19 far­ald­urs­ins þá telur Þor­gerður Katrín að við munum sjá ákveðnar breyt­ingar til fram­búðar.

„Tækni­legar breyt­ingar eru og verða miklar. Við erum að taka risa­skref í þróun innan vinnu­mark­að­ar­ins út frá tækni og ég fagna því sér­stak­lega,“ segir hún.

Hvað við­kemur mann­legum gildum þá telur hún að sam­skipti verði dýr­mæt­ari og muni fólk kunna að meta þessi sam­skipti, nánd með öðrum hætti en áður. „Bara það að fá að vera í kringum fólk það gerir okkur að mann­eskjum. Að geta verið við með fólk­inu okkar – og þráin eftir að umgang­ast fólk gerir mann þakk­látan að fá að vera innan um aðra. Að fá að snerta, knús­ast og kyss­ast.“

Þor­gerður Katrín sér fyrir sér enn fleiri breyt­ingar á næstu árum og þá sér­stak­lega í umhverfis- og lofts­lags­málum. Þá bendir hún á að fólk almennt sé mikið meira með­vitað um umhverfið og þessi grænu skref sem hægt sé að taka í póli­tík.

„Mér finnst við enn hafa allt of metn­að­ar­laus mark­mið í lofts­lags­málum miðað við til dæmis Evr­ópu­sam­bandið og aðrar þjóðir. Getum við kannski náð þeim mark­miðum sem stjórn­völd settu fyrir 2030 fimm árum fyrr? Getum við sam­ein­ast um það að ýta okkur enn frekar inn í þær breyt­ingar sem við þurfum á að halda í umhverf­is­málum?“ spyr hún í fram­hald­inu.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir

Það er stjórnmálanna að breyta hlutunum

Þor­gerður Katrín hvetur stjórn­völd að taka skref til móts við ákallið úti í sam­fé­lag­inu varð­andi hinar ýmsu breyt­ingar á kerf­unum.

„Reynið að sýna ein­hverja ábyrgð. Við getum tekið póli­tískar rök­ræður og það er mik­il­vægt að gera það einmitt. Það er stjórn­mál­anna að breyta hlut­unum og leyfa sér að vera laus undan oki hags­muna­tengsla. Þess vegna þarf gagn­sæi en aðgangur að upp­lýs­ingum eykur traust.“

Þor­gerður Katrín segir að fram­tíð­ar­sýn hennar sé ein­föld og skýr. „Ein mesta áskor­unin verður innan stjórn­mál­anna og við ætlum ekki að skor­ast undan henni. Þess vegna munum við ein­blína á þessi mál sem ég hef þegar nefnt og alþjóða­sam­starfið sem við munum leggja gríð­ar­lega áherslu á – sem og nýsköpun.“

Hún bendir á að ferða­þjón­ustan sé gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir íslenskt sam­fé­lag og að hún muni koma aftur. „Hún hjálp­aði okkur að kom­ast í gegnum síð­ustu ár en við gleymdum nýsköp­un­inni. Við klikk­uðum á henni síð­ustu 10 árin.“

Nú vakni rík­is­stjórnin upp við vondan draum í COVID-19. „Við munum þurfa á sterkri ferða­þjón­ustu að halda í fram­tíð­inni, það er ekki spurn­ing og við munum þurfa að efla þjón­ustu­geir­ann aftur en þá verður alþjóða­geir­inn líka að fylgja með. Þar munum við líka þurfa að halda áfram að tala um krón­una; stöð­ug­leika og fyr­ir­sjá­an­leika. Hætta þess­ari rús­sí­ban­areið sem við erum í.“

Þor­gerður Katrín seg­ist vera bjart­sýn á fram­haldið – að það hafi rofað til í stjórn­mál­unum og ekki síður úti í sam­fé­lag­inu. Fólk hafi gert sér grein fyrir því að suma hluti sé hægt að gera sem áður þóttu ómögu­legir. „Þetta þarf ekki að vera svona flókið, eins og það að leggja áherslu á nýsköpun, menn­ingu og listir. En líka að taka risa­skref í umhverf­is­málum. Þetta er ekk­ert flókið,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár