Guðmundur Ingi býður sig fram til varaformanns Vinstri grænna

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra hefur ákveðið að bjóða sig fram til vara­for­manns Vinstri grænna. Hann situr nú sem ráð­herra utan þings en er ekki kjör­inn full­trúi.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hefur ákveðið að bjóða sig fram til vara­for­manns Vinstri grænna.

Frá þessu greindi hann í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag þar sem segir m.a.: „Ég vil sjá enn fleira umhverf­is­vernd­ar­fólk í brúnni í íslenskum stjórn­málum og hef því ákveðið að bjóða mig fram til vara­for­manns Vinstri grænna á lands­fundi flokks­ins nú í októ­ber. Ég hlakka til að hlusta og heyra, móta og taka þátt í að skapa betri og líf­væn­legri heim fyrir okkur öll, afkom­endur okkar og aðrar líf­verur á Jörðinni.“

Guð­mundur Ingi er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Land­verndar og var beð­inn um að koma inn í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur eftir að náðst hafði saman um myndun hennar síðla árs 2017. Hann hefur gegnt emb­ætti umhverfis- og auð­linda­ráð­herra utan þings frá þeim tíma. Hann hefur aldrei verið í fram­boði til Alþingis eða beinn þátt­tak­andi í flokkapóli­tík til þessa.

[adspot]

Stöðu­upp­færsla hans í heild er eft­ir­far­andi:

„Öll eigum við okkur drauma í leik og starfi. Öll brennum við fyrir ein­hverju. Við höfum hug­myndir um hvernig sam­fé­lag við viljum byggja og sýn á fram­tíð­ina.

Ég hef alla tíð brunnið fyrir umhverf­is­málum og unnið að þeim á marg­vís­legum vett­vangi, hjá stofn­unum rík­is­ins, í háskólum, hjá félaga­sam­tökum og nú í tæp tvö ár sem ráð­herra. Áður en ég kom inn í ráðu­neytið hafði ég lengi kallað eftir meiri aðgerðum í umhverf­is­málum, til dæmis varð­andi lofts­lags­mál, plast­mengun og frið­lýs­ingar. Það hefur því verið ein­stakt að fá tæki­færi til að koma á kopp­inn fyrstu fjár­mögn­uðu aðgerða­á­ætlun Íslands í lofts­lags­málum, vinna að banni á mörgum einnota plast­vörum, hefja stór­á­tak í frið­lýs­ingum og auka fjár­magn til umhverf­is­mála um 25% á tveimur árum. En það þarf svo sann­ar­lega að gera meira og ég er rétt að byrja.

Þegar ég hugsa um drauma mína og fram­tíð­ar­sýn þá eru hvoru­tveggja sam­ofin umhverf­is­málum og rétt­látu og frið­sömu sam­fé­lagi. Ég vil að árið 2030 getum við litið til baka og sagt að okkur hafi tek­ist að takast á við lofts­lags­vána og það með félags­legt rétt­læti og nátt­úru­vernd að leið­ar­ljósi. Lofts­lags­váin snertir okkur öll sem búum í þessum heimi. Það er stórt rétt­læt­is­mál að aðgerðir í lofts­lags­málum geti nýst umhverfi og nátt­úru og á sama tíma tek­ist á við efna­hags­legt mis­rétti. Þetta er sýn um nýja tíma.

Ég vil sjá Ísland þró­ast og efl­ast sem land nátt­úr­unnar, þar sem nýt­ing auð­linda er sjálf­bær og end­ur­heimt land­gæða í fyr­ir­rúmi. Þjóð­garðar á landi og í sjó beri metn­aði og fram­sýni þjóð­ar­innar glöggt vitni, enda öfl­ugt verk­færi til nátt­úru­verndar og atvinnu­upp­bygg­ingar á lands­byggð­unum. Þetta er líka sýn um nýja tíma.

Það er nauð­syn­legt að grænu málin verði meg­in­stefnu­mál og fái almennt meiri vigt hjá öllum stjórn­mála­flokkum. Umhverf­is­fræðin kennir okkur að umhverf­is­málin eru þver­fag­leg og þurfa að tengj­ast öðrum mála­flokkum með skýrum hætti: sam­göngu­málum, skipu­lags­málum, heil­brigð­is­málum, atvinnu­vega­málum og svo fram­vegis. Þetta snýst því líka um að brjóta niður gamla múra milli mála­flokka og hugsa víðar og stærra. Við erum að verða betri og betri í þessu og sú stór­kost­lega vit­und­ar­vakn­ing sem orðið hefur meðal almenn­ings hjálpar til við að gera umhverf­is­málin að meg­in­stefnu­máli. Það er ekki bara frá­bært heldur bráð­nauð­syn­legt.

Ég vil vinna á grund­velli vís­inda og þekk­ingar. Þess vegna veldur afneitun stjórn­mála­leið­toga á lofts­lags­vís­indum, hvar sem er í heim­inum, mér þungum áhyggjum. Upp­gangur fas­isma og mann­fjand­sam­legra við­horfa í garð hinsegin fólks og kvenna eru einnig við­fangs­efni nútíma­stjórn­mála, þar sem bráð­nauð­syn­legt er að sporna við fótum með mann­gæsku, ást og frið að leið­ar­ljósi. Hér þurfum við öll að hjálp­ast að og ég er klár í þann slag.

Kæru vinir, mig langar að vinna áfram að bar­áttu­málum mínum og ann­arra umhverfis- og nátt­úru­vernd­ar­sinna á vett­vangi stjórn­mál­anna, eins og ég hef gert und­an­farin tæp tvö ár, og stuðla að því að grænu málin fái sem mestan sess í íslenskum stjórn­málum. Ég vil koma að því að móta nýja tíma. Ég vil sjá enn fleira umhverf­is­vernd­ar­fólk í brúnni í íslenskum stjórn­málum og hef því ákveðið að bjóða mig fram til vara­for­manns Vinstri grænna á lands­fundi flokks­ins nú í októ­ber. Ég hlakka til að hlusta og heyra, móta og taka þátt í að skapa betri og líf­væn­legri heim fyrir okkur öll, afkom­endur okkar og aðrar líf­verur á Jörðinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár