Mynd: Bára Huld Beck

Ríkisstjórnin sem vill halda áfram, en mun mögulega ekki geta það

Stjórn­mála­flokk­arnir vega nú og meta hvenær þeir eru lík­legir til að hámarka árangur sinn í kosn­ingum. Og eru fyrir nokkuð löngu síðan farnir að máta sig í næstu rík­is­stjórn. Þar virð­ast, eins og er, aðal­lega vera tveir skýrir val­kostir á borð­inu.

Frá árinu 2007 hefur það gerst einu sinni að rík­is­stjórn á Íslandi hefur setið heilt kjör­tíma­bil. Sú tók við völdum 2009, fyrsta hreina tveggja flokka vinstri­st­jórnin, og skil­aði sér yfir enda­lín­una 2013 sem minni­hluta­stjórn.

Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, sem var fyrst mynduð í febr­úar 2009 sem minni­hluta­stjórn, er líka eina rík­is­stjórn eft­ir­hrunsár­anna sem hefur tek­ist að bæta við sig fylgi í næstu kosn­ingum eftir að hún var mynduð. Þær fóru reyndar fram tæpum þremur mán­uðum eftir að rík­is­stjórnin varð til í febr­úar 2009. Í næstu kosn­ingum á eftir upp­lifðu Sam­fylk­ingin og Vinstri græn mesta afhroð sem rík­is­stjórn í lýð­veld­is­sög­unni hefur orðið fyrir, þegar rúm­lega helm­ingur fylgis þeirra leit­aði annað.

Því hafa allar rík­is­stjórnir sem mynd­aðar hafa verið frá 2009 fallið í næstu kosn­ingum á eftir.

Leikjafræði vegna COVID-áhrifa

Yfir­stand­andi kjör­tíma­bili lýkur á næsta ári. Óljóst er á þess­ari stundu hvort kosið verði að vori eða hausti. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í við­tali við Kjarnann í síð­asta mán­uði að hún væri ekk­ert farin að hugsa út í dag­setn­ingar í þeim efnum en að fyrir lægi lof­orð um sam­tal um það á vett­vangi Alþingis í sumar. Allir stjórn­mála­flokkar sem ætla sér áfram­haldi til­veru á Alþingi ættu því að vera með skýra hug­mynd um hvenær næst verði kosið þegar næsti þing­vetur hefst. Og sam­hliða mun upp­taktur að kosn­inga­bar­áttu hefj­ast.

Aðstæður hér­lendis, og um allan heim, hafa breyst hratt vegna heims­far­ald­urs­ins sem nú geisar. Á örfáum vikum hefur efna­hags­legu ástandi Íslands verið snúið á haus, atvinnu­leysi bætt öll fyrri met og allt stefnir í mörg hund­ruð millj­arða króna halla á rekstri rík­is­sjóð á næstu tveimur árum. Áhrifin af áfall­inu eru þegar komin fram að ein­hverju leyti, en munu koma frekar fram að fullum krafti þegar líður á árið og upp­sagn­ar­frestir renna út með til­heyr­andi skerð­ingu á ráð­stöf­un­ar­tekjum mörg þús­und fjöl­skyldna.

Slæmt efna­hags­á­stand vinnur sjaldn­ast með sitj­andi stjórn­völdum í kosn­ingum. Fyrir sitj­andi rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks­ins eru því krefj­andi tímar framundan.

Allir stjórnarflokkarnir hafa tapað fylgi

Í könnun sem Zenter gerði fyrir Frétta­blaðið, og birt var seint í júní, var staðan þannig að allir stjórn­ar­flokk­arnir hafa þegar tapað fylgi frá því í kosn­ing­unum 2017, þegar þeir fengu 52,9 pró­sent atkvæða. Þeir mæld­ust þar með sam­an­lagt 41,8 pró­sent fylgi, sem myndi ekki duga til að mynda meiri­hluta jafn­vel þótt að hátt í tíu pró­sent atkvæða myndu falla niður dauð.

Samkvæmt könn­un­inni hafa flokk­arnir þrír sam­an­lagt tapað rúm­lega fimmt­ungi af fylgi sínu það sem af er kjör­tíma­bili. Í síð­ustu könnun Gallup mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi þeirra ívið hærra en hjá Zenter, eða 46,2 pró­sent en minna, 41,5 pró­sent, hjá MMR.

Sjálfstæðisflokkur kemur best út úr óvenjulegu samstarfi

Allar kann­anir nú gefa það til kynna að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé sá rík­is­stjórn­ar­flokkur sem geti best við unað eftir næstum þriggja ára sam­starf. Fylgi hans mælist á bil­inu 23,1 til 24,3 pró­sent í nýj­ustu könn­unum ofan­greindra þriggja könn­un­ar­fyr­ir­tækja, en flokk­ur­inn fékk 25,3 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Hann hefur ein­ungis einu sinni náð því að fara yfir það fylgi í könn­unum Gallup á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, í októ­ber 2018, og skaust upp yfir 27 pró­sent hjá MMR í fyrstu könnun eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, en seig fljótt aftur niður á þær slóðir sem hann hefur að mestu verið á kjör­tíma­bil­inu. Um tíma mæld­ist fylgið undir 20 pró­sent, sem er nán­ast eins­dæmi í sögu flokks­ins.

Fyrir nokkrum árum voru Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson samherjar í ríkisstjórn. Nú virðast þeir vera að berjast um laust fylgi, aðallega í eldri kjósendahópum.
Fyrir nokkrum árum voru Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sam­herjar í rík­is­stjórn. Nú virð­ast þeir vera að berj­ast um laust fylgi, aðal­lega í eldri kjós­enda­hópum.

Það virð­ist vera nokkuð sterk fylgni milli fylg­is­þró­unar hjá Sjálf­stæð­is­flokknum ann­ars vegar og Mið­flokknum hins vegar. Þegar Mið­flokk­ur­inn bætir við sig, þá dregst fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins saman, og öfugt. Mið­flokk­ur­inn virð­ist tala skýrt til íhalds­sama og þjóð­ern­is­lega arms Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það sást til að mynda vel á grein­ingum sem Kjarninn gerði úr gögnum MMR seint á síð­asta ári þar sem kom fram að Mið­flokk­ur­inn virt­ist ná vel til fyrr­ver­andi kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks í eldri ald­urs­hópum og á ákveðnum svæðum á lands­byggð­inni.

Breytt afstaða Morgunblaðsins

Þessi staða birt­ist líka í auknu fylg­islagi Morg­un­blaðs­ins, sem ára­tugum saman hefur gengið að mestu í takti við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, við Mið­flokk­inn og hans áherslur. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í við­tali við Mannlíf seint í maí að sumt af því sem lögð sé áhersla á í Morg­un­blað­inu komi honum á óvart. „Mér finnst Morg­un­blaðið heilt yfir almennt vera að tala fyrir til dæmis efna­hags­stefnu sem er lík­leg til árang­urs en mér finnst alveg hafa verið dæmi um áherslur í blað­inu sem ég finn ekki sam­leið með­.“ Ekki væru mikil sam­skipti milli hans og Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Gagnrýni á Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rit­stjórn­ar­greinum hefur auk­ist veru­lega á und­an­förnum árum.

Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, þykir hallur undir málflutning Miðflokksins á síðustu árum.
Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þykir hallur undir mál­flutn­ing Mið­flokks­ins á síð­ustu árum.

Skýrasta dæmið um þetta birt­ist í Reykja­vík­ur­bréfi sem birt var í júní í fyrra. Þar skrif­aði Dav­íð, í bréfi þar sem umfjöll­un­­ar­efnið var að upp­i­­­stöðu Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn, meint fjar­lægð hans frá kjós­­endum sínum og þriðji orku­­pakk­inn, að Morg­un­blaðið væri „borg­­ara­­legt blað og þótt það lúti ekki fjar­­stýr­ingum utan úr bæ frá flokkum eða ein­stak­l­ingum lætur að líkum að blaðið ætti oftar en ekki að geta átt góða sam­­leið með flokknum ef hann er sjálfum sér sam­­kvæmur og heill í fögrum fyr­ir­heitum sín­­um.“

Þetta rof á sam­bandi flokks og blaðs hefur einnig birt­ist í hina átt­ina. Það vakti til að mynda mikla athygli í maí í fyrra, þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn varð 90 ára, að for­maður hans ákvað að birta afmæl­is­­grein í Frétta­­blað­inu ekki Morg­un­­blað­inu. Sú ákvörðun þótti senda skýr skila­­boð um hvernig for­­mað­­ur­inn teldi sam­­band flokks­ins við gamla mál­­gagnið standa.

Ekki margir slóðar að völdum í boði

Ef nið­ur­staða kann­ana kæmi upp úr kjör­köss­unum gæti vel farið svo að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengi sína verstu nið­ur­stöðu í kosn­ingum frá upp­hafi, og fengið minna en í vor­kosn­ing­unum 2009, þegar 23,7 pró­sent lands­manna kusu flokk­inn í fyrstu kosn­ingum eftir hrunið.

Vert er þó að benda á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur haft til­hneig­ingu til að fá meira fylgi þegar talið er upp úr kjör­köss­unum en í mörgum síð­ustu könn­unum sem birtar hafa verið fyrir kosn­ingar hafa bent til á und­an­förnum árum.

Þótt Bjarni Bene­dikts­son, sem hefur verið for­maður flokks­ins frá árinu 2009, hafi ekki stað­fest að hann verði áfram í fram­boði til for­manns á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem fram fer í nóv­em­ber næst­kom­andi þá bendir allt til þess að svo verði.

Bjarni sagði til að mynda í við­tali í Silfrinu seint í febr­úar, skömmu áður en að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á Íslandi, að hann lang­aði til þess að halda áfram. „Hvað getur verið meira ­spenn­andi í líf­inu en að fást við það að móta fram­tíð lands og þjóðar og ver­a að leggja á borðið til­lög­ur? Ég get ekki séð neitt annað sem gæti ver­ið ­merki­legra og skemmti­legra að ger­a.“

Bjarni er í þriðja sæti yfir þá for­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem setið hafa lengst.

Frekari breyt­ingar á fram­línu flokks­ins, sér­stak­lega með kosn­ingu Þordísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur í vara­for­manns­emb­ætti, og með auknum fram­gangi Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur sem varð ráð­herra í fyrra tæp­lega 29 ára gömul, virð­ist ekki vera að skila auknu fylgi hjá yngri eða frjáls­lynd­ari kjós­endum, en þær spila báðar til að mynda mun umfangs­meiri sam­fé­lags­miðla­leik en flestir kollegar þeirra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hjá sumum eldri og íhalds­sam­ari flokks­mönnum hefur fram­gangur þeirra verið gagn­rýndur nokkuð harka­lega, og farið niðr­andi orðum um hann.

Allra flokka bestur í að tryggja aðgengi að áhrifum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er heldur ekki með marga sýni­lega slóða að meiri­hluta­sam­starfi, annan en þann að sitj­andi rík­is­stjórn haldi velli. Sam­fylk­ingin og Píratar hafa með öllu úti­lokað sam­starf með flokknum og skil­greina hann sem vanda­málið í íslenskum stjórn­málum. Einn mögu­leiki væri að kippa Mið­flokknum með og mynda fjög­urra flokka rík­is­stjórn með núver­andi stjórn­ar­flokkum, en við­mæl­endur Kjarnans innan bæði Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins segja að það sé póli­tískur ómögu­leiki.

Sömu­leiðis segja við­mæl­endur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins litlar líkur á því að núver­andi for­ysta flokks­ins hefði áhuga á að end­ur­nýja stjórn­ar­sam­starf við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, eftir allt sem gekk á árunum 2013 til 2016, þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. Flokk­ur­inn hefur þó sýnt að hann er allra flokka bestur í að taka kalda hags­muna­drifna ákvörðun um mögu­legt sam­starf þegar búið er að telja upp úr kjör­köss­unum til að tryggja aðgengi að áhrifum. Fyrsti val­kostur Sjálf­stæð­is­manna yrði samt sem áður alltaf sá að geta haldið áfram því sam­starfi sem nú er.

Líða fyrir samstarfið við ætlaðan höfuðóvin

Vinstri græn fengu 16,9 pró­sent atkvæða í haust­kosn­ing­unum 2017 og ljóst var að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður flokks­ins, var óskak­andi­dat ansi margra í starf for­sæt­is­ráð­herra. Um var að ræða næst besta árangur flokks­ins í kosn­ingum frá upp­hafi. Bestum árangri náði flokk­ur­inn í eft­ir­hruns­kosn­ing­unum 2009 sem skil­aði honum í einu tveggja flokka hreinu vinstri­st­jórn lýð­veld­is­sög­unnar með Sam­fylk­ing­unni.

Ákvörðun Vinstri grænna að mynda rík­is­stjórn með íhalds­flokk­unum Sjálf­stæð­is­flokki, sem hafði verið skil­greindur sem helsti póli­tíski and­stæð­ingur vinstri­manna árum saman, og Fram­sókn­ar­flokki, yrði alltaf umdeild. Nokkur fjöldi ákvað að yfir­gefa flokk­inn og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hans Drífa Snædal, sem í dag er for­seti ASÍ, var þar á meðal. Hún lét þau frægu orð falla sam­hliða að stjórn­ar­sam­starfið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­­tíma­bil, ef stjórnin end­ist svo lengi. Með ákvörð­un­inni um stjórn­­­ar­við­ræður setti flokk­inn nið­­ur, trú­verð­ug­­leik­inn laskað­ist veru­­lega og vinstrið á Íslandi mun eiga erfitt upp­­­dráttar næstu árin og ára­tug­ina.“ Á meðal ann­arra sem for­dæmdu ákvörð­un­ina, og lögð­ust gegn henni, var ung­liða­hreyf­ing flokks­ins. Í yfir­lýs­ingu hennar sagði meðal ann­ars: „Við getum ekki sam­þykkt síend­ur­teknar lygar, spill­ingu og frænd­hygli.“

Drífa Snædal, nú einn áhrifamesti verkalýðsleiðtogi landsins, sagði sig úr Vinstri grænum þegar fyrir lá að flokkurinn ætlaði í stjórnarsamstarf við Sjálstæðisflokkinn.
Drífa Snædal, nú einn áhrifa­mesti verka­lýðs­leið­togi lands­ins, sagði sig úr Vinstri grænum þegar fyrir lá að flokk­ur­inn ætl­aði í stjórn­ar­sam­starf við Sjál­stæð­is­flokk­inn.

Tveir þing­menn Vinstri grænna ákváðu svo ekki að styðja rík­is­stjórn­ina og annar þeirra, Andrés Ingi Jónsson, sagði sig úr þing­flokki Vinstri grænna í nóv­em­ber í fyrra.

Fylgi Vinstri grænna hefur ein­ungis einu sinni farið yfir kjör­fylgi í könn­unum á kjör­tíma­bil­inu, í könnun Gallup sem gerð var í des­em­ber 2017, nokkrum dögum eftir að rík­is­stjórnin var form­lega mynduð.

Í síð­ustu könn­unum Zenter, MMR og Gallup mælist fylgi flokks­ins á bil­inu 10,7 til 13,6 pró­sent. Minnst í könnun MMR en mest í könnun Gallup. Ef neðri mörkin í því bili yrði nið­ur­staðan – en fylgi flokks­ins hefur að uppi­stöðu verið að mæl­ast á bil­inu 10 til 13 pró­sent á kjör­tíma­bil­inu – myndi það þýða að um 37 pró­sent af fylgi Vinstri grænna hefði horfið frá því í síð­ustu kosn­ingum. Fylgis­tapið virð­ist aðal­lega ætla að eiga sér stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem vinstri­s­inn­aðra og frjáls­lynd­ara fylgi flokks­ins hefur verið, en í íhalds­sam­ari vígum, sér­stak­lega í norð­austur- og norð­vest­ur­kjör­dæmi, ríkir meiri ánægja með yfir­stand­andi stjórn­ar­sam­starf. 

Líður vel í íhaldssamri ríkisstjórn

Fram­línu­sveit flokks­ins í kosn­ing­unum á næsta ári liggur nokkurn veg­inn fyrir. Katrín Jak­obs­dóttir, sem er enn enn sá ráð­herra sem flestir lands­menn eru ánægðir með, verður áfram for­maður og leiðir flokk­inn inn í þær. Hún verður líka for­sæt­is­ráð­herra­efni sama í hvora átt­ina flokk­ur­inn þarf að halla sér til að halda völdum; í átt að íhalds­blokk­inni sem hann situr nú með í rík­is­stjórn eða í átt að frjáls­lyndu miðju­flokk­unum sem vilja búa til rík­is­stjórn með sam­bæri­legri áferð og sá meiri­hluti sem nú situr í Reykja­vík­ur­borg.

Nýr vara­for­maður, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, var kjör­inn seint á síð­asta ári. Ekki eru sjá­an­legar neinar stórar vend­ingar á helstu fram­línu­stöðum, þótt óvissa ríki um hvort Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir muni leiða flokk­inn áfram í Kraganum, þar sem flokk­ur­inn bætti við sig fylgi í síð­ustu kosn­ingum, í ljósi þess að hún hefur ekki stutt rík­is­stjórn­ina og í meira að segja gagn­rýnt hana opin­ber­lega á stundum. Finna þarf odd­vita­sæti fyrir nýja vara­for­mann­inn og lík­legt þykir að hann horfi til Kragans.

Flestir við­mæl­endur innan stjórn­ar­and­stöð­unnar eru sann­færðir um að vilji Vinstri grænna standi til þess að við­halda því stjórn­ar­sam­starfi sem nú er við lýði. Þeir benda meðal ann­ars á orð Katrínar á 90 ára afmæl­is­há­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fyrra þar sem hún sagði að Bjarni Bene­dikts­son væri einn besti sam­starfs­maður sem hún hefði nokkurn tím­ann haft.

Flokks­for­ystan mun þó ganga óbundin til kosn­inga. Það verður gert til að halda öðrum leiðum að völdum opnum ef nið­ur­staða kosn­ing­anna verða þær að rík­is­stjórnin sé fallin.

Vinstri græn virð­ast vera búin að taka við gamla Fram­sókn­ar­hlut­verk­inu í íslenskum stjórn­málum, sem í felst að sitja á grind­verk­inu og geta horft til allra átta í leit að rík­is­stjórn­ar­að­ild, að minnsta kosti á meðan að gamli Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er að mæl­ast með jafn lítið fylgi og raun ber vitni.

Tilvistarkreppa Framsóknarflokksins

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sá stjórn­ar­flokk­anna sem er í mestum vanda. Flokk­ur­inn hefur notið þess sögu­lega að geta setið á miðju íslensks stjórn­mála­lands­lags og litið til vinstri eða, og mun oftar, til hægri eftir sam­starfs­fé­laga þegar búið er að telja upp úr kjör­köss­unum.

Hnignun hans hófst af alvöru 2007 þegar flokk­ur­inn fékk ein­ungis 11,7 pró­sent atkvæða, sem þá var það lægsta sem hann hafði nokkurn tím­ann fengið. Snemma árs 2009 tók Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son við for­mennsku í flokknum og gjör­breytti honum. Áherslur urðu mun popúl­ísk­ari, á stórar og ein­faldar lausnir á flóknum vanda­málum. Undir hans stjórn vann flokk­ur­inn stór­sigur í kosn­ing­unum 2013 á baki nið­ur­stöð­unnar í Icesave mál­inu, sem flokk­ur­inn eign­aði sér að stórum hluta, og lof­orðum um að leið­rétta verð­tryggð lán sem tekin höfðu verið í kringum hrunið með tug­millj­arða króna milli­færslu úr rík­is­sjóði. Alls fékk Framsókn 24,4 pró­sent í þeim kosn­ingum.

Þegar kosið var 2016 hafði átt sér stað blóð­ugt for­manns­upp­gjör milli Sig­mundar Davíðs og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, núver­andi for­manns, með sigri hins síð­ar­nefnda. Nýtt met var sett í lágu fylgi og það met bætt í kosn­ing­unum ári síðar, eftir að Sig­mundur Davíð hafði klofið flokk­inn og stofnað Mið­flokk­inn, þegar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk ein­ungis 10,7 pró­sent atkvæða. Til að gera stöð­una verri fékk flokk­ur­inn 319 færri atkvæði en Mið­flokk­ur­inn.

En hann var samt sem áður í gömlu góðu odda­stöð­unni, sökum þess hversu víða atkvæði dreifð­ust. Og valdi að fara frekar með Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokki en að mynda fimm flokka stjórn frá miðju til vinstri.

Reykjavíkurafhroðið

Síðan þá hefur fylgi flokks­ins, með skamm­vinnri und­an­tekn­ingu í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins svo­kall­aða, haldið að mestu áfram að síga.

Staða Lilju D. Alfreðsdóttur er flókin. Hún er á meðal þeirra ráðherra sem eru best liðnir en það skilar sér ekki í auknu fylgi flokks hennar. Fylgið er sérstaklega lítið á hennar heimavelli, í höfuðborginni Reykjavík.
Staða Lilju D. Alfreðs­dóttur er flókin. Hún er á meðal þeirra ráð­herra sem eru best liðnir en það skilar sér ekki í auknu fylgi flokks hennar. Fylgið er sér­stak­lega lítið á hennar heima­velli, í höf­uð­borg­inni Reykja­vík.

Í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018 beið flokk­ur­inn afhroð. Hann fékk 3,2 pró­sent atkvæða og náði ekki inn manni í Reykja­vík. Í ljósi þess að um er að ræða kjör­dæmi vara­for­manns­ins Lilju D. Alfreðs­dóttur, og þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er rúm­lega 100 ára gam­all flokkur með sterka inn­viði og mikla reynslu af kosn­ingum, var nið­ur­staðan veru­legt áhyggju­efni.

Rifja má upp að Halldór Ásgríms­son heit­inn, þáver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ákvað að draga sig í hlé úr stjórn­málum í kjöl­far borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna 2006, þegar Framsókn fékk 6,1 pró­sent atkvæða. Halldór sagði meðal ann­ars að hann væri að axla ábyrgð á lélegri stöðu flokks­ins í þeim kosn­ingum með því að stiga til hliðar.

2018 var fylgi flokks­ins næstum helm­ingur þess sem ýtti Halldóri út úr stjórn­málum.

Í síð­ustu könnun MMR, sem birt var í lok síð­asta mán­aðar mæld­ist fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins 6,1 pró­sent. Yrði það nið­ur­staða kosn­inga myndi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verða minnsti flokk­ur­inn sem næði manni inn á þing og um væri að ræða lang­verstu nið­ur­stöðu hans í kosn­ingum frá því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var stofn­aður 1916. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í síð­ustu könnun MMR var enn fremur það minnsta sem flokk­ur­inn hefur mælst með á þessu kjör­tíma­bili. Staðan í könn­unum Gallup (8,6 pró­sent) og Zenter (7,2 pró­sent) er lítið eitt skárri. Í grein­ingum sem Kjarninn gerði út fram ítar­efni úr könn­unum MMR seint á síð­asta ári kom í ljós að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er í mestum vanda með að ná til yngri kjós­enda og þeirra sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Leiðtogauppgjör talið ólíklegt sem stendur

Sigurður Ingi til­kynnti nýverið að hann ætli sér að leiða flokk­inn áfram í gegnum næstu kosn­ingar. Það gerði hann á mið­stjórn­ar­fundi 18. júní síð­ast­lið­inn. Lilja, sem er vin­sæl­asti ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ekk­ert gefið upp enn um sín áform, en við­mæl­endur Kjarnans í Fram­sókn­ar­flokknum og öðrum stjórn­mála­flokkum á und­an­förnum árum hafa búist við því að hún myndi, á ein­hverjum tíma­punkti, gera atlögu að for­manns­stólnum. Sú leið virð­ist þyrnum stráð í dag af nokkrum ástæðum.

Í fyrsta lagi virð­ast flestir þeirra sem eru ánægðir með störf hennar sem ráð­herra ekki hafa nokkurn hug á því að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn. Í öðru lagi þá úrskurð­aði kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála nýverið að Lilja hefði brotið gegn jafn­rétt­islögum þegar hún réð Pál Magn­ús­son sem ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Páll hefur um ára­bil gegn trún­­að­­ar­­störfum fyrir Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn en hann var vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í tvö kjör­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­ar­maður Val­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þá bauð hann sig fram til for­manns árið 2009.

Í kjöl­farið fjöll­uðu fjöl­miðlar um for­mann hæf­is­nefnd­ar­innar sem fjall­aði um ráðn­ingu ráðu­neyt­is­stjór­ans. Formaður hennar er lög­fræð­ing­ur­inn Einar Hugi Bjarna­son, sem Lilja hefur á tveggja og hálfs starfs­tíma sínum í ráðu­neyt­inu, valið til margra trún­að­ar­starfa. Ráðu­neytið hefur á þeim tíma greitt Einari Huga alls 15,5 millj­ónir króna fyrir lög­fræði­ráð­gjöf og nefnd­ar­setu á vegum ráðu­neyt­is­ins. Ekki skán­aði áferð máls­ins þegar Lilja ákvað að stefna kon­unni sem kærði ráðn­ing­una til kæru­nefnd­ar­innar, og nefndin taldi að brotið hefði verið á. Það gerir ráð­herr­ann til að reyna að fá úrskurð nefnd­ar­innar ógildan.

Í þriðja lagi hefur staða Lilju innan rík­is­stjórn­ar­innar verið veik. Við­mæl­endur Kjarnans segja að sumir sam­ráð­herr­anna, og ýmsir þing­menn sam­starfs­flokk­anna, finn­ist Lilja spila of mikla ein­leiki í ýmsum málum. Þar hafa helst verið nefnd til sög­unnar Mennta­sjóður náms­manna og frum­varp um upp­setn­ingu á styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla. Síðara málið hefur setið fast í nefnd frá því í des­em­ber eftir að hafa áður taf­ist mán­uðum saman vegna and­stöðu hluta stjórn­ar­þing­manna. Þá fékk hún harða gagn­rýni frá sam­starfs­ráð­herrum í apríl eftir að hafa sagt í hlað­varpi að for­senda þess að hægt verði að opna landið aftur fyrir inn­streymi ferða­manna væri að það fynd­ist bólu­efni gegn kór­ónu­veirunni.

Í fjórða lagi virð­ist Sigurður Ingi telja nokkuð víst að hann eigi meiri­hluta­stuðn­ing vísan á meðal þeirra sem velja for­mann flokks­ins á flokks­þingi.

Ákveði Lilja að hún geti ekki sigrað Sigurð Inga virð­ist ein­boðið að hún bjóði aftur fram í Reykja­vík, þar sem flokk­ur­inn stendur afar illa, í næstu kosn­ingum.

Áður en að Lilja hóf beina stjórn­mála­þátt­töku var hún aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri skrif­stofu Seðla­banka­stjóra og alþjóða­sam­skipta. Þegar hún sett­ist á þing í lok októ­ber 2016 fór hún allt að fimm ára leyfi frá því starfi, á grund­velli fjórðu greinar laga um þing­far­ar­kaup og þing­far­ar­kostn­að. Því leyfi lýkur því haustið 2021 og Lilja þarf að taka ákvörðun um það hvort hún snýr aftur í sitt gamla starf fyrir þann tíma.

Þurfa mögulega að finna nýja slóða

Þegar allt er talið til er nokkuð mik­ill sam­hljómur milli við­mæl­enda Kjarnans að allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír sjái áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starf þeirra sem sinn fyrsta val­kost eftir næstu kosn­ingar.

Því fer þó fjarri að slík þriggja flokka stjórn verði raun­hæfur mögu­leiki og þá verður annað hvort að horfa til þess að bæta fjórða flokknum við eða flokk­arnir þrír verða að finna sér nýja slóða í átt að völdum.

Erfitt er að sjá hvaða flokkur ætti að vera til­bú­inn að hoppa um borð. Mið­flokk­ur­inn væri lík­lega opinn fyrir því en það er svo­kall­aður „póli­tískur ómögu­leiki“ eins og mál standa í dag, vegna sam­skipta­sögu Sigurðar Inga og Sig­mundar Davíðs. Auk þess segja við­mæl­endur innan bæði Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna að þar sé eng­inn áhugi á slíku sam­starfi.

Viðreisn er lík­lega eini val­kost­ur­inn af frjáls­lyndu miðju­flokk­unum þremur sem gæti fyllt það hlut­verk en lík­urnar á því, sér­stak­lega í ljósi þess hvernig fór fyrir flokknum í stjórn­ar­sam­starf­inu á árinu 2017, eru jafn­vel minni en á inn­komu Mið­flokks­ins.

Vinstri græn eru í bestri stöðu stjórn­ar­flokk­anna þriggja að feta nýjan valda­slóða.

Um það verður fjallað í grein morg­un­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár