Stríðið í Sjálfstæðisflokknum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins og hefur van­ist því að stjórna málum þess. Staða hans hefur þó veikst til muna síð­ast­lið­inn ára­tug. Hrunið og klofn­ingur vegna Evr­ópu­sam­bands­mála skiptu þar miklu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið hryggja­stykkið íslenskum stjórn­málum frá því að Ísland öðl­að­ist full­veldi. Flokk­ur­inn varð til árið 1929 þegar Íhalds­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndi flokk­ur­inn sam­ein­uð­ust og hélt því nýverið upp á 90 ára afmæli sitt.

Frá því að Ísland fékk sjálf­stæði fyrir 75 árum síðan hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn setið í rík­is­stjórn í þrjú af hverjum fjórum árum. Fram á tíunda ára­tug­inn réð flokk­ur­inn líka nær und­an­tekn­ing­ar­laust höf­uð­borg­inni.

Fylgi flokks­ins var oft­ast nær á bil­inu 35 til 40 pró­sent. Hann var breið­fylk­ing sem náði að sækja stuðn­ing til fjöl­margra stétta. Fram að banka­hruni hafði flokk­ur­inn ein­ungis einu sinni fengið undir tæp­lega þriðj­ungi greiddra atkvæða. Það var árið 1987 þegar klofn­ingur átti sér stað og Borg­ara­flokk­ur­inn undir stjórn Alberts Guð­munds­sonar náði 10,9 pró­sent atkvæða, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn undir stjórn Þor­steins Páls­sonar ein­ungis 27,2 pró­sent. Flokk­ur­inn jafn­aði sig þó fljótt. árið 1991 var Borg­ar­flokk­ur­inn allur og Sjálf­stæð­is­flokkur, þá í fyrsta sinn undir for­ystu Davíðs Odds­sonar, fékk 38,6 pró­sent og bætti við sig 11,4 pró­sentu­stigum milli kosn­inga.

Hrunið breytti landslaginu

Hrunið fór illa með Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Á fundi sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boð­aði til á Grand hótel í jan­úar 2009, í kjöl­far slita á rík­is­stjórn Geirs H. Haarde, ákvað Geir, þáver­andi for­maður flokks­ins, að setja á fót End­ur­reisn­ar­nefnd. Til­gang­ur­inn var að líta inn á við eftir ástæðum fyrir því að fór sem fór.

Heild­ar­nið­ur­staða nefnd­ar­innar var að fólk hefði brugð­ist, ekki stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Í lok mars 2009 var hald­inn lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks. Þar tók Davíð Oddsson, sem gegndi engri annarri stöðu innan flokks­ins á þeim tíma en að vera lands­fund­ar­full­trúi, til máls í eft­ir­minni­legri og harð­orðri ræðu. Á meðal þess sem Davíð sagði var að skýrsla End­ur­reisn­ar­nefnd­ar­innar væri hráka­smíð og hann sæi eftir þeim trjá­gróðri sem not­aður var í prentun skýrsl­unnar.

Eftir það var ekki aftur rætt um skýrsl­una á vett­vangi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Á sama lands­fundi var hinn 39 ára gamli Bjarni Bene­dikts­son kjör­inn for­maður með 58 pró­sent greiddra atkvæða. „Ég er eins og skyr, ég er mjög hrærður,“ sagði nýi for­mað­ur­inn af þessu til­efni.

Það var þó ekki langur tími til stefnu til að venj­ast nýrri stöðu fyrir for­mann­inn. Kosn­ingar voru haldnar innan við mán­uði síðar. Í þeim fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verstu nið­ur­stöðu í sögu sinni, 23,7 pró­sent atkvæða.

Ekki náð fyrri styrk en samt stærstur

Ólíkt því sem gerð­ist 1987 þá jafn­aði staðan sig ekki í næstu kosn­ingum á eftir að neinu marki. Nið­ur­staðan í kosn­ing­unum 2016 varð aðeins betri, þegar flokk­ur­inn fékk 29 pró­sent, en fylgið seig aftur ári síðar eftir að fyrsta rík­is­stjórnin undir for­sæti Bjarna sprakk eftir átta mán­aða setu. Í síð­ustu kosn­ingum reynd­ist fylgið vera 25,3 pró­sent, það næst minnsta sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni fengið.

Frá því að Bjarni var kjörin for­maður hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn því farið í gegnum fjórar kosn­ingar og aldrei náð yfir 30 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn sem sjálfur hefur litið á sig sem ímynd stöð­ug­leika í íslensku stjórn­mála­lands­lagi hefur auk þess ekki myndað rík­is­stjórn sem setið hefur út kjör­tíma­bil frá því að Davíð Oddsson gerði slíkt árið 2003. Á þeim tíma sem lið­inn er síðan þá flokk­ur­inn átt aðkomu að fjórum rík­is­stjórnum. Enn er ekki útséð með þá sem nú situr undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur sem sam­anstendur af Sjálf­stæð­is­flokki, Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki, enda kjör­tíma­bilið ekki tveggja ára gam­alt.

Pólitíski ómöguleikinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn klofn­aði fyrir nokkrum árum. Líklega má rekja upp­hafs­dag þeirrar veg­ferðar til 21. febr­úar 2014 þegar þáver­andi rík­is­stjórn lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að draga umsókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka.

Hópur frjál­syndra alþjóða­sinna innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins taldi sig vera illa svik­inn. Þeir töldu sig hafa fengið skýr lof­orð frá flokki sínum um að umsóknin yrði ekki dregin til baka nema með þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í aðdrag­anda kosn­inga 2013.

Í febr­úar 2014 sagði Bjarni, sem þá var orð­inn fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, í pontu á Alþingi að án póli­tísks stuðn­ings við aðild­ar­um­sókn væri ómögu­legt að ljúka mál­inu. „Þá hljótum við að vera sam­mála um að hér er ákveð­inn ómögu­leiki til staðar."

Viðreisnarhópurinn klýfur flokkinn

Strax í apríl 2014 fór hópur Sjálf­stæð­is­manna að hitt­ast til að vinna að mótun nýs fram­boðs. Fyrsti form­legi stefnu­mót­un­ar­fundur hins nýja stjórn­mála­afls var hald­inn 11. júní 2014. Um svipað leyti var til­kynnt að flokk­ur­inn myndi heita Viðreisn, eftir Við­reisn­ar­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Alþýðu­flokks sem sat við völd á Íslandi frá 1959 og fram til árs­ins 1971. Tæpu ári síðar, 17. mars 2015, var hald­inn fyrstu fundur stuðn­ings­manna flokks­ins. Flokk­ur­inn var loks form­lega stofn­aður á fundi í Hörpu 24. maí 2016 sem um 400 manns mættu á. Þar var Benedikt Jóhann­es­son kjör­inn fyrsti for­maður hans.

Í kosn­ing­unum náði Viðreisn í 10,5 pró­senta atkvæða og eftir langar og strangar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum end­aði flokk­ur­inn ásamt Bjartri fram­tíð í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Sú rík­is­stjórn náði að verða óvin­sælasta rík­is­stjórn lýð­veld­is­tím­ans og sat í ein­ungis átta mán­uði. Viðreisn fór ekki vel út úr þeirri stjórn­ar­setu. Þegar allt stefndi í að flokk­ur­inn myndi þurrkast út í aðdrag­anda kosn­inga 2017 hætti Benedikt sem for­maður og Þor­gerður Katrín tók við. Á end­anum náði flokk­ur­inn í 6,7 pró­sent atkvæða og hélt sér á lífi.

Flokk­ur­inn bauð í fyrsta sinn fram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í fyrra. Þar fékk hann til að mynda 8,2 pró­sent atkvæða í Reykja­vík og mynd­aði meiri­hluta þar með þremur öðrum flokkum á miðj­unni og til vinstri.

Í síð­ustu könnun MMR mæld­ist fylgi Við­reisnar á lands­vísu 9,5 pró­sent. Það er 43 pró­sent af því fylgi sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist með í þeirri könnun, sem var 22,1 pró­sent.

Tilvera flokks­ins er því aug­ljóst högg fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Ungliðaáhrifin

Það var þó ekki svo að allir frjáls­lyndir alþjóða­sinnar hefðu yfir­gefið Sjálf­stæð­is­flokk­inn þegar Viðreisn var stofnuð og að eins­leitur hópur íhalds­manna sæti þar eftir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er mun breið­ari og flókn­ari en svo og stór hluti flokks­manna lítur á sig sem ákaf­lega frjáls­lynt fólk sem styður marg­hátt­aða alþjóða­sam­vinnu en er samt sem áður á móti Evr­ópu­sam­bands­að­ild.

Á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2015 gerðu ung­liðar innan flokks­ins til að mynda skæru­árás þar sem lagðar voru fram allskyns breyt­ing­ar­til­lögur á stefnu hans. Á meðal þess sem lagt var fram var krafa um nýjan gjald­mið­il, aðskiln­að ­ríkis og kirkju, aukið net­frelsi, aflagn­ingu refsi­stefnu í fíkinefna­mál­u­m, ­aukin mann­rétt­indi handa trans- og inter­sex­fólki, til­færslu hjóna­vígslna al­farið til sýslu­manna, aflagn­ingu manna­nafna­nefnd­ar, að sam­kyn­hneigðir karl­menn ­fái að gefa blóð, að kvóta­kerfið í land­bún­aði yrði afnumið og að kosn­inga­ald­ur yrði lækk­aður í 16 ár.

Þótt allar kröfur ung­lið­anna hafi ekki náð í gegn á end­anum höfðu þær umtals­verð áhrif á lands­fund­inn og nið­ur­stöðu hans. Það end­ur­spegl­að­ist ágæt­lega í kosn­ingu Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, sem hafð­i ­leitt hóp­inn, sem rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þá rétt að verða 25 ára gömul.

Þessi vel heppn­aða aðgerð ung­lið­ana þótti til marks um að að veru­legar glæður væru enn í frjáls­lynd­is­armi flokks­ins. Áslaug Arna hefur síðan hlotið mik­inn fram­gang, verið kosin á þing og fékk korn­ung það hlut­verk að sinna for­mennsku í utan­rík­is­mála­nefnd. Bæði and­stæð­ingar hennar innan stjórn­mála og stuðn­ings­menn eru margir sam­mála um að hún hafi sinnt því hlut­verki vel. Sé stað­föst, vel und­ir­búin en kurt­eis og mál­efna­leg í sam­skiptum. Sér­stak­lega þykir hún hafa vaxið í þeim stormi sem geisað hefur vegna þriðja orku­pakk­ans, en mikið hefur mætt á hennar nefnd vegna hans.

Hörð gagnrýni frá fyrrverandi formönnum

Síðustu árin hefur flokks­for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins þó legið undir stans­lausri gagn­rýni ann­ars vegar frá þeim sem telja flokk­inn of íhalds­saman og hins­vegar frá þeim sem telja hann ekki nægi­lega íhaldsaman. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son kom inn á þessa stöðu, og hvað það væri sem gerði hana svona óvenju­lega, í við­tali á Hring­braut í maí. Þar sagði hann að það sem væri „nýtt og við höfum aldrei haft er þú ert með fyrrum for­menn sem eru svona gagn­rýnir á Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Eru bara að ham­ast í því mjög lengi. Við erum ann­ars vegar með Þor­stein Páls­son, sem er far­inn í annan flokk, og svo Davíð Odds­son.“

Þor­steinn er nú á meðal hug­mynda­fræð­inga Við­reisnar. Davíð hefur síð­ast­lið­inn tæpan ára­tug verið rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sem hefur sögu­lega ætið gengið í takt með Sjálf­stæð­is­flokknum og var ára­tugum saman form­legt mál­gagn hans. Þaðan hefur hann gagn­rýnt for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rit­stjórn­ar­skrifum og síð­ustu ár virð­ist stjórn­mála­leg sam­leið hans vera fyrst og fremst vera með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni og þeim flokkum sem hann stýrir hverju sinni. Inntak þeirrar hug­mynda­fræði er tor­tryggni gagn­vart alþjóða­sam­starfi grund­völluð á full­veld­is­rökum, þjóð­ern­is­kennd, gagn­rýni á kerf­i­s­væð­ingu stjórn­mála og krafa um að völd verði í auknum mæli færð aftur til kjör­inna stjórn­mála­manna og and­staða við aukið frjáls­lyndi í lögum lands­ins sem hefur það mark­mið að auka rétt­indi afmark­aðra hópa.

Davíð er ekki einn um að hafa þessa skoðun. Hann er þvert á móti birt­ing­ar­mynd hóps manna innan flokks­ins sem telur hann hafa villst veru­lega af leið í sinni póli­tík.

Skilnaður flokks og blaðs

Und­an­farna mán­uði hefur veru­lega bætt í hörk­una í gagn­rýni Davíðs og þeirra sem deila með honum skoð­unum. Aðallega hefur hún hverfst um tvö mál, ný lög um þung­un­ar­rof sem heim­ila slíkt fram á 22 viku þung­unar og svo þriðja orku­pakk­ann.

Í fyrra­haust, áður en að Klaust­ur­málið frestaði þriðja orku­pakka­stríð­inu um nokkra mán­uði, skrif­aði Davíð tvo leið­ara þar sem hann gagn­rýndi Þordísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylf­dóttur, vara­for­mann flokks­ins,harka­lega.

Gagnrýni hans hefur haldið skýrt áfram á þessu ári og orðið breið­ari. En und­an­farið hefur for­ystu­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins svarað honum fullum hálsi.

Skýrasta dæmið var í grein Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í lok síð­asta mán­aðar. Þar sagði hún meðal ann­ars: „Rétt er það sem áður hefur verið haldið fram í þessu blaði að upp­finn­inga­menn hafa lengi reynt að finna upp eilífð­ar­vél­ina og ekki tek­ist. Því er mik­il­vægt að fest­ast ekki í for­tíð­inni, heldur þró­ast í takt við nýja tíma og leiða þær óum­flýj­an­legu breyt­ingar sem fram­tíðin mun hafa með sér fremur en að ótt­ast þær[...]Það er ekki hlut­verk Sjálf­stæð­is­flokks­ins að standa vörð um úreltar hug­myndir sem þóttu einu sinni góð­ar. Við gerum grein­ar­mun á grunn­gildum og ein­staka stefnu­málum eða úrræðum sem einu sinni virk­uðu. Um leið og við berum virð­ingu fyrir sög­unni er mik­il­vægt að við mótum fram­tíð­ina.“

Auk þess að vera í for­ystu­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins þá hefur Áslaug Arna teng­ingu inn í rekstur Morg­un­blaðs­ins. Faðir hennar Sig­ur­björn Magn­ús­son, er stjórn­ar­for­maður útgáfu­fé­lags blaðs­ins.

Þá vakti ekki síður athygli að á 90 ára afmæli Sjálf­stæð­is­flokks­ins í lok síð­asta mán­aðar ákvað Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, að birta afmæl­is­grein í Frétta­blað­inu ekki Morg­un­blað­inu. Sú ákvörðun, sem er eins­dæmi, þótti senda skýr skila­boð um hvernig for­mað­ur­inn teldi sam­band flokks­ins við gamla mál­gagnið standa.

Flokksforystan fari frá flokknum

Davíð hefur lagt Reykja­vík­ur­bréf Morg­un­blaðs­ins undir gagn­rýni á flokk­inn sinn und­an­farnar vikur og þar bætt í frekar en dregið úr. Þann 8. júní lagði hann út frá aðsendri grein eftir Jón Hjalta­son í Reykja­vík­ur­bréfi dags­ins, sem hafði þá nýverið birst. Þar taldi höf­und­ur­inn upp allt sem Sjálf­stæð­is­flokkur dags­ins í dag væri ekki að gera en sem hann teldi að væri hin eina sanna sjálf­stæð­is­stefna.

Greinin hófst á því að höf­undur sagði að nú um stundir sýnd­ist honum „sem flokks­for­yst­unni þyki helst við hæfi að hnýta í þann for­mann sem verið hefur þjóð­inni og flokknum drýgstur og best­ur. Mér stendur stuggur af ykkur því ég hefi þungar áhyggjur af flokkn­um.“ Sá for­maður sem vísað var til var Davíð Odds­son. Jón sagð­ist hafa rætt við hund­ruð félags­manna sem hugn­ist ekki ferða­lag flokks­for­yst­unnar og ætli ekki að slást í þá för. Hann taldi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn undir for­ystu Bjarna hefði svik­ist undan því að lækka skatta, hafi svikið flokk­inn með því að ráð Má Guð­munds­son sem seðla­banka­stjóra, svik­ist undan merkjum með því að sam­þykkja Icesave-samn­ing­inn, heykst á að aft­ur­kalla umsókn að Evr­ópu­sam­band­inu, farið gegn vilja flokks­ins í þriðja orku­pakka­mál­inu og öðru sem snéri að inn­leið­ingum frá Evrópu, hafi ekk­ert gert til að „slá á þá ger­ræð­is­legu hug­mynd að færa Reykja­vík­ur­flug­völl“ né til að „hamla braut­ar­gengi hinnar fárán­legu Borg­ar­línu“. Þá hafi flokks­for­ystan stutt „nán­ast tak­marka­lausar fóst­ur­eyð­ingar“, ekk­ert gert til að koma böndum á „fjár­sóun og fárán­leika í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu“, ekk­ert gert til að koma „ein­hverju skikki á opin­gátt­ar­flæði hæl­is­leit­enda“, þanið út báknið, rekið kaup­fé­lag í Leifs­stöð og beri mesta ábyrgð allra flokka á RÚV. Þá hafi flokks­for­ystan kastað fyrir róða „eina ráð­herr­anum sem sýnt hefur stað­festu, þor og dug,“ og vís­aði þar í Sigríði Á. Andersen, sem var látin segja af sér sem dóms­mála­ráð­herra fyrr á þessu ári og er í miklum metum hjá íhalds­sam­ari hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Jón sagð­ist hafa rætt við hund­ruð félags­manna sem hugn­ist ekki ferða­lag flokks­for­yst­unnar og ætli ekki að slást í þá för.

Í nið­ur­lagi greinar Jóns sagði síð­an: „Ég velti fyrir mér hvort ekki væri far­sælla að þið færuð frá flokknum en að flokk­ur­inn fari frá ykk­ur.“

Þessi orð gerði Davíð að sínum og sagði að miðað við „sam­ræmdar árásir sem leyna sér ekki og spuna­meist­arar halda utan um og Jón nefnir í upp­hafi sinnar greinar er rétt að taka fram að rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins hafa ekk­ert heyrt um stefnu eða rök­stuðn­ing þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Morg­un­blaðið er borg­ara­legt blað og þótt það lúti ekki fjar­stýr­ingum utan úr bæ frá flokkum eða ein­stak­lingum lætur að líkum að blaðið ætti oftar en ekki að geta átt góða sam­leið með flokknum ef hann er sjálfum sér sam­kvæmur og heill í fögrum fyr­ir­heitum sín­um.“

Kastast í opinbera kekki við Engeyinga

Viku síðar var stríðið orðið enn hat­ramm­legra. Þá stóð í Reykja­vík­ur­bréf­inu að ekki væri að velj­ast nægi­lega öfl­ugt fólk í for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það hafi lengi verið „óskráð meg­in­regla í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, sem reynd­ist vel, að hversu öfl­ugur sem for­maður flokks­ins væri, sem þeir voru sann­ar­lega lang­flest­ir, skyldi lands­fundur eða flokks­ráðs­fundur tryggja að sá sem næstur stæði for­mann­inum hefði ríku­lega stjórn­mála­lega reynslu ef örlög eða atvik hög­uðu því svo að fylla þyrfti skarðið yrðu góð tök á því.“

Nú þætti hins vegar fínt að reynslu­lítið fólk „sem hefur fengið póli­tískt vægi með slíkt nesti langt umfram það sem áður tíðk­að­ist, tali niður til flokks­systk­ina sinna og leggi lykkju á leið sína til að vísa þeim sem eldri eru út úr umræð­unni með þótta sem fer öllum illa.“

Þórdís Kolbrún tók gagn­rýn­ina greini­lega til sín og aug­ljóst var að hún var að senda Davíð, og þeim sem fylgja honum að málum, sneið þegar hún skrif­aði í stöðu­upp­færslu á Facebook um síð­ustu helgi að það væri mik­il­vægt að eiga góðar og traustar vin­konur, sér­stak­lega þegar „alls­konar mik­il­menni gagn­rýna mann og hafa helst á mann að fylgja sann­fær­ingu sinni, hlusta á mag­ann sinn og vera bara rúm­lega þrí­tugur.“

Sú vend­ing hafði orðið þarna að Halldór Blöndal, fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­seti Alþingis, hafði skrifað grein í Morg­un­blaðið og gagn­rýnt Davíð fyrir gagn­rýni sína. Þar skrif­aði Halldór, sem er náfrændi Bjarna Bene­dikts­sonar og hluti hinnar frægu og valda­miklu Eng­eyj­a­rætttar, að skrif Davíðs lýstu sál­ar­á­standi hans. Davíð svar­aði því til að Halldór rataði illa „eftir að notk­unin á ætt­ar­vit­anum óx. Og lendir þá í hverri haf­vill­unni af annarri.“

Uppgjör framundan eða sverðin slíðruð

Sem stendur virð­ist sú staða vera komin upp að áhrifa­mikil öfl innan hans, sem standa utan for­yst­unnar, telji að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti ekki verið bæði íhalds­flokkur og frjáls­lyndur flokkur.

Ekkert bendir til þess að draga muni úr átökum á milli þeirra afla sem takast nú á um sál Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ef ekki tekst að slíðra sverðin fyrir næsta lands­fund, sem er áætl­aður í byrjun næsta árs, verður óum­flýj­an­legt að þar komi til upp­gjörs.

Flokks­for­ystan sækir þó styrk í það að í gegnum þann storm sem hefur geisað frá því síð­sum­ars í fyrra hefur fylgi flokks­ins hald­ist nokkuð stöðugt. Fylgi þess flokks sem býður upp á íhalds­saman val­kost við hann, Mið­flokks­ins, hefur auk þess vart hagg­ast.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur auk þess margoft sýnt það að hann getur sett vanda­mál og ágrein­ing til hliðar þegar kemur að kosn­ingum og unnið sem heild. Flokk­ur­inn er enda ein stærsta fjölda­hreyf­ing lands­ins með tug­þús­undir skráðra flokks­manna og mikið afl sem kosn­inga­vél.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár