„Puntudúkkurnar“ og gömlu karlarnir

Nú þegar nýr dóms­mála­ráð­herra hefur tekið við emb­ætti má sjá ákveðnar kreðsur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins takast á en ekki eru allir á eitt sáttir að fá ungar konur í fram­varða­sveit flokks­ins.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Mynd: Mannlíf/Ivan Burkni

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­maður og fyrrum rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra í vik­unni en hún er yngsti kven­ráð­herra Íslands­sög­unnar. Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og vara­for­maður flokks­ins, var nokkrum mán­uðum eldri þegar hún varð fyrst ráð­herra í jan­úar árið 2017 og verður því ekki annað sagt en að ákveðin end­ur­nýjun hafi átt sér stað í flokknum á und­an­förnum árum.

Ekki eru þó allir á eitt sáttir um ágæti þess­ara breyt­inga og má greina af við­brögðum úr ákveðnum kreðsum innan flokks­ins að and­spyrna sé við að ungar konur taki að sér ábyrgð­ar­mikil hlut­verk í flokknum. Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er meðal þeirra sem gagn­rýnt hefur for­yst­una og sagt að reynslu­lítið fólk rað­ist þar í áhrifa­stöður.

[adspot]

Skopmynd Helga Sig sem birt­ist í Morg­un­blað­inu vakti athygli í gær og þótti mörgum hún lýsa ákveð­inni kven­fyr­ir­litn­ingu. Á mynd­inni er Áslaug Arna í gervi feg­urð­ar­drottn­ingu og er hún látin segja: „Gamlir íhaldskar­lar voru aldrei að fara að vinna þessa feg­urð­ar­sam­keppni unga fólks­ins.“

Flokkurinn óheppinn í kvennamálum

Ragnar Önund­ar­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri, lagði orð í belg í gær­kvöldi á Facebook-síðu sinni en hann telur að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfi að hverfa aftur til þess að póli­tík og póli­tískur styrkur skipti meira máli en ásýnd og yfir­borðs­mennska.

Hann segir Bjarna Bene­dikts­son, for­mann flokks­ins, jafn­framt vera að gera mis­tök og að flokk­ur­inn hafi verið óhepp­inn í kvenna­málum. „Öfl­ug­asta konan veikt­ist og féll frá, svo hörmu­legt sem það er. Hinar hafa allar fallið vegna mis­taka sem reyndir stjórn­mála­menn hefðu ekki flaskað á,“ skrifar hann og vísar hann þarna í Ólöfu Nordal, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, en hún lést í febr­úar árið 2017.

„Puntudúkkurnar“ Þórdís Kolbrún og Áslaug Arna

Spyr Ragnar sig hvort þær tvær ungu konur sem for­mað­ur­inn hafi fyrir „puntu­dúkkur” – ásýnd­ar­innar vegna – reyn­ast betur. Þarna á hann vænt­an­lega við ráð­herrana, Þórdísi Kolbrúnu og Áslaugu Örnu. Hann spyr jafn­framt hvort þær séu haldnar „for­rétt­inda­blindu“ og hvort geti verið að betra sé að sýna þol­in­mæði og bíða og afla sér starfs- og lífs­reynslu.

Hann útskýrir jafn­framt hvað orðið for­rétt­inda­blinda þýði en hann segir að í því felist að láta hags­muni sína ráða og þiggja eitt­hvað sem ekki væri í boði án for­rétt­ind­anna.

Fyrst tekur hann fyrir Þórdísi Kolbrúnu. Hann segir að hún hafi þáð ráð­herra­emb­ætti þrátt fyrir að vera númer tvö á fram­boðs­lista flokks síns. „For­mað­ur­inn vildi konu af því að hann hélt að ásýnd vægi meira en inni­hald. Þegar staða vara­for­manns losn­aði stökk hún til og lýsti yfir fram­boði. Aðrir viku fyrir henni „af því að hún er kona“ og vitað var að ásýndin skiptir for­mann­inn meira máli en inni­haldið. Metn­að­ur­inn er svo mik­ill að litið er fram hjá því að vara­for­maður sem ekki hefur burði til að vera for­maður lendir í pín­legri stöðu þegar gengið verður fram hjá honum í for­manns­kjöri,“ skrifar hann.

Næst tekur hann fyrir Áslaugu Örnu en hann segir hana hafa verið kjörna rit­ara flokks­ins til að friða stutt­buxna­deild­ina, þessa sem vilji áfengi í mat­vöru­versl­anir og afnám banns við fjöl­kvæni/-veri. „Nú hefur for­mað­ur­inn gert hana að ráð­herra, til að flokk­ur­inn sýn­ist „frjáls­lyndur“ (frjáls­hyggja er nú orðið ljótt orð, sem ekki er lengur flaggað) og höfði til ungs fólks. Hún er „full­trúi ungu kyn­slóð­ar­innar“, sem einu sinni var kosið um í Tónabæ.“

Formaðurinn „með silfurskeið í munni“

Ragnar telur þó að það sé for­mað­ur­inn sjálfur sem sé „með silf­ur­skeið í munni“ og hald­inn mestri for­rétt­inda­blindu. „Hann fór fyrst inn á þing án próf­kjörs. Þar naut hann ólýð­ræð­is­legs ætt­ar­veldis. Þátttaka þeirra frænda í hruns­málum, sem leiddu til stór­felldra áfalla í við­skipta­líf­inu, hefur skyggt á öll hans störf og sífellt vakið grun­semdir um hags­muna­tengsl og for­rétt­inda­að­stöðu. Fylgi flokks­ins hefur nær helm­ing­ast í alþingis-kosn­ingum, þó það hafi haldið sér nokkuð vel í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Það bendir til að margir bíði á hlið­ar­lín­unni eftir breyt­ingum.“

Kallaði Áslaugu Örnu sætan krakka

Þetta er vissu­lega ekki í fyrsta sinn sem Ragnar hefur eitt­hvað um Áslaugu Örnu að segja en í maí síð­ast­liðnum sagði hann hana vera sætan krakka. „Miðaldra, hvítur, krist­inn karl­maður, helst reffi­legur og pen­inga­legur, er for­maður. Glæsi­leg­asta konan er vara­for­maður og sæt­asti krakk­inn rit­ari. Þetta er afleið­ing af valda­til­færslu próf­kjör­anna,“ skrif­aði Ragnar meðal ann­ars í færslu í Facebook-hópnum Orkan okkar.

Fyrir tæpum tveimur árum setti Ragnar stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann deildi mynd af Áslaugu Örnu og gagn­rýndi það mynda­val.

[adspot]

Áslaug Arna brást við færslu Ragnars á Orkan okkar á Twitter reikn­ingi sínum en þar sagði hún það vera alveg ljóst að Ragnar hefði ein­hvern óeðli­legan áhuga á að gramsa í myndum af henni á Facebook. „Í pistli dags­ins kallar hann mig „sætasta krakk­ann“ og birtir með tveggja ára gamla mynd. Síðast var gamla myndin of sexý svo ég mætti tjá mig um #metoo. Hvað næst?“ spurði hún sig enn fremur.

Telur reynslulítið fólk raðast í forystusveit flokksins

[links]Davíð Oddsson hefur einnig gagn­rýnt for­ystu flokks­ins, eins og áður segir, en í júní síð­ast­liðnum sagði hann að for­ystu­sveit­inni væri nú nokkuð sama um hvað væri sam­þykkt á lands­fund­um, að í þá sveit rað­aðist reynslu­lítið fólk sem hefði fengið póli­tískt vægi „langt umfram það sem áður tíðk­að­ist“ og að lask­aður flokk­ur­inn væri að taka á sig enn meira högg með stuðn­ingi sínum við þriðja orku­pakk­ann.

Gagnrýni Davíð bein­dist bæði gegn því að í for­ystu flokks­ins væri ekki að velj­ast nægi­lega öfl­ugt fólk, og án þess að það væri sagt berum orðum var þar ugg­laust verið að vísa til Þór­dísar Kol­brúnar og Áslaugar Örnu sem eru báðar ungar konur sitt hvoru megin við þrí­tugt. Þær voru báðar í stórum hlut­verkum í orku­pakka­mál­inu, Þór­dís Kol­brún sem ráð­herra orku­mála og Áslaug Arna sem for­maður utan­rík­is­mála­nefnd­ar.

Unga fólkið leggur lykkju á leið sína til að vísa þeim eldri út úr umræð­unni

Í Reykja­vík­ur­bréf­i sagði Davíð að það hefði lengi verið „óskráð meg­in­regla í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, sem reynd­ist vel, að hversu öfl­ugur sem for­maður flokks­ins væri, sem þeir voru sann­ar­lega lang­flest­ir, skyldi lands­fundur eða flokks­ráðs­fundur tryggja að sá sem næstur stæði for­mann­inum hefði ríku­lega stjórn­mála­lega reynslu ef örlög eða atvik hög­uðu því svo að fylla þyrfti skarðið yrðu góð tök á því.“

Nú þætti hins vegar fínt að reynslu­lítið fólk sem hefði fengið póli­tískt vægi með slíkt nesti langt umfram það sem áður tíðk­að­ist, tal­aði niður til flokks­systk­ina sinna og legði lykkju á leið sína til að vísa þeim sem eldri eru út úr umræð­unni með þótta sem færi öllum illa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár