SFS vill að fiskeldisfrumvarpi verði frestað

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi telja að með frum­varpi um fisk­eldi sé of langt gengið í því að hamla gegn upp­bygg­ingu fisk­eld­is­iðn­aðar.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) telja að betra sé að fresta afgreiðslu fisk­eld­is­frum­varps, en að ljúka mál­inu og lög­festa það sem stefnt er að.

Í frétta­bréfi SFS segir Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS, að frum­varpið muni fela í sér íþyngj­andi atriði fyrir fisk­eld­is­iðn­að­inn. „Frumvarp til laga um starfs­um­hverfi fisk­eldis er nú til ann­arrar umræðu á Alþingi. Fram kom í ræðu fram­sögu­manns atvinnu­vega­nefndar á Alþingi að mikil ein­drægni hefði verið í nefnd­inni um málið og tek­ist hefði að sætta þar ýmis sjón­ar­mið. Þótt sögð hafi verið sam­staða í nefnd­inni, eru það þó fyr­ir­tækin í land­inu sem þurfa að fylgja ákvæðum nýrra laga, þar er veru­leik­inn fyrir utan veggi Alþingis. Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi vilja árétta að fisk­eldi er að verða veiga­mikil stoð í íslensku efna­hags­lífi og mik­il­vægt er að upp­bygg­ing þess verði í sátt við bæði sam­fé­lag og umhverfi. Fyr­ir­liggj­andi frum­varp þrengir hins vegar mjög að rekstr­ar­skil­yrðum fisk­eld­is­fyr­ir­tækja og hamlar veru­lega þeirri upp­bygg­ingu sem nauð­syn­leg er í atvinnu­grein­inni svo hún geti til fram­tíðar skapað góð störf og skilað tekjum til sam­fé­lags­ins. Margir þýð­ing­ar­miklir agn­úar eru á frum­varp­inu og um áhrif þeirra fást engin svör, hvorki frá ráð­herra né þing­mönnum,“ segir Heiðrún Lind.

Heiðrún Lind segir jafn­framt að af þessum sökum sé ekki hægt að sam­þykkja að frum­varpið verði að lögum, eins og það er núna. „Af þessum sökum óska Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi þess að afgreiðslu frum­varps­ins verði frestað. Færi gefst þá til að end­ur­skoða mik­il­væga efn­is­þætti frum­varps­ins og færa til betri vegar. Sú vinna gæti þá orðið til þess að skapa meiri sátt um fisk­eldi,“ segir Heiðrún Lind.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár