Mynd: Birgir Þór Harðarson

Áferð kjósenda íslenskra stjórnmálaflokka

Hverjir eru það sem kjósa hvaða stjórn­mála­flokka? Og eiga kjós­endur innan hverrar blokkar eitt­hvað sér­stakt sam­eig­in­legt? Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda.

Miklar breyt­ingar hafa orðið á íslensku stjórn­mála­lands­lagi á und­an­förnum ára­tug. Þjóðin hefur snúið baki við kerfi sem byggði á fjór­flokki, sem rað­aði sér frá vinstri til hægri á hinum klass­íska póli­tíska skala, og svo stundum einum í við­bót sem end­ur­spegl­aði oftar en ekki stemn­ing­una í sam­fé­lag­inu á þeim tíma.

Síðustu árin hefur fylgi fjór­flokks­ins hrunið úr því að vera að jafn­aði yfir 90 pró­sent í 62-65 pró­sent í síð­ustu tveimur kosn­ingum sem fram hafa farið. Tími sterkra tveggja flokka rík­is­stjórna virð­ist lið­inn og í síð­ustu kosn­ingum náðu átta flokkar á þing. Í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík í fyrra urðu þeir jafn margir, þegar Sós­í­alista­flokkur Íslands tók sæti Fram­sókn­ar­flokks­ins á meðal átt­flokks­ins. Í þeim kosn­ingum voru heilir 16 flokkar á kjör­seðl­inum.

Á þessu tíma­bili hefur íslenskt sam­fé­lag breyst umtals­vert. Lands­mönnum hefur alls fjölgað um 42.480 frá byrjun árs 2010, eða um 13,3 pró­sent.

Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað mest, en fjöldi þeirra hefur farið úr rúm­lega 20 þús­und í tæp­lega 47 þús­und á átta og hálfu ári. Þótt þeir hafi ekki allir kosn­inga­rétt þá breytir það miklu þegar hlut­fall slíkra fer úr því að vera 6,7 pró­sent af heildar­í­búa­fjölda lands­ins í að vera 13 pró­sent hans, líkt og var um mitt þetta ár.

Ald­urs­sam­setn­ingin hefur líka breyst umtals­vert. Lands­mönnum sem eru 0 til 29 ára hefur til að mynda fjölgað um 5,7 pró­sent á þessu tíma­bili en þeim sem eru eldri en 70 hefur fjölgað um 27 pró­sent.

Þeim sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur líka fjölgað hlut­falls­lega og þegar suð­vest­ur­hornið er allt talið saman: Höf­uð­borg­ar­svæðið, frá Árborg, upp á Akranes og öll Suð­ur­nesin, þá liggur fyrir að um þrír af hverjum fjórum íbúum lands­ins búa á því svæði.

Hlutfall háskóla­mennt­aðra á meðal þjóð­ar­innar hefur líka tekið stakka­skiptum. Í lok árs 2017 voru til að mynda 42,4 pró­sent þeirra sem hér bjuggu á aldr­inum 25 til 64 ára með háskóla­próf sem æðstu menntun. Í lok árs 2010 var það hlut­fall 32,6 pró­sent. Hlutfall þeirra sem til­heyra sama ald­urs­hópi sem hafa ein­ungis lokið grunn­skóla­prófi hefur að sama skapi fallið úr 29,3 pró­sent í 22,8 pró­sent.

Þá hefur traust til íslenskra stofn­ana ekki náð sér á strik eftir að það gjör­sam­lega hrundi ásamt nokkrum bönkum haustið 2008, og mælist nú 18 pró­sent gagn­vart Alþingi.

Kannanir sýna að hið nýja stjórn­mála­lands­lag er að festa sig í sessi. Og afar lík­legt verður að telj­ast að blokka­mynd­anir, þar sem flokkar með ein­hverja sam­eig­in­lega heild­ar­lífs­sýn mynda banda­lög í aðdrag­anda kosn­inga, líkt og hefur tíðkast á öðrum Norð­ur­löndum.

Eins og staðan er í dag mætti segja að þær blokkir sem teikn­ast hafa upp séu þannig að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir ólíku: Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn, myndi eina slíka, frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir í stjórn­ar­and­stöðu (Sam­fylk­ing, Viðreisn og Píratar) aðra og Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins mál­efna­lega þá þriðju, þótt flokk­arnir tveir muni lík­lega aldrei geta unnið saman vegna per­sónu­legs ágrein­ings sem á rætur sínar að rekja í Klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða.

En hverjir eru það sem kjósa þessa flokka? Og eiga kjós­endur innan hverrar blokkar eitt­hvað sér­stakt sam­eig­in­legt? Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er.

Fylgi flokka mælt 12. ágúst til 16. september 2019:

  • Fram­sókn­ar­flokkur 11,1 pró­sent
  • Sjálf­stæð­is­flokkur 18,7 pró­sent
  • Sam­fylk­ingin 15,8 pró­sent
  • Vinstri græn 12,2 pró­sent
  • Píratar 11,8 pró­sent
  • Viðreisn 9,8 pró­sent
  • Flokkur fólks­ins 4,1 pró­sent
  • Mið­flokk­ur­inn 12,5 pró­sent
  • Sós­í­alista­flokkur Íslands 1,6 pró­sent
  • Annað 1,6 pró­sent

Ríkisstjórnarblokkin: Samanlagt fylgi: 41,9 prósent

D (18,7 prósent fylgi): Með háar tekjur, litlar áhyggjur af spillingu en telja efnahagsástandið gott

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enn stærsti flokkur lands­ins þótt fylgi hans hafi fallið hratt und­an­farin miss­eri og aldrei mælst jafn lágt í könn­unum MMR og það gerir nú um stundir. Þegar nið­ur­stöður kann­ana fyr­ir­tæk­is­ins í ágúst og sept­em­ber eru lagðar saman kemur fram að stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn mælist 18,7 pró­sent.

Flokk­ur­inn hefur sögu­lega verið mjög sterkur á meðal eldri kjós­enda. Þannig er staðan ekki lengur og virð­ist sem tölu­verður fjöldi þeirra sem til­heyra elstu ald­urs­hóp­unum hjá kjós­endum hans hafi nú leitað á önnur mið, aðal­lega til Mið­flokks­ins. Nú er stuðn­ingur við flokk­inn nokkuð dreifður milli ald­urs­hópa og eng­inn sér­stakur sem sker sig úr.

Sama má segja um stuðn­ing við flokk­inn milli lands­hluta. Mestur er stuðn­ing­ur­inn á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, þar sem 24,1 pró­sent kjós­enda seg­ist ætla að kjósa gamla turn­inn. Það vekur hins vegar athygli að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur minnst stuðn­ings í Suð­ur­kjör­dæmi, þar sem hann sögu­lega hefur verið mjög sterkur. Þar hefur fylgni við flokk­inn dreg­ist hratt saman. Í maí sögð­ust til að mynda 26 pró­sent kjós­enda þar styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en nú er það hlut­fall 15,6 pró­sent.

Það sem helst ein­kennir kjós­enda­hóp Sjálf­stæð­is­flokks­ins er að stuðn­ingur við hann eykst merkj­an­lega eftir því sem tekjur hækka. Þannig nýtur flokk­ur­inn minnst stuðn­ings í hópi þeirra sem eru með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur, 11,9 pró­sent, og er með fjórða mesta fylgi allra flokka hjá þeim hópi. Stuðn­ing­ur­inn er hins vegar mestur hjá þeim sem eru með yfir 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í heim­il­is­tekjur, alls 25,4 pró­sent, og hjá þeim hópi er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn langstærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins.

Fyrri kann­anir MMR á ýmsum álita­málum mann­legrar til­veru hafa sýnt að kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa minnstar áhyggjur allra kjós­enda að spill­ingu í fjár­málum og/eða stjórn­málum og minnstar áhyggjur allra að fátækt eða félags­legum ójöfn­uði. Þeir eru hins vegar lík­leg­astir allra til að telja efna­hags­stöð­una á Íslandi góða, en 87 pró­sent kjós­enda flokks­ins höfðu þá skoðun sam­kvæmt könnun sem fram­kvæmd var fyrr á þessu ári. Þá eru Sjálf­stæð­is­menn lík­legri en kjós­endur ann­arra flokka til að vera fylgj­andi veggjöldum.

V (12,2 prósent fylgi) Konur, grænmetisætur sem hafa áhyggjur af hlýnun jarðar en horfa lítið á Netflix

Flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur er sá rík­is­stjórn­ar­flokkur sem goldið hefur mest fyrir hið óvenju­lega rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Sam­an­lagt fylgi hans í ágúst og sept­em­ber mælist 12,2 pró­sent, sem þýðir að hátt í þriðj­ungur af fylgi flokks­ins er horf­inn frá síð­ustu kosn­ingum.

Tölur MMR sýna að konur eru mun lík­legri en karlar til að kjósa Vinstri græn. Stuðn­ingur hans er lang­mestur á Norð­ur­landi þar sem hann mælist stærstur allra flokka með 18,4 pró­sent stuðn­ing á heima­slóðum fyrr­ver­andi for­manns­ins Stein­gríms J. Sig­fús­sonar. Eina lands­svæðið utan þess þar sem fylgið er í takt við heild­ar­fylgið er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Annars staðar á land­inu eru Vinstri græn með eins stafa fylgi og minnst á Aust­ur­landi, þar sem ein­ungis 5,9 pró­sent kjós­enda segj­ast styðja flokk­inn.

Flestir kjós­endur Vinstri grænna eru með háskóla­menntun en flokk­ur­inn nýtur líka ágætis stuðn­ings á meðal þeirra sem hafa ein­ungis lokið grunn­menntun. Lægri hluti milli­tekju­hópa er lík­leg­astur til að kjósa flokk­inn og það er kannski ekki óvænt tíð­indi að flokkur með orðið „vinstri“ í nafn­inu sínu njóti minnst stuðn­ings hjá tekju­hæsta hópnum í sam­fé­lag­inu.

Þegar fyrri kann­anir árs­ins, sem skoða sér­tækt annað en bara fylgi flokka, eru skoð­aðar kemur í ljós að kjós­endur Vinstri grænna voru lík­legri en kjós­endur ann­arra flokka að ætla að ferð­ast í sum­ar­frí­inu sínu, jafnt inn­an­lands sem utan, lang­lík­leg­astir til að borða græn­metis- eða vegan­fæði, höfðu miklar áhyggjur af hlýnun jarðar og ansi hlynntir veggjöldum. Þeir voru hins vegar ólík­leg­astir til að vera með áskrift af Netflix eða virkt Costco aðild­ar­kort og eru að uppi­stöðu mjög and­vígir því að ferskt kjöt verði flutt til lands­ins frá öðrum löndum innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins.

B (11,1 prósent fylgi): Kjöt- og mjólkurneytendur á eftirlaunum af landsbyggðinni með ágætar tekjur

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er eini rík­is­stjórn­ar­flokk­ur­inn sem virð­ist hagn­ast á því að vera í rík­is­stjórn, miðað við kann­anir MMR. Þ.e. fylgi hans síð­ustu tvo mán­uði, 11,1 pró­sent, er meira en það sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum.

Í ljósi þess að um rúm­lega 100 ára gamlan flokk, með nokkuð íhalds­samar áherslur í mörgum málum, er að ræða á það kannski ekki að sæta tíð­indum að mestan stuðn­ings við hann er að finna hjá kjós­endum sem eru 68 ára og eldri. Innan þess hóps segj­ast 15,7 pró­sent kjós­enda vera Fram­sókn­ar­menn. Minnstur er stuðn­ing­ur­inn hjá kjós­endum undir þrí­tugu, þar sem ein­ungis 8,4 pró­sent segj­ast ætla að kjósa Framsókn.

Enn minna kemur á óvart að stuðn­ing við Flokkinn er fyrst og síð­ast að finna á völdum svæðum á lands­byggð­inni. Þannig mælist Framsókn stærsti flokkur lands­ins á Aust­ur­landi með 23,2 pró­sent fylgi og sá næst stærsti á Vest­ur­landi og á Vest­fjörðum með 21,5 pró­sent. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er hann hins vegar minnstur allra þeirra flokka sem mæl­ast með mann inni á þingi og með ein­ungis 8,3 pró­sent fylgi.

Menntun virð­ist ekki vera breyta sem skiptir máli þegar fólk ákveður að kjósa Framsókn en það gera tekjur hins vegar. Lang­flestir kjós­endur flokks­ins eru milli­tekju- eða hátekju­fólk. Í tekju­lægsta hópi lands­manna, þeim sem er með heim­il­is­tekjur undir 400 þús­und krónum á mán­uði, mælist fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins 5,4 pró­sent, eða rétt yfir fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands. Alls mæl­ast sjö flokkar með meira fylgi í þeim flokki en Framsókn, þ.e. allir hinir flokk­arnir sem eiga í dag full­trúa á Alþingi.

Það verður seint sagt að Fram­sókn­ar­fólk standi ekki undir staðalí­mynd­inni sem oft­ast er dregin upp af því. Í könn­unum MMR á þessu ári hefur komið í ljós að Fram­sókn­ar­fólk er lang­lík­leg­ast til að borða rautt kjöt (73 pró­sent þeirra gerir það) og deilir topp­sæt­inu í mjólk­ur­vöru­neyslu með klofn­ings­flokknum Mið­flokknum. Þá er það sá hópur kjós­enda sem er mest á móti inn­flutn­ingi á fersku kjöti til lands­ins. Þar er því haldið mik­illi tryggð við íslenska land­bún­að­ar­fram­leiðslu.

Það er hins vegar ólík­legra en flestir kjós­endur, þó ekki allir, til að hafa ekki miklar áhyggjur af hlýnun jarðar og hefur einna minnstar áhyggjur af stöðu heil­brigð­is­þjón­ustu. Þá eru kjós­endur Fram­sóknar ólík­leg­astir allra til að vera á Facebook.

Frjálslynda miðjublokkin: Samanlagt fylgi: 37,4 prósent

S (15,8 prósent fylgi): Eldra fólk sem borðar mikinn fisk, er ekki á Snapchat en fannst skaupið fyndið

Mynd: Berglaug Perla
Mynd: Berglaug Perla

Sjálfstitl­aður jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands er næst stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt flestum skoð­ana­könn­unum. Fylgið sam­kvæmt síð­ustu tveimur könnum MMR er 15,8 pró­sent, sem er rétt rúm­lega helm­ingur besta árang­urs flokks­ins í kosn­ingum í sögu hans, en umtals­vert betri staða en haustið 2016, þegar hann fékk rétt yfir fimm pró­sent atkvæða og ein­ungis einn kjör­dæma­kjör­inn þing­mann.

Konur eru lík­legri til að kjósa Sam­fylk­ing­una en karlar og stuðn­ingur við flokk­inn eykst eftir því sem fólk eld­ist. Ef ein­ungis 68 ára og eldri væru með kosn­inga­rétt væri Sam­fylk­ingin stærsti flokkur lands­ins. Í þeim ald­urs­hópi segj­ast 21,8 pró­sent að þeir myndu kjósa Sam­fylk­ing­una. Yngri fólk er hins vegar ólík­legra til að kjósa hana og í ald­urs­hópnum 30-49 ára, sem öllu jafna er einn fyr­ir­ferða­mesti hópur sam­fé­lags­ins hverju sinni, er Sam­fylk­ingin fimmti stærsti flokk­ur­inn. Af þeim sem myndu ná inn á þing mæl­ast ein­ungis Viðreisn og Mið­flokk­ur­inn með minni stuðn­ing í þeim ald­urs­hópi.

Stuðn­ingur við flokk­inn er nokkuð dreifður um landið en þó áber­andi minnstur á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum og mestur á Aust­ur­landi, þar sem Sam­fylk­ingin, með 19,4 pró­sent stuðn­ing, mælist stærsti flokkur lands­ins. Tekjur virð­ast ekki vera ráð­andi breyta í því hvort fólk styðji Sam­fylk­ing­una eða ekki. Stuðn­ing­ur­inn er nokkuð jafn óháð því hvort veskið sé þungt eða létt.

Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar eru lík­leg­astir allra til að borða mik­inn fisk og hafa umfram aðra breytt hegðun sinni á ein­hvern hátt til að lág­marka áhrif sín á umhverfi og loft­lags­breyt­ingar á síð­ustu tólf mán­uðum. Það kemur ekki mikið á óvart þegar horft er til þess að 96 pró­sent kjós­enda flokks­ins hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur af hlýnun jarðar.

Sam­fylk­ing­ar­fólk er ólík­leg­ast allra til að vera á sam­fé­lags­mið­ilnum Snapchat, rúmur þriðj­ungur þess telur efna­hags­stöðu Íslands vera slæma og það er óánægð­ast allra kjós­enda með þá kjara­samn­inga sem Efling og VR gerðu við Samtök atvinnu­lífs­ins í apríl. Þá eru jafn­að­ar­menn­irnir sá hópur kjós­enda sem þú getur síst búist við að fái sér kok­teilsósu með pizzu en átta af hverjum tíu þeirra fannst Ára­mótaskaupið frekar eða mjög gott.

P (11,8 prósent fylgi): Ungt fólk með lágar tekjur, án háskólamenntunar en fær sér kokteilsósu með pizzu

Mynd: Facebook-síða þingflokks Pírata
Mynd: Facebook-síða þing­flokks Pírata

Píratar mæl­ast með 11,8 pró­sent fylgi sam­kvæmt með­al­tali síð­ustu tveggja kann­ana MMR, sem er meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum, en mun minna en þegar Píratar fóru með him­in­skautum í könn­unum árið 2016 og mæld­ust með á fjórða tug pró­sentu­stiga fylgi.

Píratar eru klár­lega flokkur unga fólks­ins og sá flokkur sem nýtur mest stuðn­ings allra hjá kjós­endum undir þrí­tugu, en 18 pró­sent lands­manna í þeim ald­urs­flokki styðja Pírata. Stuðn­ing­ur­inn er líka umtals­verður hjá fólki á aldr­inum 30 til 49 og þar mæl­ast Píratar næst stærsti flokkur lands­ins, á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum. Þegar kemur að fólki yfir 50 ára þá dalar fylgið skarpt og hjá 68 ára og eldri mælist stuðn­ingur við Pírata ein­ungis þrjú pró­sent.

Stuðn­ing­ur­inn er líka bund­inn við ákveðin land­svæði (höf­uð­borg­ar­svæðið, Suð­ur­landið og Vest­ur­land/Vest­firði) sem ætla má að sé þétt­býlið á suð­vest­ur­horni lands­ins að uppi­stöðu.

Píratar eru líka vin­sælli hjá þeim sem eru ekki með háskóla­menntun og mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins hjá þeim kjós­endum sem eru með lægstu heim­il­is­tekj­urnar. Í fullu sam­ræmi við það þá er tekju­hæsti hóp­ur­inn lang ólík­leg­astur til að kjósa Pírata, en af þeim flokkum sem mæl­ast með mann inni á þingi er ein­ungis Vinstri græn með minna fylgi á meðal þeirra sem best hafa það fjár­hags­lega á Íslandi.

Píratar eru lík­legir til að vilja ferð­ast í sum­ar­frí­inu sínu, 61 pró­sent þeirra er á Instagram og 80 pró­sent er með áskrift að Netflix. Þeir hafa líka mestar áhyggjur allra af spill­ingu í fjár­málum og/eða stjórn­málum á Íslandi (71 pró­sent) og til að fá sér kok­teilsósu með pizzu, en tæpur þriðj­ungur Pírata er opinn fyrir þeim sam­runa.

C (9,8 prósent fylgi): Karlar, með góða menntun, háar tekjur, búa í höfuðborginni og hlusta á Spotify

Mynd: Aðsend
Mynd: Aðsend

Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR mælist fylgi Við­reisnar sam­tals 9,8 pró­sent. Það er meira en flokk­ur­inn fékk 2017 en minna en hann fékk árið 2016.

Fáir flokkar tala með jafn afger­andi hætti til ákveð­inna hópa í sam­fé­lag­inu en ná nán­ast ekk­ert til ann­arra, og Viðreisn. Þannig eru karlar til að mynda mun lík­legri til að kjósa Viðreisn en konur. Stuðn­ingur við flokk­inn er mestur hjá yngstu kjós­end­unum en minnkar svo jafnt og þétt upp ald­urs­stig­ann og hjá elsta kjós­enda­hópnum mæl­ast ein­ungis Píratar með minna fylgi á meðal þeirra flokka sem eiga full­trúa á þingi í dag.

Stuðn­ingur við Viðreisn er nán­ast ein­vörð­ungu bund­inn við höf­uð­borg­ar­svæðið. Um 87 pró­sent aðspurðra sem segj­ast ætla að kjósa flokk­inn búa þar, en vert er að taka fram að svæðið er líka það lang­fjöl­menn­asta á land­inu. Mjög erfitt er að sjá að Viðreisn myndi ná inn kjör­dæma­kjörnum þing­manni í öðrum kjör­dæmum en þeim þremur sem þar er að finna ef kosið yrði í dag. Viðreisn mælist með minnst fylgi utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins af öllum flokkum sem mæl­ast inni eins og stendur. Það væri helst á Suð­ur­landi sem mögu­leiki er að ná inn manni með smá við­bót.

Kjós­enda­hópur Við­reisnar heldur áfram að vera nokkuð eins­leitur þegar aðrar breytur eru skoð­aðar. Flokk­ur­inn talar mjög vel til háskóla­mennt­aðra en nán­ast ekk­ert til þeirra sem eru ein­ungis með grunn­skóla­próf. Sömu sögu er að segja þegar tekju­hópar eru skoð­aðir. Áhugi tekju­lægsta hóps­ins á Viðreisn er sá næst minnsti á meðal þeirra flokka sem eiga full­trúa á þingi, á eftir Framsókn. Stuðn­ing­ur­inn eykst síðan sam­hliða tekjum og mælist mestur (15,9 pró­sent) á meðal þeirra sem eru með yfir 1,2 millj­ónir króna í heim­il­is­tekjur á mán­uði. Einungis Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með meira fylgi hjá þeim tekju­hópi.

Kjós­endur Við­reisnar eru allra kjós­enda lík­leg­astir til að vera not­endur af tón­list­ar­veit­unni Spotify (69 pró­sent) og að hámhorfa á Netflix (84 pró­sent með áskrift). Þeir voru líka ánægð­astir allra með und­ir­skrift síð­ustu kjara­samn­inga.

Við­reisn­ar­fólk hefur hins vegar mestar áhyggjur allra af stöðu heil­brigð­is­þjón­ustu í land­inu, það hefur einna mestan áhuga allra á hús­næð­is­málum og þungar áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum.

Líklega kemur það lítið á óvart að kjós­endur Við­reisnar eru mest fylgj­andi inn­flutn­ingi á fersku kjöti til lands­ins (68 pró­sent þeirra hafa þá skoðun) enda flokkur sem leggur áherslu á frelsi í alþjóða­við­skiptum og aukið sam­starf við Evrópu.

Hin blokkin: Sameiginlegt fylgi: 16,6 prósent

M (12,5 prósent fylgi): Gamalt fólk af Suðurlandi með grunnskólamenntun og lágar tekjur og virkt Costco-kort

Sá flokkur sem er mest afger­andi kjós­enda­hóp­inn er Mið­flokk­ur­inn. Það ætti ekki að koma mikið á óvart, enda póli­tísk stefna hans að vera oft afar afger­andi í mjög umdeildum málum. Sam­an­lagt mæld­ist fylgi Mið­flokks­ins 12,5 pró­sent í könn­unum MMR í ágúst og sept­em­ber. Það er meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í einu kosn­ing­unum sem hann hefur tekið þátt í haustið 2017.

Upp­gangur Mið­flokks­ins hafði fyrst áhrif á gengi Fram­sókn­ar­flokks­ins, enda um klofn­ings­brot úr þeim flokki að ræða, en síðan þá virð­ist flokk­ur­inn fyrst og síð­ast taka fylgi frá Sjálf­stæð­is­flokknum. Mið­flokk­ur­inn virð­ist tala skýrt til íhalds­sama og þjóð­ern­is­lega arms Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það sést vel á þeim breyt­ingum sem orðið hafa á fylgi flokk­anna tveggja í ákveðnum ald­urs­hópum og á ákveðnum land­svæðum. Þar sem Mið­flokk­ur­inn fer upp, þar dalar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í takt.

Mið­flokkur er flokkur karla. Rúmlega tveir af hverjum þremur kjós­endum hans eru af því kyni. Kynja­mun­ur­inn er ekki jafn afger­andi hjá neinum öðrum flokki. Mið­flokk­ur­inn er líka flokkur eldri kjós­enda. Í ald­urs­hópnum 50 til 67 ára er hann t.d. næst vin­sæl­asti flokkur lands­ins, á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum. Hjá fólki undir þrí­tugu mælist fylgi hans hins vegar 7,9 pró­sent.

Mið­flokk­ur­inn er lands­byggð­ar­flokkur. Ef kjós­endur á Suð­ur­landi réðu Íslandi einir væri Mið­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins, með fjórð­ung atkvæða. Á Aust­ur­landi er hann næst stærsti flokk­ur­inn, ein­ungis gamli móð­ur­flokk­ur­inn Framsókn er þar stærri. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem stærstur hluti kjós­enda býr, er fylgi Mið­flokks­ins hins vegar vel undir heild­ar­fylgi, eða 9,6 pró­sent.

Því minni sem æðsta menntun er, því lík­legri er við­kom­andi til að kjósa Mið­flokk­inn. Hann nýtur raunar mest stuðn­ings allra flokka hjá þeim kjós­enda­hópi sem hefur mest lokið grunn­skóla­námi, en 17,4 pró­sent þeirra eru á Mið­flokksvagn­inum. Þegar kemur að þeim sem lokið hafa háskóla­námi mælist Mið­flokk­ur­inn hins vegar með minnst fylgi allra flokka sem næðu inn manni á þing miðað við núver­andi stöðu í könn­unum. Einungis 6,1 pró­sent þeirra myndu kjósa flokk­inn.

Sömu sögu er að segja af því þegar tekjur eru skoð­aðar. Mið­flokk­ur­inn nýtur mest fylgis allra flokka hjá þeim sem eru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur, en 16,6 pró­sent þess hóps styðja flokk­inn. Fylgi hans hjá öðrum tekju­hópum mælist undir heild­ar­fylgi.

Mið­flokks­fólk er sá kjós­enda­hópur sem reynd­ist lík­leg­astur til að ætla ekk­ert að ferð­ast í sum­ar­frí­inu sínu sam­kvæmt könn­unum MMR. Einungis um þriðj­ungur kjós­enda hans not­ast við Spotify og þeir eru allra kjós­enda ólík­leg­astir til að vera virkir á Instagram, þar sem sama hlut­fall, þriðj­ungur, er með skráðan aðgang. Þá eru kjós­endur Mið­flokks­ins ólík­leg­astir allra kjós­enda að hafa breytt hegðun sinni á ein­hver hátt til að lág­marka áhrfi sín á umhverfi og loft­lags­mál síð­ast­liðið ár. Það er kannski ekki skrýtið vegna þess að Mið­flokks­fólk hefur minnstar áhyggjur allra af hlýnun jarðar, en ein­ungis 39 pró­sent þeirra hafa slíkar. Þá hafa kjós­endur flokks­ins minnstar áhyggjur allra kjós­enda af hús­næð­is­málum.

Mið­flokks­fólk er hins vegar mjög hrifið af því að neyta mjólk­ur­vara og deila topp­sæt­inu þar með Fram­sókn­ar­kjós­endum. Þeir voru líka mjög á móti þriðja orku­pakk­anum, mest allra á móti upp­töku veggjalda og allra kjós­enda lík­leg­astir til að vera með virkt Costco aðild­ar­kort. Þeim fannst hins vegar Ára­mótaskaupið minnst fyndið, og um 56 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins taldi það hafa verið frekar eða mjög slakt.

F (4,1 prósent fylgi): Lágtekjufólk með grunnskólamenntun sem hefur áhyggjur af fátækt og félagslegum jöfnuði

Flokkur fólks­ins hefur meira og minna mælst tölu­vert undir kjör­fylgi allt þetta kjör­tíma­bil og sam­kvæmt síð­ustu tveimur könn­unum MMR á hann ansi langt í land með að ná inn manni ef kosið væri í dag. Fylgið mælist ein­ungis 4,1 pró­sent.

Það er mark­tækt mest hjá kjós­endum yfir 68 ára aldri, enda hefur flokk­ur­inn talað mjög máli eldri borg­ara í sinni póli­tík. Stuðn­ing­ur­inn virð­ist algjör­lega bund­inn við Höf­uð­borg­ar­svæðið og Norð­ur­land en er vart mæl­an­legur í öðrum lands­hlutum. Flokk­ur­inn myndi lifa stöð­ugu og góðu lífi ef ein­ungis þeir sem mest hafa lokið grunn­skóla­námi kysu til þings, en þar nýtur hann 9,8 pró­sent stuðn­ings. Einungis eitt pró­sent þeirra sem lokið hafa háskóla­námi styðja Flokk fólks­ins.

Sömu sögu er að segja þegar skoð­aðar eru tekju­breytur. Flokkur fólks­ins er með meira fylgi en Framsókn, Vinstri græn og Viðreisn hjá lægsta tekju­hópnum og er ekki langt frá Sjálf­stæð­is­flokknum þar. Stuðn­ing­ur­inn lækkar hins vegar skarpt strax í næsta tekju­hópi og er vart mæl­an­legur hjá þeim heim­ilum sem eru með yfir 800 þús­und krónur á mán­uði í heild­ar­tekjur.

Kjós­endur flokks­ins voru mjög á móti þriðja orku­pakk­anum þegar hann var til umræðu á þingi og eru auk þess allra kjós­enda lík­leg­astir til að telja að efna­hags­staðan á Íslandi sé slæm. Þeir hafa líka mestar áhyggjur af fátækt og félags­legum ójöfn­uði og eru upp­tekn­astir allra af stöðu hús­næð­is­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár