Mynd: Skjáskot/RÚV

Árið 2018: Borgarstjórnarkosningar sem sýndu ákall á breytingar

Konur verða ráð­andi í Reykja­vík næstu fjögur árin. Aldrei áður hefur borg­ar­stjórn end­ur­speglað fjöl­breyti­leika borg­ar­búa með jafn skýrum hætti og í þeim átta fram­boðum sem kjörin voru. Sumir flokkar voru sig­ur­veg­arar og aðrir töp­uðu illa.

Borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fóru fram 26. maí 2018. Alls náðu átta flokkar kjöri og hafa aldrei verið fleiri. Sitjandi meiri­hlut féll og eng­inn aug­ljós meiri­hluti var til staðar til að að taka við.

Ein allra áhuga­verð­asta nið­ur­staða kosn­ing­anna var sú að konur verða í miklum meiri­hluta í Reykja­vík næsta kjör­tíma­bil. Alls eru 15 þeirra 23 borg­ar­full­trúa sem kjörnir voru í kosn­ing­unum konur. Og sex þeirra átta fram­boða sem náðu kjöri eru leidd af konum. Einungis risarnir tveir, flokk­arnir sem gerðu til­kall til borg­ar­stjóra­stóls­ins í krafti stærðar sinnar, Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing, eru leiddir af körlum. Þá voru tveir fram­bjóð­endur sem fæddir eru í öðru landi kjörnir í borg­ar­stjórn og nýr yngsti borg­ar­full­trúi sög­unnar er af blönd­uðum upp­runa.

Hver vann?

Það voru margir sem töldu sig sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna í Reykja­vík. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætti við sig 5,1 pró­sentu­stigi milli kosn­inga. Það er lang­mesta bæt­ingin hjá þeim flokkum sem sátu í borg­ar­stjórn síð­asta kjör­tíma­bili. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn varð líka stærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni að nýju og nið­ur­staða hans var betri en nær allar kann­anir, og raunar allur aðdrag­andi kosn­ing­anna, benti til. Í þessu ljósi vann Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aug­ljósan sigur.

En nið­ur­staðan, 30,8 pró­sent, var líka næst versta nið­ur­staða Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík frá upp­hafi borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Hún var til að mynda lak­ari en árið 2010, þegar flokk­ur­inn fékk 33,6 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk átta borg­ar­full­trúa kjörna.

ósí­alista­flokk­ur­inn var aug­ljós sig­ur­veg­ari, og gat sagt slíkt án nokk­urs fyr­ir­vara. Hann náði 6,4 pró­sent atkvæða og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi hans, var í kjöl­farið í mjög sterkri stöðu í borg­ar­stjórn. Sanna þótti standa sig afburða­vel í öllum kosn­inga­þáttum sem hún kom fram í í aðdrag­anda kosn­inga og þrátt fyrir að vera yngsti borg­ar­full­trúi sög­unnar – hún var ný orðin 26 ára þegar hún var kjörin – þá var hún oft eins og full­orðni ein­stak­ling­ur­inn í her­berg­inu þegar aðrir odd­vitar tók­ust á með hefð­bundnum hætti.

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins voru einnig sig­ur­veg­arar í Reykja­vík ein­fald­lega vegna þess að þau náðu fólki inn í fyrsta sinn. Á lands­vísu mátti slá því föstu að Mið­flokk­ur­inn væri stóri sig­ur­veg­ari sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna þar sem flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar náði að skjóta niður rótum mjög víða.

Píratar bættu einnig við sig fylgi á milli kosn­inga og voru eini flokk­ur­inn í frá­far­andi meiri­hluta sem gerði það.

En stóri sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna í Reykja­vík var Viðreisn. Flokk­ur­inn er nú orð­inn þriðji stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir að hafa boðið sig þar fram í fyrsta sinn og er með tvo borg­ar­full­trúa.

Hverjir töpuðu?

Vinstri græn guldu afhroð í kjör­dæmi for­manns síns, for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur. Einungis 2.700 manns kusu flokk­inn í Reykja­vík. Til sam­an­burðar kusu 14.477 ein­stak­lingar Vinstri græn í þing­kosn­ingum sjö mán­uðum áður. Flokk­ur­inn fékk ein­ungis 4,3 pró­sent atkvæða og einn kjör­inn full­trúa, Líf Magneu­dóttur. Hann er næst­minnstur allra þeirra fram­boða sem náðu kjöri í maí.

Sam­fylk­ingin tap­aði líka illa. Þótt flokk­ur­inn sé næst stærstur í borg­inni eftir kosn­ing­arnar, og hafi náð 25,9 pró­sent atkvæða, þá missti hann heil sex pró­sentu­stig af fylgi milli borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga.

Þá er ónefndur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem fékk 3,2 pró­sent atkvæða og náði ekki inn manni í Reykja­vík. Í ljósi þess að um er að ræða kjör­dæmi vara­for­manns­ins og von­ar­stjörn­unnar Lilju Alfreðs­dóttur, og þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er rúm­lega 100 ára gam­all flokkur með sterka inn­viði og mikla reynslu af kosn­ingum, var nið­ur­staðan veru­legt áhyggju­efni. Rifja má upp að Halldór Ásgríms­son heit­inn, þáver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ákvað að draga sig í hlé úr stjórn­málum í kjöl­far borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna 2006, þegar Framsókn fékk 6,1 pró­sent atkvæða. Halldór sagði meðal ann­ars að hann væri að axla ábyrgð á lakri stöðu flokks­ins í þeim kosn­ingum með því að stiga til hliðar.

Björt fram­tíð, sem sprottið hafði upp úr Besta flokknum og setið í meiri­hluta í átta ár, hvarf af sjón­ar­svið­inu.

Dagur hélt borgarstjórastólnum

Ljóst var á nið­ur­stöðu kosn­ing­anna að ákall var um breyt­ingar. Meiri­hlut­inn var kol­fall­inn og tvær burð­ar­stoðir hans töp­uðu umtals­verðu fylgi.

Nýr meiri­hluti var kynntur 12. júní í rjóðri við Breið­holts­laug. Hann sam­an­stóð af Sam­fylk­ingu, Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum.

Í þeirri kynn­ingu kom fram að Dagur B. Egg­erts­son,odd­viti Sam­fylk­ingar, myndi halda áfram sem borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur. Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar, yrði for­maður borg­ar­ráðs og Pawel Bar­toszek annar maður á lista Við­reisnar, yrði for­seti borg­ar­stjórnar í þrjú ár en Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, myndi fyrst gegna því hlut­verki í eitt ár.

Hér að neðan má lesa helstu atriðin í meiri­hluta­sátt­mála flokk­anna fjög­urra sem kynntur var sam­hliða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið undanfarið ár