Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi formaður Viðreisnar, segir að þær stjórnarmyndunarviðræður sem gengið hafi best eftir kosningarnar 2016 hafi verið þegar flokkur hans og Björt framtíð ræddu við Samfylkingu og Pírata. „Þar hefðum við náð fram flestum af okkar málum til umbóta í landbúnaði, sjávarútvegi og þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópuumsóknina. En þessir flokkar höfðu bara samanlagt 24 þingmenn af 63. Þegar VG [Vinstri græn] kom inn í viðræðurnar stoppuðu öll þessi mál.“
Viðreisn og Björt framtíð mynduðu á endanum ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokk, sem hafði eins manns meirihluta, í janúar 2017 en sú varð skammlífasta meirihlutastjórn lýðveldistímans og sprakk á endanum í september sama ár vegna uppreist æru-málsins. Björt framtíð þurrkaðist í kjölfarið út og Viðreisn tapaði töluverðu fylgi á meðan að Sjálfstæðisflokkurinn hélt stöðu sinni sem stærsti flokkur landsins og myndaði ríkisstjórn með Vinstri grænum og Framsóknarflokki eftir kosningarnar 2017.
[adspot]Þetta segir Benedikt í umræðum á þræði á Facebook-síðu sinni þar sem hann reynir að svara spurningu Björns Leví Gunnarssonar, þingmanns Pírata, um hvað hafi valdið því að Viðreisn hefði hleypt Sjálfstæðisflokknum aftur í valdastöður eftir kosningarnar haustið 2016. Benedikt segir ekkert einfalt svar við spurningu þingmannsins. „Sjálfstæðisflokkurinn fékk þriðjung þingmanna í kosningunum 2016. Framsókn og VG samtals 18. Það var því augljóst að framsóknarflokkarnir þrír hefðu meirihluta og höfðu örugglega mikla löngun til þess að mynda stjórn saman þá þegar um óbreytt ástand eins og þau gerðu ári síðar. Þegar þannig háttar er stærðfræðilega ómögulegt að mynda meirihlutastjórn án eins þessara stöðnunarflokka. Þetta varð til þess að líklega hafa engar stjórnarmyndunarviðræður tekið jafnlangan tíma í áratugi. Viðreisn og BF voru í stjórnarmyndunarviðræðum til hægri og vinstri í rúmlega tvo mánuði.“
Segir frjálslynt fólk dreifast á marga flokka
Á endanum hafi niðurstaðan, að sögn Benedikts, verið sú að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokki og Bjartri framtíð sem hann vill meina að flokkur hans hafi náð ýmsum góðum málum fram í. Stjórnin hafi hins vegar ekki verið nægilega langlíf til að ljúka þeim.
Benedikt segir að það sé auðvelt að vera alltaf á móti, en í kerfi eins og því íslenska ólíklegt að einn flokkur nái aðstöðu til þess að fá öll sín mál fram. „Við sjáum núna að íhaldsflokkarnir hafa náð saman um ráðherrastólana og halla á ríkissjóði, jafnvel í hagvextinum í fyrra. Frjálslyndishugsjónin á undir högg að sækja, meðal annars vegna þess að frjálslynt fólk dreifist á marga flokka.“

Benedikt hætti sem formaður Viðreisnar í október 2017, skömmu fyrir kosningarnar þá um haustið. Fylgi flokksins mældist þá um 3,3 prósent. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók við formennsku og gegnir henni enn. Viðreisn náði að halda sér inni á þingi í síðustu kosningum, fékk 6,7 prósent atkvæða og fjóra þingmenn, en tapaði rúmlega þriðjungi atkvæða sinna milli ára.
Flokkarnir sem Benedikt segir að hafi náð vel saman í stjórnarmyndunarviðræðum síðla árs 2016, Viðreisn, Samfylking og Píratar, hlutu 28 prósent atkvæða í kosningunum í október 2017. Það var minna fylgi en þeir fengu ári áður. Á þessu kjörtímabili hafa þeir hins vegar ítrekað mælst sameiginlega með á bilinu 36 til 28 prósent fylgi. Í síðustu könnun MMR, sem birt var í apríl 2020, mældist það 36 prósent.
Formaður Samfylkingarinnar hefur ítrekað talað fyrir samstarfi flokkanna
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar sem er stærstur flokkanna þriggja, hefur ítrekað talað fyrir því að þeir myndi kjarna fyrir næstu ríkisstjórn eftir kosningarnar 2021, sem ekki liggur fyrir hvort verði að vori eða hausti.
Í viðtali við Mannlíf í janúar í fyrra sagði Logi að hann vildi ríkisstjórn með Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum. „Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmtilegum og góðum málum á dagskrá ef við myndum mynda ríkisstjórn frá miðju til vinstri þar sem Samfylkingin væri kjölfestuflokkur og við hefðum svo Viðreisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okkur.“
Á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fór fram í mars 2019 sagði hann að Ísland þyrfti ekki jafnvægi Sjálfstæðisflokksins sem byggði á því að örfáir sitja öðru megin á vegasaltinu, með þorra gæðanna en allur almennings héldi jafnvægi hinum megin.
[adspot]Á öðrum flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem haldinn var í október í fyrra fjallaði hann meðal annars um, í ræðu sinni þar, hversu stór tíðindi ný staða Sjálfstæðisflokksins vegna minnkandi fylgis væri og að aðrir flokkar þurfi að bregðast við þessum nýja veruleika sem blasti við í íslenskum stjórnmálum. Hann sagði þetta vera sögulegt tækifæri fyrir Samfylkinguna til að fylkja saman umbótaöflunum í landinu og sýna að það sé til betri valkostur fyrir íslenskan almenning en núverandi ríkisstjórn. „Næsta stóra verkefni okkar er þetta: Við verðum, og segjum það bara skýrt, við verðum að fella þessa ríkisstjórn í kosningunum 2021, til að mynda betri, djarfari og víðsýnni stjórn fyrir fólkið í landinu og komandi kynslóðir - við verðum að rísa undir þeirri ábyrgð.
Í janúar 2020 sagði Logi, í umræðum um stöðuna í stjórnmálum í byrjun árs á Alþingi, að það væri kominn tími til að hætta að láta Sjálfstæðisflokkinn endalaust velja sér nýja dansfélaga eftir kosningar og stjórna eftir eigin geðþótta. „Nú er kominn tími samstilltrar, djarfrar og víðsýnnar stjórnar, án Sjálfstæðisflokksins - fyrir allt fólkið í landinu og komandi kynslóðir. Stjórn sem leggur alla áherslu á ríkara félagslegt réttlæti og hefur á sama tíma meiri sköpunarkraft, framsýni og hugrekki.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir