Þinglok strönduðu á Sjálfstæðisflokknum

Sam­komu­lag náð­ist við Mið­flokk­inn um þing­lok í gær. Áður hafði meiri­hluti stjórn­ar­and­stöðu náð slíku sam­komu­lagi við rík­is­stjórn­ina. Á end­anum strand­aði sam­komu­lagið á Sjálf­stæð­is­flokknum. Hluti þing­manna hans vildi ekki sam­þykkja það.

Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Katrín Jakobsdóttir voru í aðalhlutverkum í samningaviðræðum um þinglok í gærkvöldi.
Bjarni Bene­dikts­son, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Katrín Jak­obs­dóttir voru í aðal­hlut­verkum í samn­inga­við­ræðum um þing­lok í gær­kvöldi. Mynd: Samsett

Ekki náð­ist sam­komu­lag um þing­lok í gær­kvöldi, líkt og stefnt hafði verið að. Þegar lá fyrir sam­komu­lag milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokka um að þing­störfum gæti lokið á laug­ar­dag eða þriðju­dag, líkt og Kjarninn greindi frá í gær.

Síðdegis í gær átti eftir að semja við Mið­flokk­inn sér­stak­lega um hvað þyrfti til að hann myndi sam­þykkja þing­lok. Þegar leið á dag­inn lá þó fyrir að slíkt sam­komu­lag yrði und­ir­ritað af Mið­flokknum. Það sner­ist um að umræðum um þriðja orku­pakk­ann yrði áfram­haldið í tvo til þrjá daga á sér­stökum þing­fundi í lok ágúst eða byrjun sept­em­ber.

Önnur mál sem röt­uðu í umræð­una í gær, eins og mót­staða Mið­flokks­ins við frum­varp um kyn­rænt sjálf­ræði eða frek­ari frestun á heim­ild til inn­flutn­ings á ófrosnu kjöti, voru af flestum við­mæl­endum Kjarnans sögð vera póli­tísk stæri­læti, en ekki alvöru ásteyt­ing­ar­steinar hvað varð­aði þing­lok. Hlé var gert á þing­fundi á ell­efta tím­anum í gær­kvöldi til að full­trúar mis­mun­andi flokka gætu lesið yfir fyr­ir­liggj­andi sam­komu­lag.

[adspot]Á end­anum strand­aði þing­loka­sam­komu­lagið á Sjálf­stæð­is­flokknum. Bæði Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur voru sam­þykk því að ljúka störfum á þeim nótum sem sam­komu­lagið sagði til um, en ekki gekk að fá það sam­þykkt hjá Sjálf­stæð­is­flokknum þegar á reyndi.

Heim­ild­ar­menn Kjarnans segja að þungt hafi verið yfir bæði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Stein­grími J. Sig­fús­syni, for­seta Alþingis, vegna þess­arar stöðu þegar hún teikn­að­ist upp seint í gær­kvöldi þegar þing­fundi var frestað klukkan 23:54.

Orkupakkinn áfram erfiður

Opinbera skýr­ingin sem gefin er á þess­ari stöðu sé að stjórn­ar­flokk­arnir og Mið­flokk­ur­inn séu enn að henda á mill sín hug­myndum og að ekki hefði náðst saman á end­anum í gær. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans, bæði innan og utan stjórn­ar­flokk­anna, er raun­veru­leg ástæða þess að hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins vildi ekki sam­þykkja þing­loka­sam­komu­lagið vegna fram­setn­ingar á mála­lokum umræðna vegna þriðja orku­pakk­ans. Málið hefur leitt af sér mikil átök innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nokkrir þunga­vigt­ar­þing­menn og ráð­herrar tekið mjög ein­arða afstöðu í því sem hefur ekki verið vin­sæl alls staðar. Þar ber helst að nefna Guðlaug Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra, Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra ferða­mála-, iðn­aðar-, nýsköp­unar og dóms­mála, og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, for­mann utan­rík­is­mála­nefndar. Þau hafa öll lagt umtals­vert undir í stuðn­ingi sínum við fram­gangi máls­ins á þingi og tekið erf­iða slagi. Því skipti miklu máli hvernig orða­lag um orku­pakka­málið yrði fram­sett í þing­loka­samn­ingum.

[adspot]Til við­bótar bætt­ust vend­ingar vegna nýrra fyr­ir­hug­aðra laga um fisk­eldi, en Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), ein öfl­ug­ustu og áhrifa­rík­ustu hags­muna­gæslu­sam­tök lands­ins, höfðu komið óform­lega á fram­færi athuga­semdum vegna þeirra síð­ustu daga, meðal ann­ars til nefnd­ar­manna í atvinnu­vega­nefnd. Í gær sendu þau svo frá sér yfir­lýs­ingu þar sem sam­tökin lýstu því form­lega að þau vildu að frum­varp­inu yrði frestað þar sem það fæli í sér íþyngj­andi atriði fyrir fisk­eld­is­iðn­að­inn.

Nær allir við­mæl­endur Kjarnans, bæði innan stjórn­ar­liðs­ins og innan meiri­hluta stjórn­ar­and­stöð­unnar, voru þó á einu máli um að stóra málið væri afgreiðsla orku­pakka­máls­ins.

Reynt að ná niðurstöðu í dag

Áfram verður unnið að málum í dag. Rík­is­stjórnin hitt­ist á hefð­bundnum rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun og þar átti að leggja upp næstu skref. Auk þess hófst fundur þing­flokks­for­manna allra flokka klukkan 10:15.

Katrín Jak­obs­dóttir hefur hingað til borið hit­ann og þung­ann af því að reyna að ná sam­komu­lagi. Það sem gerð­ist í gær breytir þó þeirri stöðu, í ljósi þess að mót­staðan nú er ein­ungis í Sjálf­stæð­is­flokknum. Búið var að ná öllum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum að borð­inu.

Nú sé það í höndum Sjálf­stæð­is­flokks­ins að finna leið til að ljúka þing­störfum, í ljósi þess að and­staða innan hans hafi ein stöðvað þá nið­ur­stöðu í gær­kvöldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár