Dæmi um áherslur í Morgunblaðinu sem Bjarni finnur ekki samleið með

Formaður Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn segir að hann upp­lifi það ekki að köldu andi milli hans og Davíðs Odds­sonar. Það séu þó ekki mikil sam­skipti þeirra á milli eins og er.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að það séu ekki mikil sam­skipti milli hans og Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­manns flokks­ins, eins og er. Hann upp­lifi það þó ekki að köldu andi milli sín og Davíðs þótt að þá síð­ar­nefndi hafi gagn­rýnt flokks­for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í leið­ara­skrifum og Reykja­vík­ur­bréfum fyrir að hafa villst af leið í stjórn­málum.

Bjarni segir, í við­tali sem birt­ist við hann í Mannlífi í dag, að sumt af því sem lögð sé áhersla á í Morg­un­blað­inu hafi komið honum á óvart. „Mér finnst Morg­un­blaðið heilt yfir almennt vera að tala fyrir til dæmis efna­hags­stefnu sem er lík­leg til árang­urs en mér finnst alveg hafa verið dæmi um áherslur í blað­inu sem ég finn ekki sam­leið með.“

[adspot]Bjarni segir í við­tal­inu hann sé kom­inn með harðan skráp og seg­ist hafa lært ákveðna auð­mýkt með tím­anum þegar kemur að gagn­rýni. „Maður lærir að bera virð­ingu fyrir ólíkum sjón­ar­miðum. Ég ætla ekki að segja að þetta sé alltaf auð­velt. En mót­lætið styrkir mann. Með því að sigr­ast á erf­ið­leikum þá verður maður sterk­ari til þess að fást við enn erf­ið­ari mál.“

Borgaralegt blað sem lúti ekki fjarstýringu utan úr bæ

Áratugum saman hefur verið form­legt eða óform­legt sam­band milli Morg­un­blaðs­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Full­trúar Morg­un­blaðs­ins sátu til að mynda ára­tugum saman þing­flokks­fundi Sjálf­stæð­is­flokks, þótt slitið hafi verið á þau form­legu tengsl seint á síð­ustu öld.

Und­an­farin ár hefur farið minna fyrir þessu sam­bandi og gagn­rýni á for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins orðið algeng­ari í rit­stjórn­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins þrátt fyrir að í stafni sitji fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins.

[links]Skýrasta dæmið um þetta birt­ist í Reykja­vík­ur­bréfi sem birt var í júní í fyrra. Þar skrif­aði Davíð, í bréfi þar sem umfjöll­un­ar­efnið var að uppi­stöðu Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, meint fjar­lægð hans frá kjós­endum sínum og þriðji orku­pakk­inn, að Morg­un­blaðið væri „borg­ara­legt blað og þótt það lúti ekki fjar­stýr­ingum utan úr bæ frá flokkum eða ein­stak­lingum lætur að líkum að blaðið ætti oftar en ekki að geta átt góða sam­leið með flokknum ef hann er sjálfum sér sam­kvæmur og heill í fögrum fyr­ir­heitum sín­um.“

Þetta rof á sam­bandi flokks og blaðs hefur einnig birt­ist í hina átt­ina. Það vakti til að mynda mikla athygli í maí í fyrra, þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn varð 90 ára, að for­maður hans ákvað að birta afmæl­is­grein í Frétta­blað­inu ekki Morg­un­blað­inu. Sú ákvörðun þótti senda skýr skila­boð um hvernig for­mað­ur­inn teldi sam­band flokks­ins við gamla mál­gagnið standa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár