Allir COVID-19 sjúklingar útskrifaðir af gjörgæslu

Enginn er lengur á gjör­gæslu vegna COVID-19 smits, sagði Alma Möller land­læknir á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Alma Möller landlæknir á fundinum í dag.
Alma Möller land­læknir á fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Enginn er lengur á gjör­gæslu vegna COVID-19 smits, sagði Alma Möller land­læknir á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Alma sagði þetta ánægju­leg tíð­indi, en sein­asti sjúk­ling­ur­inn sem enn var inniliggj­andi útskrif­að­ist af gjör­gæslu­deild­inni á Land­spít­ala í morgun.

Í gær hafði verið greint frá því að eng­inn væri lengur í önd­un­ar­vél vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins hér á landi. Alma sagði aðspurð á fund­inum að far­ald­ur­inn væri að ganga hraðar niður en heil­brigð­is­yf­ir­völd höfðu búist við.

Hún bætti þó við að enn væri fólk veikt hér á landi og svo gæti farið að ein­hverjir af þeim tæp­lega 150 sem eru nú með virk smit gætu þurft að leggj­ast inn. Þó væri fagn­að­ar­efni að eng­inn sé lengur á gjör­gæslu­deild.

Átján sjúk­lingar hafa þurft að leggj­ast í önd­un­ar­vél hér á landi frá því að far­ald­ur­inn hófst.[links]

Mótefna­mæl­ingar eru sem áður í und­ir­bún­ingi og verða þær fram­kvæmdar í sam­starfi Íslenskrar erfða­grein­ingar, heilsu­gæsl­unnar og sjúkra­húsa, sagði Alma einnig. „Þá fæst end­an­leg mynd af því hve stór hluti þjóð­ar­innar hefur smit­ast,“ sagði land­læknir.

Alma sagði að unnið væri að því af kappi að end­ur­skoða leið­bein­ingar til fólks sem telst vera í sér­stökum áhættu­hópi vegna kór­ónu­veirunnar. Upp­færðar leið­bein­ingar til þessa hóps verða gefnar út um það leyti sem slakað verður á sam­komu­banni, 4. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár