Mynd: Bára Huld Beck

Almenningur verður að fá meira að segja um gang mála

Kjarninn tal­aði við full­trúa í stjórn­ar­and­stöð­unni til þess að kanna hvernig þeir sæju fram­tíð­ina fyrir sér – og hvaða leiðir væru bestar út úr þessu ástandi. Að end­ingu er rætt við for­mann Mið­flokks­ins, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son.

Það sem ég myndi auð­vitað vilja sjá er að meiri skyn­semi verði ríkj­andi hér á Íslandi – en þar er lyk­il­at­riðið að meira lýð­ræði verði ríkj­andi. Það sem ég á við með því er að ég hef lengi haft áhyggjur af því og oft talað um að það sem ég kalla kerf­is­ræði sé alltaf að aukast.“

Þetta segir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, um hvernig hann sér fyrir sér Ísland fram­tíð­ar­innar. Hann segir að ákveðin tæki­færi liggi í stórum krísum á borð við þá sem heim­ur­inn gengur nú í gegnum og að hann hefði viljað að Íslend­ingar myndu end­ur­meta hlut­ina – og von­andi nýta þessi stóru tæki­færi til þess að gera ákveðnar breyt­ingar.

„En í ljósi reynsl­unnar þá held ég að hlut­irnir breyt­ist ekki eins mikið og eins hratt og við myndum vilja. Því að mann­fólk er vanaf­ast í eðli sínu og á það til að fara til­tölu­lega fljótt aftur í sama farið,“ segir hann.

Hann bendir á að margir séu nú til að mynda farnir að heils­ast og eiga í sömu sam­skiptum á manna­mótum. Það sama megi segja um hvernig land­inu sé stjórnað og hvernig það sé rekið.

Í sam­bandi við lýð­ræðispæl­ingar Sig­mundar Davíðs segir hann að stjórn­mála­menn séu sífellt að gefa frá sér vald til ókjör­inna full­trúa sem eigi það ekki til að byrja með.

„Stjórn­mála­menn fá að fara með valdið fyrir almenn­ing og kjós­endur og hafa til þess fjögur ár áður en þeir eru dæmdir aftur af kjós­endum. Þannig að þegar stjórn­mála­menn færa ákvörð­un­ar­valdið hvernig sam­fé­lagið er rekið eitt­hvert annað, hvort sem það sé til emb­ætt­is­manna, sér­fræð­inga, nefnda eða stofn­ana – eða hvaða nöfnum sem það nefnd­ist – þá eru þeir að mínu mati að veikja lýð­ræðið.“

Stjórnmálamennirnir þurfa að taka aftur til sín valdið

Sig­mundur Davíð segir að það sé sama hvað fólk kýs – alltaf komi út sama nið­ur­staðan. Alltaf skipti minna og minna máli hver þessi nið­ur­staða verði því að kerfið stjórni áfram og stjórn­mála­menn­irnir séu á meðan upp­teknir við per­sónu­legar leiðir til þess að vinna að sínum málum.

„Ég er samt í smá bjart­sýniskasti í öllum þessum hremm­ingum núna og er að von­ast til að þetta gæti orðið punktur til þess að breyta þessu og við færum aftur að trúa á lýð­ræðið að því marki að almenn­ingur fengi meira að segja um gang mála.“

Það þurfi að ger­ast með ýmsum hætti. „Það þarf að ger­ast með því að stjórn­mála­menn­irnir taki sér aftur vald – og auð­vitað hljómar þetta illa – en það þarf að gera þetta að póli­tísku valdi. Póli­tískt vald hljómar illa en fag­legar ákvarð­anir hljóma vel. En póli­tískar ákvarð­anir eru engu að síður lýð­ræð­is­legar ákvarð­anir, þannig að ég hefði viljað sjá stjórn­mála­menn­ina vera frakk­ari í því að taka ákvarð­anir og bera ábyrgð á þeim.

Svo þurfum við líka að sjá beinni aðkomu fólks að gangi máli en það er eitt af því sem hefur verið rætt í sam­bandi við stjórn­ar­skrár­vinn­una.“

Sigmundur Davíð segir að pólitískar ákvarðanir séu lýðræðislegar ákvarðanir.
Sig­mundur Davíð segir að póli­tískar ákvarð­anir séu lýð­ræð­is­legar ákvarð­anir.

Hann segir að stjórn­mála­af­skipti hans hafi byrjað í bar­áttu fyrir því að reyna að láta almenn­ing og þjóð­ina hafa meiri áhrif í gegnum þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Hann seg­ist vilja sjá meiri aðkomu almenn­ings að því að setja mál á dag­skrá. „Mér hefur fund­ist galli á þeirri vinnu sem menn hafa verið að vinna í sam­bandi við stjórn­ar­skrár­breyt­ingar þar sem mikið er ein­blínt á mögu­leika fólks til að grípa inn í það sem stjórn­málin eru að gera. Jú, það þarf að vera til staðar eins og við höfum séð dæmi um á und­an­förnum árum. En við megum ekki gleyma þeim mögu­leika fólks á milli kosn­inga að koma málum í umræðu og jafn­vel með­ferðar hér á þing­inu,“ segir hann en telur þó ekki að Íslend­ingar ættu að ganga alveg jafn langt og Sviss­lend­ingar en þar í landi er kosið reglu­lega í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hin ýmsu mál.

Hann seg­ist vilja með þessu auka áhuga fólks á stjórn­málum og sam­fé­lags­málum og trú þess á að það geti haft áhrif. Þá þurfi fólkið betur að geta komið að því að setja mál á dag­skrá hér á landi.

Vildu ekki að fólk upplifði mismunum

Sig­mundur Davíð segir að þegar far­ald­ur­inn kom fyrst upp hafi blasað við að Ísland yrði fyrir mjög stóru áfalli og að höggið væri mikið fyrir sam­fé­lagið í heild sinni. Í fram­hald­inu hafi Mið­flokk­ur­inn ákveðið að birta sínar eigin til­lögur að við­brögðum. Sig­mundur Davíð segir að þær til­lögur hafi vakið tak­mark­aða athygli – eins og kannski eðli­legt væri við aðstæður sem þessar.

„Rík­is­stjórnin var ekki mikið að pæla í því hvað stjórn­ar­and­staðan hafði að segja en ég hef ákveð­inn skiln­ing á því. Þannig að við birtum aug­lýs­ingar í blöð­unum með þessum til­lögum og meg­in­hugs­unin með þeim var að þær væru til­tölu­lega ein­faldar og hægt væri að hrinda þeim í fram­kvæmd fljótt og almennar. Þannig að menn sætu ekki uppi með ein­hver álita­mál til margra ára eins og gerð­ist að ein­hverju leyti eftir banka­hrunið.

Það yrði að lág­marka það að menn hefðu ástæðu til að ætla að þeim hefði verið mis­munað. Það var meg­in­hug­myndin með aðgerðum okkar,“ segir hann.

Ákveðin PR-kynning – með litlu innihaldi

Rík­is­stjórnin kynnti sínar fyrstu til­lögur – eða fyrsta aðgerða­pakk­ann svo­kall­aða – á blaða­manna­fundi í Hörpu þann 21. mars síð­ast­lið­inn og voru þau í stjórn­ar­and­stöð­unni kölluð á fund í aðdrag­anda kynn­ing­ar­innar. „Ég hef skiln­ing á því að það eru tak­mörk fyrir því hversu mikið hægt er að blanda stjórn­ar­and­stöð­unni í und­ir­bún­ing á aðgerðum við þessar aðstæður – en samt var þetta sér­stakt að því leyti að það sem var kynnt fyrir okkur var ein­ungis hluti af því sem fram kom í Hörpu þar sem allt sner­ist um að setja ein­hverja upp­hæð á aðgerð­irnar: 230 millj­arðar sem umfang aðgerð­anna sem hafði ekk­ert verið nefnt með stjórn­ar­and­stöð­unni.“

Sig­mundur Davíð segir að honum hafi fund­ist þetta markast mjög af því að þetta væri PR-kynn­ing en hafi minna snú­ist um inni­hald. „Þegar ég fór að skoða hvað væri að baki þessum 230 millj­örðum þá var megnið af þessu hugs­an­leg lán úr bönk­unum, brú­ar­lánin, og hugs­an­leg frestun á sköttum – engin raun­veru­leg inn­spýt­ing.

En hvað um það, við tókum bara vel í þetta og ég sagði þá strax – og hef haldið mig meira og minna við þá stefnu alveg fram á það síð­asta – að við myndum styðja allar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar sem miða að því að bregð­ast við þessu ástandi og ýta undir að þær færu sem hrað­ast í gegnum þingið,“ segir hann.

Tók of langan tíma að komast í framkvæmd

Sig­mundur Davíð rifjar upp aðgerða­pakka tvö frá rík­is­stjórn­inni sem hún kynnti mán­uði eftir þann fyrsta. Hann segir að sá aðgerða­pakki hafi ekki vakið jafn mikla lukku. „Svo var allt í einu hent í þriðja pakk­ann og boðað til þriðja blaða­manna­fund­ar­ins. En hvað sem því líður þá hefur þetta tekið allt saman svo­lítið langan tíma að kom­ast í fram­kvæmd.“

Sig­mundur nefnir sem dæmi lok­un­ar­styrk­ina til litlu fyr­ir­tækj­anna „sem koma eftir að fyr­ir­tækin eru búin að vera lokuð vikum saman. Fólkið hefur vænt­an­lega ekki getað greitt sér nein laun og menn búnir að bíða launa­lausir eftir að hafa verið sagt af rík­inu að þeir þyrftu að loka – og þá kemur þetta núna svo­lítið seint. En allt í lagi með það, það er betra en ekk­ert,“ segir hann.

Hann seg­ist hafa viljað gera hlut­ina öðru­vísi en hann taldi mik­il­vægt við þessar aðstæður að rík­is­stjórnin þyrfti ekki að sitja uppi með tafir eða óhóf­lega gagn­rýni frá stjórn­ar­and­stöð­unni því aðal­at­riðið væri að koma þessum málum í fram­kvæmd sem hrað­ast.

Sigmundur Davíð hefði viljað sjá aðgerðir ríkisstjórnarinnar ganga hraðar fyrir sig.
Sig­mundur Davíð hefði viljað sjá aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar ganga hraðar fyrir sig.

Má ekki gleyma að gagnrýna

„Eins og ég sagði áðan þá finnst mér það ekki hafa gengið nægi­lega hratt að fram­kvæma og auð­vitað hafa ákveðnar aðgerðir reynst að sumu leyti gall­aðar – að sumu leyti er það fyr­ir­sjá­an­legt og að öðru leyti getur maður aldrei séð fyrir ákveðna hluti í svona aðstæðum.“

Sig­mundur Davíð tekur sem dæmi hluta­bóta­leið­ina en hann segir að honum hefði fund­ist sér­kenni­legt þegar búið var að sam­þykkja þá leið að ráð­herr­ann sem fór með málið og rík­is­stjórnin öll hefði fagnað því hversu mikið leiðin væri notuð – hversu mörg fyr­ir­tæki tækju þátt í henni. „Því maður hefði haldið að þetta væru slæmar fréttir að margir vildu setja starfs­menn sína á hluta­bætur. En þannig var þessu samt stillt upp, nán­ast eins og sem flestir ættu að nýta þetta úrræði. Svo átta menn sig á því að fyr­ir­tæki sem höfðu ekk­ert með það að gera væru að nota úrræðið en það mátti vera fyr­ir­séð.“

Hann segir jafn­framt að stjórn­ar­and­staðan hefði jafn­vel getað verið gagn­rýnni á þessum tíma en enn fremur að það geti reynst erfitt að feta milli­veg í þeim málum. „Þegar maður vill flýta fyrir að eitt­hvað ákveðið sé gert, þá verður maður samt að passa að gleyma ekki gagn­rýn­inni því að hún skiptir alltaf máli í stjórn­mál­unum.“

Íslenskt samfélag hefur mikla aðlögunarhæfni

Leiðir út úr ástand­inu eru ýmiss konar og margar, að mati Sig­mundar Davíðs. Hann telur að Ísland eigi eftir að koma vel út úr þessum kafla, jafn­vel betur en margar aðrar þjóðir.

„Auðvitað skiptir miklu máli að heil­brigð­is­málið hafi verið tekin mjög föstum tökum hér því allt er þetta afleið­ing af því en auk þess vorum við efna­hags­lega betur í stakk búin frekar en flestir aðrir til að takast á við svona áfall. Ég held að, ver­andi þetta lítið sam­fé­lag en þó þróað, þá höfum við mikla aðlög­un­ar­hæfni þannig að ég er orð­inn alveg tölu­vert bjart­sýnn á að við eigum að geta farið nokkuð vel út úr þessu.

Það sem ég hef mestar áhyggjur af, og hefur enn ekki verið til lykta lagt, eru ákveðnir veik­leikar sem voru und­ir­liggj­andi að mínu mati í alþjóð­lega hag­kerf­inu fyrir þetta. Því þá hafði síðan í fjár­málakrís­unni fyrir rúmum ára­tug verið meira og minna stöð­ugur upp­gangur,“ segir hann og bætir því við að hann hafi verið far­inn að ótt­ast að ný bóla væri farin að mynd­ast – sem undir ein­hverjum aðstæðum fyrr eða síðar myndi springa.

„Svo kemur þessi risa­skellur og þá ótt­ast maður að það verði það sem sprengi bóluna, til dæmis varð­andi rík­is­skuldir sem eru algjör­lega ósjálf­bærar í mörgum löndum og stöðu fjár­mála­kerf­is­ins – og þá sér­stak­lega í Evrópu sem hefur aldrei náð sér eftir fjár­málakrís­una á sínum tíma.“

Þannig hafi hann ótt­ast að jafn­vel þó Íslend­ingar kæmust í gegnum heil­brigð­is­vand­ann þá yrði þetta til að sprengja þessa bólu sem hafi byggst upp.

„Það hefur tek­ist að fresta því en hluta­bréfa­mark­aðir í Banda­ríkj­unum og Evrópu eru aftur á upp­leið. Ég hef samt sem áður ennþá áhyggjur af því að það sem gæti reynst okkur erf­ið­ast í þessu séu veik­leikar í hag­kerfum land­anna sem við treystum á við­skipti við,“ segir hann.

Baráttan við báknið

Varðandi það hvernig íslenskt sam­fé­lag muni kom­ast út úr þeim efna­hags­erf­ið­leikum sem skap­ast hafa meðal ann­ars vegna COVID-19 far­ald­urs­ins þá segir Sig­mundur Davíð að hann hafi verið mjög svart­sýnn á efna­hags­á­standið þrátt fyrir að hafa verið með­vit­aður um að Ísland væri í betri stöðu en mörg önnur lönd. „En núna sýn­ist mér að ef þetta fer ekki mjög illa og ef ekki verður önnur fjár­málakreppa í Evrópu þá geti Ísland kom­ist mjög fljótt upp úr þessu.

En það er háð því að við nýtum tæki­færin til þess að vera fljót af stað þegar færi gefst. Og þá komum við að því sem mér finnst mjög mik­il­vægt en það er bar­áttan við báknið; að það verði auð­veld­ara fyrir fólk að bjarga sér, að stofna fyr­ir­tæki, að byggja þau upp og ráða fólk í vinnu, finna upp nýja hluti og búa til verð­mæti úr þeim.“

Hann telur að hér á landi, sem og ann­ars staðar, hafi hlut­irnir færst allt of mikið í þá átt að ríkið setji hindr­anir í veg fólks í stað þess að vera í þjón­ustu­hlut­verki og reyna að aðstoða þá sem geri það sem gagn­ist sam­fé­lag­inu.

Ekki séríslenskt vandamál

Þá þurfi í fyrsta lagi að ein­falda kerfið, ann­ars vegar til þess að áherslan verði meira á þjón­ustu við almenn­ing og hins vegar þurfi að lækka kostn­að­inn – ekki ein­ungis fyrir þá sem þurfi að fást við kerfið og útgjöldin sem þeir standi frammi fyrir heldur einnig fyrir skatt­greið­endur. Það sem fari í báknið nýt­ist ekki í grunn­þjón­ustu á borð við heil­brigð­is­þjón­ustu og mennta­kerfið.

„Þetta er auð­vitað ekki eitt­hvað sér­ís­lenskt vanda­mál. Víða á Vest­ur­löndum er það eðli bákns­ins að stækka og stækka og verða dýr­ara og dýr­ara – og á sama tíma eru vel­ferð­ar­kerfi þess­ara landa í mik­illi vörn og þurfa meira og meira fjár­magn. Ég held að það þurfi að taka mjög rót­tækar ákvarð­anir til að taka á þessu.“

Allt veltur á því að ákvarðanatakan verði í lagi

Sig­mundur Davíð seg­ist vera mjög bjart­sýnn á fram­tíð íslensks sam­fé­lags og miklu bjart­sýnni en hann var fyrir ekki svo löngu. „Ég hafði veru­legar áhyggjur af því hvert stefndi fyrir nokkrum vikum síðan. Nú er ég miklu bjart­sýnni en allt veltur á því að ákvarð­ana­takan verði í lagi því að ég hef tekið eftir því, þrátt fyrir allt þetta í sam­bandi við kerfið og að aðrir stjórni en stjórn­mála­menn, að þegar stjórn­mála­menn koma með stefnu og fylgja henni eftir þá er hægt að gera mjög stórar breyt­ingar sem skipta máli. Þess vegna er nið­ur­staðan hjá mér í bili að ef við fylgjum skyn­sam­legri stefnu hér sé fram­tíðin mjög björt á Íslandi,“ segir hann.

Auðvitað verði alltaf gerð ein­hver mis­tök en ef menn gera of mörg mis­tök við stjórn lands­ins eða eft­ir­láta ein­hverjum öðrum en almenn­ingi að stjórna þá geti hlut­irnir farið mjög illa og góð staða hratt breyst til hins verra.

Þannig séu Íslend­ingar á mjög krítískum tíma. „Ákvarð­anir skipta alltaf máli en þær skipta óvenju­lega miklu máli núna.“

Sig­mundur Davíð segir að lokum að hann sé mik­ill lýð­ræð­is­sinni. „Ef maður trúir því raun­veru­lega að almenn­ingur sé best til þess fall­inn að taka ákvarð­anir um eigin fram­tíð og hvernig land­inu sé stjórnað þá þarf að vera beint sam­band þarna á milli. Þú þarft, í kosn­ingum, að finna að það skipti ein­hverju máli hvernig atkvæði þínu er varið og þú þarft að hafa val um ólíka stefnu en ekki ein­hverja ólíka karakt­era sem kom­ast í gegnum kjör­tíma­bilið án þess að verða of umdeildir,“ segir hann.

„Þá lendir þú í því að við þarna hinum megin,“ segir hann og bendir á Alþing­is­húsið, „séum stöðugt með skít­kast út í hvort annað í stað­inn fyrir að deila um grund­vall­ar­at­riði og kjós­endur geti síðan valið á milli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár