Sviptingar

Þann 21. sept­em­ber næst­kom­andi kjósa flokks­menn Venstre í Danmörku nýjan for­mann og vara­for­mann. Kosn­ing­arnar koma í kjöl­far mik­illa átaka sem leiddu til afsagnar for­manns og vara­for­manns flokks­ins.

Lars Løkke Rasmussen
Lars Løkke Rasmus­sen Mynd: EPA

Þing­kosn­ingar og stjórn­ar­skipti ásamt átökum og inn­an­flokkserjum í danska Venstre flokknum hafa séð til þess að danskir fjöl­miðlar hafa ekki þurft að hafa áhyggjur af þeirri gúrku­tíð sem iðu­lega ein­kennir sum­ar­mán­uð­ina.

Í þing­kosn­ing­unum 5. júní í sumar féll minni­hluta­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen. Sú stjórn sam­an­stóð af þremur flokkum úr bláu blokk­inni svo­nefndu: Venstre (sem er hægri miðju­flokkur), Íhalds­flokknum og Frjáls­ræð­is­banda­lag­inu. Stjórnin naut stuðn­ings Danska Þjóð­ar­flokks­ins, sem á síð­asta kjör­tíma­bili var næst fjöl­menn­astur á danska þing­inu, Fol­ket­inget, en vildi ekki eiga aðild að stjórn­inni. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn galt afhroð í kosn­ing­unum í sumar og það ásamt miklu fylgis­tapi Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins varð til þess að Løkke stjórnin (eins og hún var kölluð) féll.

Blokkirnar tvær

Flokk­arnir á danska þing­inu skipt­ast í tvær „blokkir“ bláa og rauða. Þeirri bláu til­heyra hægri flokk­arnir svo­nefndu en vinstri flokk­arnir þeirri rauðu. Venstre er stærsti flokkur bláu blokk­ar­innar en Socialdemokratiet stærsti flokkur þeirrar rauðu. Utan blokk­anna stendur svo Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn sem hefur stutt rík­is­stjórnir bláu blokk­ar­innar. Rík­is­stjórn Lars Løkke 2015 til 2019 var í flestum málum háð Danska Þjóð­ar­flokknum sem hafði 37 þing­menn, þremur fleiri en flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans. Lars Løkke Rasmus­sen dró ekki dul á að iðu­lega væri erfitt að hafa slíkan „aft­ur­sæt­is­bíl­stjóra“ en átti ekki ann­arra kosta völ.

Hugmyndin um stjórn yfir miðjuna

Þegar leið að kosn­ing­unum í júní síð­ast­liðnum bentu skoð­ana­kann­anir til þess að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn myndi tapa miklu fylgi og stjórn Venstre missa völdin.

Lars Løkke sá hvert stefndi og nokkru fyrir kosn­ingar nefndi hann í við­tali að kannski væri kom­inn tími til að hugsa stjórn­málin uppá nýtt. Hvort til dæmis væri hægt að mynda stjórn yfir miðj­una. Þessar vanga­veltur for­manns Venstre vöktu tak­mark­aða hrifn­ingu margra flokks­manna Venstre og Kristian Jensen vara­for­maður flokks­ins vís­aði öllum slíkum hug­myndum á bug. Athygli vakti líka að Lars Løkke hafði gefið í skyn að hann gæti ef til vill hugsað sér starf hjá Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta mátu margir svo að kannski væri kom­inn tími til breyt­inga í flokknum.

Átakafundir og afsögn

Í fyrstu viku ágúst­mán­aðar var mikið um funda­höld hjá Venstre, form­leg og óform­leg. Á fundi þing­flokks­ins 5. ágúst fór fram kosn­ing í stjórn þing­flokks­ins, Lars Løkke lagði mikla áherslu á að Inger Støjberg fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála fengi þar sæti en þing­flokk­ur­inn hafn­aði henni. Þann 9. ágúst hélt þing­flokkur Venstre fund, svo­kallað sommermøde. Hefð er fyrir slíkum fundum þar sem línur flokks­ins varð­andi kom­andi þing eru lagðar. Á þessum fundi urðu hörð átök, Claus Hjort Frederik­sen, fyrr­ver­andi ráð­herra og einn helsti áhrifa­maður flokks­ins, deildi hart á Kristian Jensen vara­for­mann, sagði gagn­rýni hans á hug­myndir Lars Løkke um stjórn­ar­sam­starf yfir miðj­una óboð­lega. Kristian Jensen dró ekki yfir­lýs­ingar sínar til baka en lýsti stuðn­ingi við flokks­for­mann­inn, Lars Løkke. Stjórn­mála­skýrendur sögðu greini­legt að allt væri upp­í­loft hjá Venstre og stutt væri í ,,upp­gjör“ eins og það var orðað, mjög væri farið að hitna undir Lars Løkke. Þeir reynd­ust sann­spáir.

Á fundi 30. ágúst var hart tek­ist á. Seint um kvöldið var fundi frestað og haldið áfram morg­un­inn eftir. Nið­ur­staðan var að boða til lands­fundar 21. sept­em­ber, og þar yrði ein­ungis eitt mál á dag­skrá: kosn­ing for­manns og vara­for­manns. Lars Løkke var mjög andsnú­inn þessu, vildi fá að flytja lands­fund­inum skýrslu (ber­etn­ing) um störf sín sem for­manns. Þessari kröfu hans var hafnað. Þegar Lars Løkke varð ljóst hvernig staðan væri til­kynnti hann afsögn sína og gekk á dyr, bak­dyra­megin, og birti skömmu síðar stutta orð­send­ingu á Twitter. Kristian Jensen vara­for­maður til­kynnti sömu­leiðis, með grát­staf­inn í kverk­unum, afsögn sína. Draumur hans um að taka við for­mennsku í Venstre af Lars Løkke, þegar þar að kæmi, var skyndi­lega að engu orð­inn.

Hver verður formaður?

Eftir að þeir Lars Løkke Rasmus­sen og Kristian Jensen höfðu til­kynnt afsögn sína hófust vanga­veltur um hver, eða hverjir, myndu taka við.

Einn þeirra sem lengi hefur verið talað um að myndi, í fyll­ingu tím­ans, velj­ast til for­ystu í Venstre er Jakob Ellemann-Jensen. Sjálfur hafði hann lítið gefið fyrir slíkt tal, hélt sig algjör­lega utan við allar deilur innan flokks­ins og tjáði sig aldrei um afstöðu sína til hug­mynda Løkke um sam­starf við sós­í­alde­mókrata.

Í við­tölum fjöl­miðla við þing­menn og áhrifa­fólk innan Venstre eftir afsögn Lars Løkke og Kristian Jensen var Jakob Ellemann-Jensen sá eini sem nefndur var þegar rætt var um nýjan for­mann. Sjálfur fór hann sér hægt, sagði að flokks­menn þyrftu að átta sig á breyttum aðstæðum, „líta yfir fjörð­inn“ eins og hann komst að orði. Hart var hins­vegar lagt að honum að segja af eða á um hug til for­mennsk­unnar og sl. þriðju­dag til­kynnti Jakob Ellemann-Jensen að hann sækt­ist eftir for­mennsku í Venstre. For­manns­kosn­ingin fer fram, eins og áður var nefnt, 21. sept­em­ber á lands­fundi flokks­ins í Herning á Jótlandi. Rétt til setu á fund­inum eiga 850 full­trúar.

Þegar þetta er skrifað hefur eng­inn annar en Jakob Ellemann-Jensen boðið sig fram til for­mennsku í Venstre.

Stjórnmálin í fjölskyldunni

Jakob Ellemann-Jensen var ekki ókunn­ugur stjórn­mál­unum þegar hann ákvað að hasla sér völl á þeim vett­vangi. Faðir hans er Uffe Ellemann-Jensen sem var for­maður Venstre um fjórtán ára skeið 1984 til 1998 og þar áður utan­rík­is­ráð­herra um 11 ára skeið. Hálf­systir Jakobs (sam­feðra) er Karen Ellemann þing­maður Venstre og fyrr­ver­andi ráð­herra, hún er fjórum árum eldri en Jakob, fædd 1969.

Móðir Jakobs er Alice Vestergaard, fyrr­ver­andi rit­stjóri og yfir­maður hjá TV2 sjón­varps­stöð­inni.

Jakob, sem er 45 ára, tví­giftur og þriggja barna faðir, ætl­aði ekki að helga líf sitt stjórn­málum. Hann gekk í her­inn 19 ára gam­all árið 1992 og lauk þar störfum árið 2000, þá sem yfir­maður í danska her­lið­inu í Bosníu-Herzegovínu. Samhliða her­mennsk­unni lauk hann meist­ara­prófi í við­skipta­lög­fræði. Ungur að aldri gerð­ist hann félagi í Venstre en sagði sig úr flokknum árið 2007 vegna stefnu flokks­ins í mál­efnum inn­flytj­enda. Eftir að Lars Løkke Rasmus­sen tók við for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætt­inu af Anders Fogh Rasmus­sen gekk Jakob aftur til liðs við Venstre og var kjör­inn á þing árið 2011. Árið 2015 varð hann póli­tískur tals­maður flokks­ins en var skip­aður umhverfis- og mat­væla­ráð­herra árið 2018 og gegndi því emb­ætti fram til kosn­inga 2019. Jakob þykir um margt líkj­ast föður sínum, mælskur, orð­fimur og með góða kímni­gáfu. „Ég ætl­aði ekki í stjórn­málin en end­aði samt þar,“ sagði hann fyrir skömmu í við­tali við dag­blaðið Politi­ken.

Það vantar líka varaformann

Á lands­fundi Venstre þann 21. sept­em­ber næst­kom­andi verður, auk for­manns­ins, kos­inn nýr vara­for­maður í stað Kristian Jensen. Strax var nefnd til sög­unnar, sem lík­legur kandi­dat, Inger Støjberg, fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála. Hún er sá kandi­dat sem flestir stjórn­mála­skýrendur telja að verði kjör­inn vara­for­maður á lands­fund­inum. Sophie Løhde fyrr­ver­andi ráð­herra nýsköp­un­ar­mála er einnig talin lík­legur kandi­dat, hún þótti standa sig vel sem ráð­herra. Sömu­leiðis hefur nafn Steph­anie Lose verið nefnt. Hún situr ekki á þingi en er for­maður svæða­sam­bands danskra sveit­ar­fé­laga (reg­ioner). Hún þykir hafa staðið sig mjög vel í því starfi en hefur lýst yfir að hún sæk­ist ekki eftir vara­for­manns­emb­ætt­inu. Karsten Lauritzen fyrr­ver­andi skatta­mála­ráð­herra hefur einnig verið nefndur sem hugs­an­legur vara­for­maður. Hann tók við skatta­ráðu­neyt­inu eftir kosn­ing­arnar 2015. Starf­semi skatts­ins (Skat) var þá ein rjúk­andi rúst eftir margra ára nið­ur­skurð og mis­heppn­aðar skipu­lags­breyt­ingar. Því fer fjarri að starf­semi skatts­ins sé komin í gott lag en ýmis­legt færð­ist þó til betri vegar í ráð­herra­tíð Karsten Lauritzen.

Jakob Ellemann-Jensen hefur sagt að verði hann kjör­inn for­maður Venstre geti hann vel hugsað sér Inger Støjberg sem vara­for­mann sér við hlið. Sem ráð­herra inn­flytj­enda­mála í stjórn Lars Løkke þótti hún mjög stíf og ósveigj­an­leg. Svo mjög að stundum þótti póli­tískum and­stæð­ingum og sér­fræð­ingum í lögum vafi leika á hvort sumar ákvarð­anir og fyr­ir­skip­anir ráð­herr­ans stæð­ust lög. Fyrir nokkrum dögum ákvað meiri­hluti á danska þing­inu að skipa sér­staka nefnd til að rann­saka til­teknar ákvarð­anir hennar í mál­efnum inn­flytj­enda. Ákvarð­anir sem umboðs­maður þings­ins hafði lýst ólög­legar.

Ýmsir í „bak­landi“ flokks­ins hafa lýst óánægju með að Jakob Ellemann-Jensen skuli hafa nefnt Inger Støjberg sem æski­legan vara­for­mann verði hann sjálfur kjör­inn for­maður. Það sé lands­fund­ar­ins að kjósa for­yst­una, en ekki að leggja blessun sína yfir til­tek­inn fram­bjóð­anda, sem for­mann­inum þókn­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár