Óttinn um að hafa smitað aðra „þung tilfinning“

Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir bæj­ar­full­trúi í Garðabæ er búin að jafna sig á COVID-19 og seg­ist hafa gengið í gegnum „til­finn­inga­rús­sí­bana“ eftir að hún greind­ist. Hún ræddi upp­lifun sína af sjúk­dómnum á upp­lýs­inga­fund­inum í Skóg­ar­hlíð í dag.

Sara Dögg Svanhildardóttir á upplýsingafundinum í dag.
Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir, bæj­ar­full­trúi í Garðabæ, sagði sögu sína af COVID-19 smiti á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins í Skóg­ar­hlíð í dag, en henni er batnað fyrir all­nokkru. Hún sagð­ist hafa gengið í gegnum „COVID-til­finn­inga­rús­sí­bana“ og nefndi að hún væri frekar vera að glíma við and­leg eft­ir­köst veirunnar en lík­am­leg.

Sara Dögg greind­ist í sýna­töku hjá Íslenskri erfða­grein­ingu, snemma í mars, þegar rétt rúm­lega hund­rað smit höfðu verið greind hér á landi. Hún hafði verið slöpp vik­una áður en hún fór í prófið, en sagði að henni hefði ekki grunað að hún væri með veiruna.

„Þetta var týpískur slapp­leiki, með miklu kvefi og höf­uð­verk og slíku. Ég taldi mig ekki vera veika og því síður óraði mig fyrir að ég væri með þessa veiru,“ sagði Sara Dögg, sem var nýkomin heim af bæj­ar­stjórn­ar­fundi þegar hún fékk sím­tal um að hún væri með veiruna. „Mér brá veru­lega,“ sagði Sara.

Hún telur að þegar hún greind­ist með veiruna hafi hún í raun verið komin inn í bata­ferlið og það gerði smitrakn­inga­ferlið flókn­ara. „Þar sem ég var orðin frekar frísk var þetta ansi langur tími sem við þurftum að rekja aftur og þess vegna, kæra þjóð, upp með þetta rakn­ingar-app, allir,“ sagði Sara Dögg.

Alma Möller land­læknir greindi frá því á fund­inum að 96 þús­und manns væru þegar búin að ná sér í appið, Rakning C-19, sem aðgengi­legt er fyrir bæði iPhone og Android-síma.

Sara Dögg sagði það hafa verið flókið að reyna að rifja upp ferðir sínar aftur í tím­ann og að enn í dag sé hún að lenda í því að muna skyndi­lega eftir ein­hverjum sem hún hafði hitt en ekki munað eftir þegar hún sat með smitrakn­ing­arteym­inu. Þá fyllist hún sam­visku­biti. Hún ræddi þetta sam­visku­bit sér­stak­lega og sagð­ist viss um að aðrir sem hefðu smit­ast væru að upp­lifa það sama.

Stórt og mikið verkefni að vera með COVID-19

„Ég var ekk­ert síður bara hrædd um þann raun­veru­leika að ein­hver smit­að­ist af mér og það er kannski þessi stóra þunga til­finn­ing sem er erfið, alveg sama hvað við gerum við hana,“ segir Sara Dögg, sem ræddi um „sótt­kví­ar­hóp­inn sinn“, en það kallar hún fólkið sem fór í sótt­kví hennar vegna. Í þeim hópi var 93 ára gömul vin­kona, sem Sara Dögg hafði hitt sama dag og hún fékk grein­ing­una. Sara Dögg sagð­ist þó heppin, en hún veit ekki til þess að nokkur sem hún var í sam­skiptum við hafi smit­ast.

„Hún er mikil vin­kona mín og við höfum talað saman í síma á hverjum ein­asta degi, hlæjum mikið saman og við erum mjög hvetj­andi fyrir hvora aðra. Þannig að það hefur verið gríð­ar­lega mik­il­vægt og þess vegna segi ég, sam­veran í hvaða formi sem hún er er gríð­ar­lega mik­il­væg,“ sagði Sara Dögg.

„Ég gæti talað held ég í allan dag um þetta, en þetta er stórt og mikið verk­efni að vera með COVID-19,“ sagði Sara Dögg, sem kom því áleiðis til fólks að hugsa vel um þá sem eru smit­aðir og sendi sömu­leiðis bar­áttu­kveðjur til smit­aðra og aðstand­enda þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár