Mammon alltaf nálægur, harkaleg umræða í pólitík – og sama hjakkið

Kjarninn hitti á vor­mán­uðum og í byrjun sum­ars fimm full­trúa stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna og fékk sýn þeirra á stöðu mála á þessu ein­kenni­lega ári, sem og fram­tíð­ar­sýn þeirra fyrir Ísland.

Íslenska ríkið er búið setja gríð­ar­lega fjár­muni í að takast á við þá stöðu sem nú er uppi í sam­fé­lag­inu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs. Deilt er um hvort nógu mikið, eða jafn­vel of mikið, sé að gert til að mæta stöðu íbúa og fyr­ir­tækja. Á meðan halda reikn­ing­arnir sem ber­ast rík­is­sjóði áfram að hrann­ast upp.

Kjarninn hitti tals­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fimm sem sitja á Alþingi og ræddi við þá um stöð­una og hver fram­tíð­ar­sýn þeirra væri varð­andi íslenskt sam­fé­lag.

Sjávarútvegsmálin eitt af stóru kosningamálunum

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, sagði í sam­tali við Kjarnann þegar hún var spurð út í póli­tískar áherslur næsta árs að hún teldi að sjáv­ar­út­vegs­málin yrðu eitt af stóru kosn­inga­mál­unum á næsta ári „og þessi spill­ing og það sem við þurfum að horfa upp á dag­inn út og inn, þessi lít­ils­virð­ing við borg­ar­ana og þessi sjálf­taka elít­unnar. Við erum búin að fá nóg af þessu og ég trúi því að við eigum eftir að láta í okkur heyra.“

Þannig hefði svo­kallað Sam­herj­a­mál og „síð­asta sum­ar­gjöfin“ – en þar vís­aði Inga í yfir­færslu eign­ar­halds á Samherja hf. eig­enda til barna sinna – ekki verið að gera sig og taldi hún að Íslend­ingar myndu í fram­hald­inu taka á sínum málum. Næsta kosn­inga­bar­átta myndi í raun­inni draga þessi atriði fram. „Ég vona að hún dragi sjálftöku­væð­ing­una bein­ustu leið fram í dags­ljósið,“ sagði hún.

Mis­jafnar skoð­anir voru á aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar í COVID-19 far­aldri eins og gengur og sagði Inga það vera lág­marks­kröfu að stjórn­völd tækju utan um fjöl­skyld­urnar og fátækt fólk í land­inu á tímum sem þessum – á sama hátt og þau björg­uðu fyr­ir­tækj­unum.

„Að ætla að halda því fram að fyr­ir­tæki sem hafa verið að greiða sér millj­arða í arð hafi þurft á því að halda að stinga föt­unni strax undir rík­is­kran­ann og eiga ekki krónu í eigið fé til þess að takast á við hol­skefl­una og þessa brekku. Auðvitað hefðu þau átt að klifra sína brekku og nota sitt eigið fé og sýna að minnsta kosti smá reisn og virð­ingu við þjóð­ina sína. Við erum að henda björg­un­ar­hringum og við von­uð­umst til fyr­ir­tæki tækju við þeim sem þyrftu á að halda. En að hinir færu ekki að mis­nota þessa björgun.“

Ingu fannst aðrar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar þó algjör­lega lífs­nauð­syn­legar fyrir sam­fé­lagið, fyr­ir­tækin og vinn­andi fólk í land­inu. „Það kom þó að því að sem mér fannst aðgerð­irnar gjör­sam­lega hafa misst mark en það var þegar rík­is­stjórnin ákvað að greiða fyr­ir­tækjum fyrir að segja upp starfs­mönnum sínum.“

Inga Sæland
Inga Sæland

Mammon er alltaf nálægur

Inga sagði að hún hefði viljað sjá gripið til aðgerða aðeins fyrr í sam­bandi við að hamla komu ferða­manna til lands­ins. „Ég vil meina að þá hefðum við sparað okkur marga tugi millj­arða vegna þess að það botn­fraus í ferða­þjón­ust­unni – og það hefði alltaf gerst, sem og í afleiddum störfum. En við hefðum getað losnað við lok­un­ar­styrki og ýmis­legt annað. Við hefðum losnað við það að banna heim­sóknir til ömmu og afa á hjúkr­un­ar­heim­ili og að mega ekki fara í rækt­ina og sund og verið í alls konar nálg­un­ar­tak­mörk­unum og í sam­komu­banni ef við hefðum við­ur­kennt ástandið aðeins fyrr.“

Inga sagði að mammon væri alltaf nálægur og að sumir forð­uð­ust að við­ur­kenna vand­ann sem þjóðir heims­ins þyrftu að takast á við. Íslend­ingar hefðu átt að taka mark á þessum vanda fyrr.

Hún sagði aftur á móti að eftir að Íslend­ingar hefðu farið að taka til hend­inni og vinna í þessum þáttum þá hefði þeim tek­ist dásam­lega vel til. „Það er alveg æðis­legt hvað þjóðin okkar er sam­stíga og hvað við gerðum þetta öll saman. Hvað allir hlýddu Víði vel, hvernig við til­báðum þrí­eykið og við gerðum allt sem þau sögðu okkur að gera. Það er þess vegna sem við náum þessum frá­bæra árangri.“

Ekki hægt að una við fátækt

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði að hann teldi að á Íslandi væri ein­fald­lega of lítið sam­fé­lag til þess að hægt væri að una við fátækt í sama mæli og kannski stór­þjóðir gætu þar sem hægt væri að loka aug­unum fyrir svo­leiðis. „Við þekkjum öll fólk sem er í vanda – þetta er svo nálægt okkur og ég held að við séum það ríkt land, bæði af mannauði en líka af nátt­úru­auð­lindum, að ef við skiptum þessu á milli okkar þá gætum við hrein­lega verið fyrsta landið til þess að útrýma því sem að heitir fátækt á Íslandi.“

Hann benti á að 8.000 börn byggju við fátækt á Íslandi og að það snerti alla – því allir þekktu fjöl­skyldur sem glímdi við þessar aðstæður. Það væri hins vegar algjör óþarfi, að hans mati.

Þegar Logi var spurður út í það hvers vegna þverpóli­tískt sam­starf væri mik­il­vægt sagði hann að Íslend­ingar sigldu nú ekki inn í kreppu sem ætti sér stað vegna þess að rík­is­stjórnin hefði gert mis­tök í sjálfu sér. „Auðvitað var efna­hags­lífið farið að kólna og það var margt sem þessi rík­is­stjórn, og ekki síst þessar síð­ustu, gerðu rangt í aðdrag­anda – því það lá fyrir að það myndi halla undan fæti. En þau sann­ar­lega bera ekki ábyrgð á kór­ónu­veirunni.

Í því ljósi þegar verið er að aftengja alla venju­lega hag­stjórn – þegar hag­fræð­ingar hafa engin svör hvað ger­ist þegar fram­boð og eft­ir­spurn fellur á sama tíma – þá þarf frum­legar og djarfar lausnir og það þarf ekki síst sam­stöðu hjá þjóð­inni um þær aðgerðir – eins og til dæmis var um aðgerðir heil­brigðisteym­is­ins. Og þess vegna held ég að það hefði verið heppi­legra fyrir þjóð­arsál­ina og fyrir rík­is­stjórn­ina líka, því við munum líka eðli­lega, ef við erum ekki höfð með í ráðum, benda á þau mis­tök sem þau gera á leið­inni.“

Pólitísk umræða gæti orðið býsna harkaleg

Logi gerði ráð fyrir því þegar líða færi á haustið að við mörgum blasti harður vetur. Þegar atvinnu­leysi og ójöfn­uður hefði auk­ist, þá gæti póli­tísk umræða orðið býsna harka­leg. „Og ég held að hún verði að vera það. Þrátt fyrir allt þá er þetta réttur tími til að ræða grund­vall­ar­gildi og spyrja: Hvers konar sam­fé­lag viljum við hafa?

Ég held að við getum verið sam­mála um það allir þing­menn að við erum ekki að reka sjoppu, við erum að reka sam­fé­lag þar sem leik­regl­urnar verða að vera skýrar – eðli­lega. Og gagn­sæjar og lýð­ræð­is­legar. Og í raun þarf fram­tíð­ar­sýnin að miða að því að við skilum næstu kyn­slóð meiri gæðum heldur en við bjuggum við – eða að minnsta kosti ekki verri.“

Logi Einarsson
Logi Ein­ars­son

Um þær leiðir er síður en svo sátt á milli stjórn­mála­flokk­anna, að sögn Loga. Það er það sem gerði núver­andi stjórn­ar­sam­starf áhuga­vert. „Af því að um leið og við þurfum að takast á við þessar grund­vall­ar­spurn­ingar og að við vitum að við erum á kross­götum, þá er ekki gott að hafa rík­is­stjórn sem deilir ekki sýn á fram­tíð­ina. Sem deilir ekki einu sinni sýn á grund­vall­ar­hluti eins og til­gang og eðli skatt­kerf­is­ins. Þau virð­ast hafa getað sam­ein­ast um að við­halda ein­hverjum mein­göll­uðum kerfum í sjáv­ar­út­vegi til dæmis. En annað ekki,“ sagði hann.

Vill sjá meiri skynsemi ríkjandi hér á landi

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði að hann myndi vilja sjá meiri skyn­semi ríkj­andi hér á Íslandi – en þar væri lyk­il­at­riðið að meira lýð­ræði yrði ríkj­andi. „Það sem ég á við með því er að ég hef lengi haft áhyggjur af því og oft talað um að það sem ég kalla kerf­is­ræði sé alltaf að aukast.“

Hann sagði að ákveðin tæki­færi lægju í stórum krísum á borð við þá sem heim­ur­inn gengur nú í gegnum og að hann hefði viljað að Íslend­ingar myndu end­ur­meta hlut­ina – og von­andi nýta þessi stóru tæki­færi til þess að gera ákveðnar breyt­ingar.

„En í ljósi reynsl­unnar þá held ég að hlut­irnir breyt­ist ekki eins mikið og eins hratt og við myndum vilja. Því að mann­fólk er vanaf­ast í eðli sínu og á það til að fara til­tölu­lega fljótt aftur í sama farið,“ sagði hann.

Í sam­bandi við lýð­ræðispæl­ingar Sig­mundar Davíðs sagði hann að stjórn­mála­menn væru sífellt að gefa frá sér vald til ókjör­inna full­trúa sem ættu það ekki til að byrja með.

„Stjórn­mála­menn fá að fara með valdið fyrir almenn­ing og kjós­endur og hafa til þess fjögur ár áður en þeir eru dæmdir aftur af kjós­endum. Þannig að þegar stjórn­mála­menn færa ákvörð­un­ar­valdið hvernig sam­fé­lagið er rekið eitt­hvert annað, hvort sem það sé til emb­ætt­is­manna, sér­fræð­inga, nefnda eða stofn­ana – eða hvaða nöfnum sem það nefnd­ist – þá eru þeir að mínu mati að veikja lýð­ræðið.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son

Stjórnmálamennirnir þurfa að taka aftur til sín valdið

Sig­mundur Davíð sagði að það væri sama hvað fólk kýs – alltaf kæmi út sama nið­ur­staðan. Alltaf skipti minna og minna máli hver þessi nið­ur­staða yrði því að kerfið stjórn­aði áfram og stjórn­mála­menn­irnir væru á meðan upp­teknir við per­sónu­legar leiðir til þess að vinna að sínum málum.

„Ég er samt í smá bjart­sýniskasti í öllum þessum hremm­ingum núna og er að von­ast til að þetta gæti orðið punktur til þess að breyta þessu og við færum aftur að trúa á lýð­ræðið að því marki að almenn­ingur fengi meira að segja um gang mála.“

Það þyrfti að ger­ast með ýmsum hætti. „Það þarf að ger­ast með því að stjórn­mála­menn­irnir taki sér aftur vald – og auð­vitað hljómar þetta illa – en það þarf að gera þetta að póli­tísku valdi. Póli­tískt vald hljómar illa en fag­legar ákvarð­anir hljóma vel. En póli­tískar ákvarð­anir eru engu að síður lýð­ræð­is­legar ákvarð­anir, þannig að ég hefði viljað sjá stjórn­mála­menn­ina vera frakk­ari í því að taka ákvarð­anir og bera ábyrgð á þeim.

Svo þurfum við líka að sjá beinni aðkomu fólks að gangi máli en það er eitt af því sem hefur verið rætt í sam­bandi við stjórn­ar­skrár­vinn­una.“

Stjórnvöld „skila bara auðu“

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagði að Íslend­ingar væru að fara ofan í ákveðna holu; það er að segja að efna­hags­erf­ið­leik­arnir væru núna. Vonin væri nátt­úru­lega að þeim lyki þegar höml­unum verður aflétt og allt fer í gang aftur. „Við sjáum það þó flest og gerum okkur grein fyrir því að það verður ekki þannig.“

Hann sagði að vonin til að byrja með þegar far­ald­ur­inn var á byrj­un­ar­stigi hefði verið sú að þessir erf­ið­leikar væru „stutt pása“ og svo tæki allt við sér að nýju. „En á þeim tíma þegar fyrstu aðgerð­irnar voru boð­aðar hjá stjórn­völdum þá voru mun fleiri og þær raddir urðu hávær­ari að erf­ið­leik­arnir myndu standa lengur yfir en í tvo mán­uði.“

Hann benti á að stjórn­völd hefðu verið sama sinnis; að for­svars­menn hennar væru búnir að greina frá því að ástandið á næst­unni yrði ekki aftur eins og á síð­asta ári. „En á sama tíma hafa aðgerðir stjórn­valda nokkurn veg­inn ein­ungis verið til þess að moka ofan í þessa holu sem við erum í núna.“ Þá vís­aði Björn Leví í neyð­ar­að­gerðir stjórn­valda til þess að reyna að kom­ast yfir þau aug­ljósu vanda­mál sem íslenskt efna­hags­líf stendur frammi fyrir núna vegna COVID-19 far­ald­urs­ins – en þó án nokk­urrar áætl­unar hvað tæki við eftir hann.

„Það er það sem við höfum verið að kalla eftir; hver er áætl­unin í kjöl­farið en svarið er ein­fald­lega ekki neitt. Stjórn­völd skila bara auðu þar. Þau vísa jú eitt­hvað í nýsköpun – það má gefa þeim hrós fyrir það – en að mínu mati fer það rétt upp í það nýsköp­un­ar­stig sem ætti að vera alla­jafna.“

Björn Leví Gunnarsson
Björn Leví Gunn­ars­son

Höfum hjakkað í sama farinu

Varðandi nýsköp­un­ar­að­gerðir stjórn­valda þá sagði Björn Leví að þær næðu ekki yfir þann gríð­ar­lega fjölda fólks sem hefur orðið atvinnu­laust og leitar nú að vinnu. „Þess vegna þarf nú enn aukið átak í nýsköpun, til þess að nýta tæki­færið sem þetta svig­rúm gefur. Á und­an­förnum árum höfum við verið að hjakka í sama far­inu. Við höfum verið að nýta okkur þennan enn eina hval­reka sem ferða­þjón­ustan hefur verið – eins og til að mynda síldar­æv­in­týrið, álið og .com-bólan var fyrir okkur. Alltaf grípum við þessi tæki­færi sem gef­ast, við rennum út þá öldu ein­hvern veg­inn en spyrjum ekki hvað ger­ist þegar sú alda klár­ast. Við lendum alltaf í dýfu eftir það, í stað­inn fyrir að aldan fjari út á föstu landi þar sem við getum gengið án þess að falla í öldu­dal­inn.“

Björn Leví sagði að vissu­lega væru óhefð­bundnar ástæður fyrir því að ástandið væri erfitt núna en hann taldi að það hefði þó þrátt fyrir það verið fyr­ir­sjá­an­legt. „Það var í fyrra end­ur­skoðuð fjár­mála­stefna og allir umsagn­ar­að­ilar sögðu: Það er að koma dýfa. Þá var alltaf sagt að við værum að fara í mjúka lend­ingu en það var ekk­ert sem sýndi fram á það. Það var ein­ungis ágiskun.“

Hann sagði þess vegna að ástandið væri erfitt efna­hags­lega á Íslandi núna hvort sem COVID-19 sjúk­dóm­ur­inn hefði riðið yfir heim­inn eður ei. „En að sjálf­sögðu ekki af sömu stærð­argráðu – alls ekki – en skort­ur­inn á fram­tíð­ar­sýn stjórn­valda er algjör­lega sá sami. Það hefði komið lægð, eins og allir voru að benda á og búist var við og fjár­mála­stefnan end­ur­spegl­aði þá lægð, en það var eng­inn sýn um það hvernig við ætl­uðum annað hvort að koma í veg fyrir lægð­ina eða hvernig við ætl­uðum að stíga upp úr henni. Öll spá­módel gerðu ráð fyrir því að við yrðum komin í eðli­legan hag­vöxt eftir tvö ár. En það segja öll spá­módel alltaf og þá erum við bara að von­ast til þess að allt ger­ist sjálf­krafa.“

Þannig bygg­ust stjórn­völd við því að lægðin klárist eftir eitt til tvö ár. Hann sagði þó að þetta væri rétt ályktun að vissu leyti vegna þess að Ísland væri ríkt land – og taldi hann að í raun væri ein­kenni­legt að allir Íslend­ingar væru ekki ríkir vegna þessa ríki­dæmis. „Við erum nú að taka lán frá fram­tíð­ar­kyn­slóðum og við munum hafa efni á því láni. Það er eng­inn efi um það en þegar við tökum lán frá fram­tíð­inni þá eigum við að nota það til þess að byggja upp arð­semi til að greiða það lán til baka þannig að næstu kyn­slóðir þurfi ekki að greiða okkar skuldir. Við þurfum að gefa þeim tæki­færi til þess að fá arð af þeirri fjár­fest­ingu sem við fengum að láni frá þeim til þess að end­ur­greiða lánið. Þannig er hægt að halda sömu rétt­indum og þjón­ustu þrátt fyrir að borga lánið sem við þurftum að nota til þess að brúa þetta bil.“

Það sem vant­aði í aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar, að mati Björns Leví, er þessi arð­sem­is­fjár­fest­ing.

Þarf meira réttlæti inn í kerfin okkar

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, sagði að kallið frá sam­fé­lag­inu fælist í því að breyta raun­veru­lega vinnu­brögð­unum sem við­höfð eru á Alþingi. „Það er sama hvaðan gott kemur. Ég bind vonir við einmitt þetta; að við skor­umst ekki lengur undan því að fylgja því sem þarf að breyta inni á þingi og í þessum stóru mik­il­vægu kerfum okkur sem hafa áhrif á þjóð­arsál­ina. Því fólkið hefur skoðun á því að það þurfi meira rétt­læti, sann­girni og gagn­sæi í öll þessi kerfi okkar; land­bún­að­inn, sjáv­ar­út­veg­inn og mennta­kerfið.“

Hún sagð­ist skynja þetta ákall frá sam­fé­lag­inu – sem væri hvatn­ing fyrir fólk í stjórn­málum að sýna meira hug­rekki gagn­vart sér­hags­munum og fleira – að það yrði eitt­hvað til þess að breyt­ast og að það yrði breyt­ing á næst­unni.

Þor­gerður Katrín sagði að meg­in­þungi næsta kjör­tíma­bils yrði að takast á við efna­hags­málin, sam­hliða þeim verk­efnum sem fylgja COVID-19. Hún sagði að margt þyrfti að laga þegar þessu kór­ónu­veiru­tíma­bili verður lokið. „Við megum ekki skor­ast undan stórum áskor­unum,“ segir hún og benti á að núna væri meg­in­verk­efnið að kom­ast í gegnum veiruna en eftir það yrði hægt að ræða almenna hug­mynda­fræði um upp­bygg­ingu efna­hags­kerf­is­ins.

Spennandi að vera í pólitík núna

Þor­gerður Katrín sagði þetta jafn­framt vera ótrú­lega áhuga­verða tíma sem við lifum nú. „Það er spenn­andi að vera í póli­tík núna – og ég spái því ekki síst í haust að þá muni hug­mynda­fræði­legar póli­tískar línur skerp­ast.

Ég held að þegar fram líður á árið þá munum við sem elskum stjórn­mál og höfum áhuga á þeim sjá hversu áhuga­verðir tímar séu framundan. Og það er mjög stutt í ákveðna kontrasta í sam­fé­lag­inu sem við megum ekki hunsa eða líta fram hjá. Því þeir munu líka vera veg­vísar inn í fram­tíð­ina – það er hvernig fram­tíð við ætlum að skapa og móta eftir veiruna.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir

Þessa kontrasta mátti meðal ann­ars sjá í sjáv­ar­út­vegs­málum, að sögn Þor­gerðar Katrínar. Hún benti á að ekki fyrir svo mörgum árum hefðu lang­flestir verið sam­mála um svo­kall­aða samn­ings­leið en hún bygg­ir á því að ríkið geri samn­inga við nú­ver­andi hand­hafa fisk­veiði­heim­ilda um veiði­heim­ild­ir gegn gjaldi.

„Samn­ings­leiðin er lyk­il­at­riði til þess að rétta af þetta órétt­læti sem við höfum nú – það er að við gerum tíma­bundna samn­inga.“ Þor­gerður Katrín telur að auð­linda­at­kvæðið sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ætlar að setja í stjórn­ar­skrá sé hand­ó­nýtt vegna þess að rík­is­stjórnin sé tvisvar búin að fella á þessu kjör­tíma­bili tilllögur um tíma­bundna samn­inga.

„Þar er eng­inn vilji fyrir tíma­bundna samn­inga og þess vegna þarf að skrifa þetta beint inn í stjórn­ar­skrána. Sáttin sem for­sæt­is­ráð­herra vill ná um þetta auð­linda­á­kvæði er sátt við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, er sátt við Fram­sókn­ar­flokk­inn og er sátt við Mið­flokk­inn – en það er ekki sátt við þjóð­ina eða þingið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár