Guðmundur Ingi sjálfkjörinn varaformaður Vinstri grænna

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra verður næsti vara­for­maður Vinstri grænna. Hann situr nú sem ráð­herra utan þings en er ekki kjör­inn full­trúi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, verður næsti vara­for­maður Vinstri grænna. Vara­for­maður og for­maður VG verða sjálf­kjörin á lands­fundi flokks­ins sem stendur nú yfir en eng­inn bauð sig fram á móti Katrínu Jak­obs­dóttir for­manni né Guðmundi Inga. RÚV greindi fyrst frá.

Guð­mundur Ingi er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Land­verndar og var beð­inn um að koma inn í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur eftir að náðst hafði saman um myndun hennar síðla árs 2017. Hann hefur gegnt emb­ætti umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra utan þings frá þeim tíma. Hann hefur aldrei verið í fram­boði til Alþingis eða beinn þátt­tak­andi í flokkapóli­tík til þessa. [adspot]

Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir rit­ari VG sæk­ist ekki eftir end­ur­kjöri en núver­andi gjald­keri flokks­ins, Una Hild­ar­dóttir, býður sig fram í emb­ætti rit­ara. Það gerir líka Ingi­björg Þórð­ar­dóttir stjórn­ar­maður.

Ragnar Auðunn Árnason og Rúnar Gíslason bjóða sig fram í emb­ætti gjald­kera. Fimmtán manns eru í fram­boði sem með­stjórn­endur en sjö verða kjörnir. Rafræn kosn­ing hefst á lands­fundi rétt fyrir klukkan þrjú í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár