Helgi Hrafn hellti sér yfir Birgittu á átakafundi Pírata

Myndband hefur verið birt af átaka­fundi Pírata þar sem Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður flokks­ins, gagn­rýndi Birgittu Jóns­dóttur harð­lega.

Á mynd­bands­upp­töku af fundi Pírata, þar sem kosið var í trún­að­ar­ráð flokks­ins, sést Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hella sér yfir Birgittu Jóns­dóttur, sem lengi var helsti tals­maður flokks­ins, og saka hana um óheil­indi.

Trún­að­ar­ráð Pírata hefur þann til­gang að bjóða sátta­miðlun og aðstoða við að lægja öld­urnar þegar það kemur upp ágrein­ingur innan flokks­ins.

Í ræðu sinni sagð­ist hann hafa ára­langa reynslu af því að kynn­ast því frá Birgittu, að henni væri ekki treystandi. „Hún grefur undan sam­herjum sínum ef hún sér af þeim ógn. Hún hótar sam­herjum sínum þegar hún fær ekki það sem hún vill. „Ég vona inni­lega að þess­ari til­nefn­ingu verði hafnað,“ bætti hann við. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þinga­maður Pírata, hélt reiði­lestur um Birgittu Jóns­dóttur, fyrr­ver­andi þing­mann flokks­ins, á fundi Pírata í gær­kvöld. Myndband frá fund­inum, þar sem kosið var í trún­að­ar­ráð flokks­ins, hefur verið birt á net­inu. Birgitta var til­nefnd í trún­að­ar­ráðið en fékk ekki kosn­ingu.

Eins og greint var frá fyrr í dag, þá var til­nefn­ingu Birgittu hafnað með afger­andi hætti, en af 68 atkvæðum þá greiddu 55 á móti og 13 með.

Birgitta hefur sjálf sagt, í við­tali við mbl.is, að hún hafi upp­lifað fund­inn sem mann­orðs­morð, og það hafi ekki verið fal­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár