Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Píratar bæta við sig fylgi

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast nú sam­eig­in­lega með 44,7 pró­sent fylgi en þrír stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir mæl­ast með 38,6 pró­sent. Mið­flokk­ur­inn hefur ekki mælst minni síðan skömmu eftir Klaust­ur­málið.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Flokkur hans bætir mestu við sig á milli mánaða.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Flokkur hans bætir mestu við sig á milli mán­aða. Mynd: Golli

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins með 23,1 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun MMR. Fylgi flokks­ins hefur auk­ist um rúm tvö pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun. Sam­fylk­ingin bætir líka umtals­vert við sig og mælist nú með 15,4 pró­sent fylgi. Sömu sögu er að segja af Pírötum en 13,2 pró­sent aðspurðra segj­ast styðja þá en fylgi þeirra mæld­ist 11,5 pró­sent fyrir mán­uði.

Sá flokkur sem tapar mestu fylgi milli mán­aða er Mið­flokk­ur­inn, sem mælist nú með 6,9 pró­sent stuðn­ing. Það er um fjórð­ungi minna en fylgi hans mæld­ist fyrir mán­uði síðan. Fylgi flokks­ins hefur ekki mælst lægra í könn­unum MMR síðan skömmu eftir Klaust­ur­málið svo­kall­aða, eða í febr­úar 2019.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn dalar líka á milli mán­aða og mælist með 11,5 pró­sent fylgi. Vinstri græn tapa sömu­leiðis milli mán­aða en 10,1 pró­sent aðspurðra sögð­ust ætla að kjósa flokk for­sæt­is­ráð­herra.

Fylgi Við­reisnar stendur í stað í tíu pró­sentum, Flokkur fólks­ins mælist með 4,7 pró­sent fylgi og alls segj­ast fjögur pró­sent aðspurðra í könn­un­inni ætla að kjósa Sós­í­alista­flokk Íslands.

Vinstri græn tapa mestu

Ef núver­andi staða sam­kvæmt könnun MMR yrði nið­ur­staða kosn­inga væri rík­is­stjórnin fallin. Sam­an­lagt fylgi þeirra er nú 44,7 pró­sent, eða 8,1 pró­sentu­stigi minna en það var síð­ast þegar kosið var.

Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist með meira fylgi en hann fékk haustið 2017 er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem mælist með 0,8 pró­sentu­stigum meira fylgi nú en hann fékk þá. Vert er að taka fram að nið­ur­staða Fram­sóknar í októ­ber 2017 var versta kosn­ing­ar­nið­ur­staða í sögu flokks­ins.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með rúm­lega tveimur pró­sentu­stigum minna fylgi nú en hann fékk upp úr kjör­köss­unum fyrir þremur og hálfu ári.

Stóri tap­ar­inn á rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu miðað við stöðu mála sam­kvæmt könnun MMR eru þó Vinstri græn, en flokk­ur­inn hefur tapað 40 pró­sent af fylgi sínu og mælist nú fimmti stærsti flokkur lands­ins, 0,1 pró­sentu­stigi stærri en Viðreisn sem situr í sjötta sæt­inu.

Þrír stjórnarandstöðuflokkar bætt umtalsvert við sig

Píratar og Sós­í­alista­flokkur Íslands eru þeir flokkar sem hafa bætt við sig mestu fylgi á kjör­tíma­bil­inu fram til þessa, eða sitt­hvorum fjórum pró­sentu­stig­unum. Sós­í­alist­arnir eru að bjóða fram í fyrsta sinn og myndu ekki ná inn á þing með það fylgi sem þeir mæl­ast með nú, eða fjögur pró­sent.

Píratar hafa hins vegar farið úr 9,2 í 13,2 pró­sent og mæl­ast þriðji stærsti flokkur lands­ins.

Aðrir flokkar sem hafa bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu úr stjórn­ar­and­stöð­unni eru Sam­fylk­ingin og Viðreisn, sem hafa báðir stækkað um 3,3 pró­sentu­stig.

Sam­an­lagt fylgi Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar mælist nú 38,6 pró­sent, eða 10,6 pró­sentu­stigum meira en það var haustið 2017.

Þeir flokkar stjórn­ar­and­stöð­unnar sem hafa tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu eru Mið­flokk­ur­inn, sem mælist nú með fjórum pró­sentu­stigum minna fylgi en 2017, og Flokkur fólks­ins, sem mælist með 2,2 pró­sentu­stigum minna fylgi.

Könnunin var fram­kvæmd 29. mars - 7. apríl 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 940 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár