Mynd: Bára Huld Beck

Íslendingar búnir að fá nóg af sjálftöku elítunnar

Kjarninn tal­aði við full­trúa í stjórn­ar­and­stöð­unni til þess að kanna hvernig þeir sæju fram­tíð­ina fyrir sér – og hvaða leiðir væru bestar út úr þessu ástandi. Að þessu sinni er rætt við for­mann Flokks fólks­ins, Ingu Sæland.

Ég held að sjáv­ar­út­vegs­málin verði eitt af stóru kosn­inga­mál­unum á næsta ári – og þessi spill­ing og það sem við þurfum að horfa upp á dag­inn út og inn, þessi lít­ils­virð­ing við borg­ar­ana og þessi sjálf­taka elít­unnar. Við erum búin að fá nóg af þessu og ég trúi því að við eigum eftir að láta í okkur heyra.“

Þetta segir Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, um póli­tískar áherslur næsta árs og það sem hún telur að muni skipta almenn­ing máli á næstu miss­erum.

Þannig hafi svo­kallað Sam­herj­a­mál og „síð­asta sum­ar­gjöfin“ – en þar vísar Inga í yfir­færslu eign­ar­halds á Samherja hf. eig­enda til barna sinn – ekki verið að gera sig og telur hún að Íslend­ingar muni í fram­hald­inu taka á sínum málum. Næsta kosn­inga­bar­átta muni í raun­inni draga þessi atriði fram. „Ég vona að hún dragi sjálftöku­væð­ing­una bein­ustu leið fram í dags­ljósið,“ segir hún.

Mis­jafnar skoð­anir eru á aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar í COVID-19 far­aldri eins og gengur og segir Inga það vera lág­marks­kröfu að stjórn­völd taki utan um fjöl­skyld­urnar og fátækt fólk í land­inu á tímum sem þessum – á sama hátt og þau bjarga fyr­ir­tækj­unum.

„Að ætla að halda því fram að fyr­ir­tæki sem hafa verið að greiða sér millj­arða í arð hafi þurft á því að halda að stinga föt­unni strax undir rík­is­kran­ann og eiga ekki krónu í eigið fé til þess að takast á við hol­skefl­una og þessa brekku. Auðvitað hefðu þau átt að klifra sína brekku og nota sitt eigið fé og sýna að minnsta kosti smá reisn og virð­ingu við þjóð­ina sína. Við erum að henda björg­un­ar­hringum og við von­uð­umst til fyr­ir­tæki tækju við þeim sem þyrftu á að halda. En að hinir færu ekki að mis­nota þessa björgun.“

Ingu finnst aðrar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar þó algjör­lega lífs­nauð­syn­legar fyrir sam­fé­lagið, fyr­ir­tækin og vinn­andi fólk í land­inu. „Það kom þó að því að sem mér fannst aðgerð­irnar gjör­sam­lega hafa misst mark en það var þegar rík­is­stjórnin ákvað að greiða fyr­ir­tækjum fyrir að segja upp starfs­mönnum sínum.“

Inga Sæland steig fyrstu skref sín sem þingmaður árið 2017.
Inga Sæland steig fyrstu skref sín sem þing­maður árið 2017.

Mark­miðið með hluta­bóta­leið­inni var að halda ráðn­inga­sam­bandi milli vinnu­veit­enda og laun­þeg­ans og finnst Ingu það hafa verið mik­il­væg aðferð. „Og okkur þótti það virki­lega vel gert og það tókst vel. Svo allt í einu hrópa fyr­ir­tækin hærra um að þau eigi svo óskap­lega bágt og hafi ekki einu sinni efni á að reka fólkið og borga þeim laun í upp­sagn­ar­fresti – og þá ákveður rík­is­stjórnin að gera það. Að borga laun í upp­sagn­ar­fresti burt­séð frá því hvort fyr­ir­tækið hafi efni á því eða ekki. Þannig að þarna er opn­aður ákveð­inn krani – krani íslenskra skatt­greið­enda og það flæða bara pen­ing­arnir út til þess að greiða laun í upp­sagn­ar­fresti. Þannig að það er nán­ast öllum meira eða minna sagt upp í stað þess að reyna að halda fólki í stör­f­unum.“

Rík­is­stjórnin tók þessa umdeildu ákvörðun um að greiða upp­sagn­ar­frest­inn og telur Inga að þegar fyr­ir­tækin ætli að ráða fólkið aftur – þegar og ef allt gengur betur – þá verði það ekki gert í gegnum sama ráðn­inga­sam­band og hafi verið til staðar fyrir upp­sögn.

„Og eins og ASÍ bendir á þá munu þessir ein­stak­lingar missa öll áunnin rétt­indi miðað við að hafa unnið ákveðið mörg ár. Þess vegna verður fleiri sagt upp en hugs­an­lega þurfti að gera. Vissu­lega er ekki hægt að svipta fólki áunnum rétt­indum sem til­tekin eru í kjara­samn­ingum en eins og við vitum eru lægstu launin mjög lág og þangað vill eng­inn fara, sér­stak­lega ef við­kom­andi hefur unnið sig upp hjá sínum vinnu­veit­anda og verið kom­inn með auka greiðslur á lægstu taxta.“

Mammon er alltaf nálægur

Inga segir að hún hefði viljað sjá gripið til aðgerða aðeins fyrr í sam­bandi við að hamla komu ferða­manna til lands­ins. „Ég vil meina að þá hefðum við sparað okkur marga tugi millj­arða vegna þess að það botn­fraus í ferða­þjón­ust­unni – og það hefði alltaf gerst, sem og í afleiddum störfum. En við hefðum getað losnað við lok­un­ar­styrki og ýmis­legt annað. Við hefðum losnað við það að banna heim­sóknir til ömmu og afa á hjúkr­un­ar­heim­ili og að mega ekki fara í rækt­ina og sund og verið í alls konar nálg­un­ar­tak­mörk­unum og í sam­komu­banni ef við hefðum við­ur­kennt ástandið aðeins fyrr.“

Ingi segir að mammon sé alltaf nálægur og að sumir forð­ist að við­ur­kenna vand­ann sem þjóðir heims­ins þurftu að takast á við. Íslend­ingar hefðu átt að taka mark á þessum vanda fyrr.

Hún segir aftur á móti að eftir að Íslend­ingar hafi farið að taka til hend­inni og vinna í þessum þáttum þá hafi þeim tek­ist dásam­lega vel til. „Það er alveg æðis­legt hvað þjóðin okkar er sam­stíga og hvað við gerðum þetta öll saman. Hvað allir hlýddu Víði vel, hvernig við til­báðum þrí­eykið og við gerðum allt sem þau sögðu okkur að gera. Það er þess vegna sem við náum þessum frá­bæra árangri.“

Hefur áhyggjur af fölsku öryggi

Landið var opnað þann 15. júní síð­ast­lið­inn og bendir Inga á að nú þurfi Íslend­ingar lík­leg­ast að fara að takast á við annað COVID-19 verk­efni. Hún seg­ist hafa áhyggjur af því falska öryggi sem fylgi skimun við kom­una til lands­ins. „Það er engin spurn­ing um það að aðrir hags­munir ráða hér för – en auð­vitað þarf einnig að huga að heild­ar­hags­munum okkar.“ Hún segir þessa heild­ar­hags­muni lúta að efna­hags­líf­inu og atvinnu fólks. „Það er hræði­legt að tugir þús­unda Íslend­inga séu atvinnu­lausir og er þetta nátt­úru­lega algjört heims­met á Íslandi á lýð­veld­is­tíma.“

Varðandi það sem vantað hefur upp á aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar að mati Ingu þá finnst henni að fólkið í land­inu hafi verið skilið eftir. „Heimilin eru ótrygg. Það er ekki búið að setja þak á verð­trygg­ingu. Það hefur ekk­ert verið gert til að tryggja það að við lendum í því sama og gerð­ist hér eftir efna­hags­hrunið 2008. Ekki neitt. Þeir segja bara fjár­mála­ráð­herra og seðla­banka­stjóri að við séum á frá­bærum stað í dag, þetta sé allt öðru­vísi en árið 2008 og að eng­inn þurfi að hafa áhyggjur af því.“

Inga segir að þrátt fyrir að aðstæður séu mjög ólíkar nú og fyrir 12 árum í hrun­inu þá geti hún ekki annað en spurt hvað sé að því „að setja örygg­is­ventil fyrir heim­ilin í land­inu sem séu skelf­ingu lostin. Hvað er að því að setja belti og axla­bönd á fjöl­skyld­urnar í land­inu? Við erum komin með 17 pró­sent fall krón­unnar frá ára­mótum og meðan gengið fellur svona þá segir það sig sjálft að það sé upp­skrift að því að verð­bólgan fari af stað. Þá er nátt­úru­lega ekki að spyrja að verð­tryggðum lánum heim­il­anna.“

Mikilvægt að afnema verðtrygginguna

Hún segir að mik­ill fókus sé hjá Flokki fólks­ins að afnema verð­trygg­ing­una. „Við vorum til dæmis með frum­varp um að afnema verð­trygg­ing­una á neyt­enda­lán en það fór því miður í rusla­tunn­una eins og margt annað. Við ætlum aftur á móti að koma aftur með það.

Rík­is­stjórnin er búin að berj­ast og berj­ast fyrir því að veita millj­örðum á millj­arða ofan í stuðn­ings­lán og lok­un­ar­styrki og nefndu það bara en ég fékk 25 millj­ónir króna fyrir hjálp­ar­sam­tök sem gefa svöngu fólki að borða. Ég fékk 30 millj­ónir fyrir SÁÁ sem er búið að missa allt sjálfsafla­féð sitt núna – 150 millj­óna króna sjálfsaflafé þeirra er lík­lega komið út um glugg­ann en álfa­salan er algjör­lega farin. Þetta var sam­þykkt í þing­inu í maí en heldur þú að þetta fólk sé búið að fá krónu? Nei, þessi sam­tök eru ekki enn búin að fá eina ein­ustu krónu,“ segir Inga.

Þessar aðgerðir ganga því allt of hægt fyrir sig, að hennar mati.

Inga Sæland
Inga Sæland

„Frá því ég kom inn á þing þá hefur mér ekki fund­ist þessi rík­is­stjórn hugsa um hag hins almenna borg­ara, fátæks fólks og fíkla. Það eru for­dómar gagn­vart fíklum og mér finnst alveg óskap­lega dap­urt – og það tekur mig sárt að horfa upp á þetta. Ég hélt að við gætum öll verið sam­mála um að það eru ákveðin grund­vall­ar­at­riði í sam­fé­lag­inu sem við eigum að sam­mæl­ast um að virða. Það er nú minnsta kosti að hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi, það hlýtur að vera lág­mark,“ segir hún.

Inga segir að íslensk stjórn­völd eigi það til að hafa öll eggin í sömu körf­unni og að treysta á ákveðnar stoðir í sam­fé­lag­inu. „Við ætlum greini­lega að halda því áfram og treysta á ferða­mennsku,“ segir hún en bætir því við að hún sé ein­stak­lega ánægð með áherslu rík­is­stjórn­ar­innar á nýsköp­un­ina en auð­vitað mætti gera enn betur.

„Það verður að efla nýsköpun og virkja hug­vitið okkar og virki­lega reyna að dreifa eggj­unum á fleiri körfur. Þegar eitt eggið brotnar þá séum við samt sem áður á nokkuð góðum stað. Við eigum svo mikla snill­inga í hug­viti,“ segir hún.

Hópur fólks hefur gleymst

Rík­is­stjórnin hefur einnig verið gagn­rýnd vegna aðgerða eða rétt­ara sagt aðgerða­leysis er varðar náms­menn. Inga segir að stór hluti þeirra hafi gleymst. „Námsmenn eru gjör­sam­lega að lenda hér á milli skips og bryggju. Rík­is­stjórnin er einnig að gleyma for­eldrum sem hafa þurft að fara heim og vera með börn­unum sínum þar út af sam­komu­banni – fötl­uðum börnum sem eru með miklar stuðn­ings­þarfir og sem þurfa algjöra sól­ar­hringsu­m­önnun. Þetta eru ekki margir for­eldrar og væri þetta ekki slík upp­hæð að það sé verj­andi að taka ekki utan um þennan hóp og setja hann á sömu laun í sótt­kví eins og aðrir hafa fengið.

Það eru þús­undir náms­manna sem munu ekki fá atvinnu­leys­is­bætur og engin störf í sumar. Þetta eru náms­menn sem eru jafn­vel fjöl­skyldu­fólk og hafa stólað á það að vinna á sumrin. Þau eiga að éta það sem úti frýs í sumar. Þetta er óverj­andi í raun­inni.“

Lendum alltaf standandi

Varðandi fram­tíð­ina þá telur Inga að Íslend­ingar komi alltaf niður stand­andi. „Það er bara mín sann­fær­ing. Við lendum stand­andi og það fer bara eftir því hversu erfitt það verður fyrir íslenskan almenn­ing og skatt­greið­endur að takast á við þetta mikla efna­hags­hrun.“

Hún segir að Íslend­ingar þurfi á smá heppni að halda núna og með­byr. Vanda­málin séu risa­vaxin en hún sé þó von­góð.

Inga segir enn fremur að afleið­ing­arnar eigi eftir að koma í ljós, sér­stak­lega fyrir þá sem eru vanir því að geta haft ofan í sig og á. Sem hafa getað staðið sína plikt og borgað afborg­anir af lánum sínum. Þarna sé um að ræða fólk sem hefur tekið á sig miklar fjár­hags­legar skuld­bind­ingar í trausti þess að það sé í góðri vinnu og geti staðið við sitt. Hún bendir á að það sé mik­ill skellur að fara á strípaðar atvinnu­leys­is­bætur.

„Þá tekur ískaldur raun­veru­leik­inn við – að detta niður á atvinnu­leys­is­bætur ef lukkan hefur ekki þegar snú­ist þannig að hægt sé að halda áfram og fá starfið sitt aftur. Þá er nátt­úru­lega allur botn­inn dott­inn úr þeirri ábyrgð sem fólk hefur tekið á sig gagn­vart lánum og greiðslu og lífs­stand­ard sem það hefur van­ist. Það þarf allt í einu að detta niður í það sem við öryrkjar þekkjum svo rosa­lega vel.

Fátækt fólk hefur þurft að búa þannig lengi. Ef maður getur sagt það svo­leiðis þá væri það auð­veld­ara fyrir fátækan að fara allt í einu úr því að vera með ágætar tekjur og detta niður í ves­öld­ina en fyrir þann sem hefur haft mikið og dettur niður. Andlega hefur það ofboðs­lega nei­kvæð áhrif og verður það erfitt félags­lega fyrir við­kom­andi,“ segir hún.

Andfélagsleg fjölskyldustefna rekin á Íslandi

Inga telur að íslenskur almenn­ingur eigi eftir að sjá þessar aðstæður í haust. „En þangað til viljum við sól og sumar, við grillum veiruna og höldum ótrauð áfram. Þetta er bara verk­efni sem við ætlum ekki að skor­ast undan að takast á við. En við verðum að gera það saman og mér þykir leið­in­legt hvernig er alltaf ákveð­inn kjarni sem hefur hátt og er ljótur í orð­fari og and­styggi­legur og ég held að við séum öll að gera okkar besta. Jafnvel rík­is­stjórnin þrátt fyrir að ég sé ekki sátt við allt sem hún hefur verið að gera.

Og auð­vitað mun þetta allt saman kosta okkur mikla pen­inga en mér finnst ekki þurfa alltaf að skamma allt og alla. Ég hefði gert hlut­ina að sumu leyti eins og öðru leyti öðru­vísi.“

Inga seg­ist leggja mikla áherslu á að í svona ástandi eigi að passa upp á þá sem minnst mega sín – enda sýni rann­sóknir að það sé fólkið sem fari verst út úr svona krísum. „Það verður að byrja að taka utan um þann hóp og bjarga honum. Mér finnst alveg óþol­andi, vegna þess að ég er með þetta alveg í púl­stöð­inni og þekki af eigin raun, að börn líði skort.“

Ástandið hafi versnað frá því hún kom á þing fyrir tæpum þremur árum. „Hvernig getum við horft í spegil með ástandið svona? Og þetta var fyrir COVID-19 og við þurfum að horfast í augu við það að stjórn­völd hafi vís­vit­andi haldið litlum börnum í fátækt. Gefa þeim ekki kost á að vera með í íþróttum, gefa þeim ekki kost á að eiga áhuga­mál, gefa þeim ekki kost á að eiga nóg að borða eða eiga föt. Þetta er algjör­lega upp­skriftin af því að þessir litlu ein­stak­lingar verða frekar útsettir fyrir ein­elti, stríðni og er ennþá meiri van­líðan sett á þau heldur en þau þurfa að búa við hvort sem er. Hugsaðu þér!“

Inga telur jafn­framt að sú fjöl­skyldu­stefna sem rekin sé á Íslandi sé and­fé­lags­leg og ekki góð. „Mér finnst hún vond og hún er gjör­ó­lík því sem þekk­ist víða. Fátæk­ustu börnin eru börn öryrkja og það segir sig sjálf.“

Einhvern tímann verða Íslendingar að horfast í augu við raunveruleikann

Varðandi fram­tíð­ina þá telur Inga að margt sé á huldu varð­andi hana. „Eins og ég sagði áðan þá veit ég að við Íslend­ingar munum lenda stand­andi en ég veit ekki hversu lengi við verðum að rétta úr kútnum eða ná okkur. Það fer aug­ljós­lega eftir aðgerð­unum og von­andi smá heppni – og hversu vel okkur gengur.“

Svo sé margt annað sem Íslend­ingar þurfi að takast á við en COVID-19 far­ald­ur­inn sé þó stór hjalli til að fara yfir.

„Mun allt botn­frjósa aftur og við lenda á byrj­un­ar­reit? Einhvern tím­ann verðum við að opna landið og ein­hvern tím­ann verðum við að horfast í augu við raun­veru­leik­ann – og við erum að gera það núna. Ég hefði að vísu vilja bíða aðeins lengur og horfa aðeins lengur í kringum okkur, þó það væri ekki nema í tvær vikur í við­bót. En svona er þetta og ég virði það bara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár