Vill að Alþingi komi saman og afnemi kröfu um meðmælendalista

Vegna vand­ræða sem komið hafa upp við raf­ræna söfnun stjórn­mála­flokka á með­mæl­endum vegna kom­andi kosn­inga vill þing­maður Pírata að kröfum um með­mæl­endur verði sleppt. Flokk­arnir ell­efu sem ætla sér fram­boð þurfa alls 20.790 und­ir­skriftir frá kjós­endum.

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segist vera búinn að láta forseta Íslands vita af vandkvæðum í rafrænni söfnun meðmæla.
Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata seg­ist vera búinn að láta for­seta Íslands vita af vand­kvæðum í raf­rænni söfnun með­mæla. Mynd: Bára Huld Beck

Núna í aðdrag­anda kosn­inga var sett upp nýtt raf­rænt kerfi á Ísland.is, þar sem kjós­endur geta mælt með fram­boðum stjórn­mála­flokka, svo þeir fái að bjóða fram til þings í lok sept­em­ber. Í gær voru hnökrar í kerf­inu og var það ekki í fyrsta sinn, en ávallt hefur verið leyst úr málum, sam­kvæmt svörum dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til Kjarnans.

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata telur vand­kvæðin á raf­ræna kerf­inu þó hafa verið svo alvar­leg að Alþingi ætti að koma saman sem fyrst og afnema kröfur sem gerðar eru um með­mæl­endur fram­boða fyrir kom­andi kosn­ingar. Þetta viðr­aði þing­mað­ur­inn á sam­fé­lags­miðlum í gær og seg­ist í sam­tali við Kjarnann enn vera sömu skoð­unar.

Hann nefndi sömu­leiðis við blaða­mann að hann væri búinn að láta Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, vita af mál­inu.

Það seg­ist Björn Leví hafa gert þar sem þing var form­lega rofið í upp­hafi ágúst­mán­aðar á rík­is­ráðs­fundi á Bessa­stöðum. Ef það ætti að kalla þingið saman að nýju til þess að stroka út kröfur um með­mæl­enda­lista þyrfti for­set­inn að koma að því ferli.

Stafrænn leiðtogi kallaður til

Þing­mað­ur­inn er ekki eini Píratinn sem hefur lýst yfir óánægju með ein­hverjar villur í kerf­inu. Gísli Ólafsson, fram­bjóð­andi Pírata í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sagði á Facebook í gær að hann og aðrir sem væru að safna und­ir­skriftum fyrir flokk­inn væru að lenda í því að und­ir­skrift­irnar væru ekki að skila sér eins og búast mætti við, þar sem kerfið væri sífellt að detta niður og bila.

„Við og aðrir stjórn­mála­flokkar höfum ítrekað kvartað til þeirra en ekk­ert ger­ist og nú þegar aðeins eru rúmar tvær vikur þar til und­ir­skriftir þurfa að vera komnar, þá lítur allt út fyrir að við þurfum að fara gegn COVID ráð­legg­ingum og safna þessu í per­sónu,“ sagði Gísli í færslu sinni.

Hann benti Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra og Andra Heiðari Krist­ins­syni, sem er staf­rænn leið­togi í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, á villu sem gerði þeim sem vilj­ugir voru til þess að ljá ein­hverju stjórn­mála­afli með­mæli sín raf­rænt ókleift að gera það.

Andri Heiðar sagð­ist í svari til Gísla ætla að skoða málið og sagði svo að brugð­ist hefði verið við þess­ari villu í kerf­inu, sem hefði stafað af gömlu SSL-skíl­ríki hjá Þjóðskrá sem runnið hefði út.

Kjarninn spurð­ist fyrir um málið hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu í gær og fékk þau svör síð­degis að gagna­teng­ing söfn­un­ar­kerfis með­mæl­enda­list­ans við Þjóðskrá hefði rofnað og væri nýkomin aftur á.

Segjast hafa leyst úr öllum vandræðum

„Notendur á þeim tíma hafa að lík­indum lent í vand­ræðum með að skrá sig,“ sagði Fjalar Sig­urð­ar­son upp­lýs­inga­full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í svari til Kjarnans. Í kjöl­farið spurði blaða­maður hvort þetta væru einu vand­kvæðin sem til­kynnt hefði verið um í sam­bandi við með­mæla­kerfið. Svo er ekki.

[adspot]

„Frá því kerfið var sett í gang hefur ráðu­neytið annað slagið fengið ábend­ingar um hnökra og hefur ráðu­neytið ávallt brugð­ist strax við því svo úr mætti bæta,“ segir í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Þar segir að ein­hverjir ann­markar hafi verið tækni­legs eðlis, „en einnig var eitt­hvað um mis­tök þeirra sem stofna listana á vefnum.“ Ávallt hefði verið leyst úr málum.

Vert er að taka fram að blaða­maður er búinn að prófa að nota kerfið til þess að veita fram­boði með­mæli. Það gekk smurt fyrir sig.

„Ráðu­neytið hefur frá upp­hafi verið í þéttum og góðum sam­skiptum við full­trúa stjórn­mála­flokk­anna, kynnt fyrir þeim kerfið og fundað með þeim og tækni­fólki til að fara yfir þau vanda­mál sem upp hafa komið við notkun á kerf­inu. Okkar tengiliðir hjá flokk­unum hafa unnið þetta verk­efni af yfir­vegun með ráðu­neyt­inu,“ segir einnig í svari ráðu­neyt­is­ins.

Hvert einasta framboð þarf 1.890 undirskriftir

Allir flokkar sem ætla að bjóða fram til Alþingis í haust þurfa að safna að minnsta kosti 1.890 und­ir­skriftum frá almenn­ingi, en þeim er gert skylt að skila inn á milli 30 og 40 und­ir­skriftum fyrir hvert þing­sæti sem er í boði.

Framboð í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þarf því að skila 240 und­ir­skriftum hið minnsta, enda 8 þing­menn í kjör­dæm­inu, á meðan fram­boð í Suð­vest­ur­kjör­dæmi þarf að skila inn 390 gildum und­ir­skriftum frá kjós­endum þar sem þing­menn kjör­dæm­is­ins eru 13 tals­ins.

Hver og einn ein­stak­lingur getur ein­ungis mælt með einu fram­boði í sínu kjör­dæmi. Ellefu flokkar hafa boðað að þeir ætli sér að bjóða fram til Alþingis eftir mánuð og ef það á allt saman að ganga upp þurfa að minnsta kosti 20.790 kjós­endur að ljá ein­hverjum lista sín með­mæli.

Þetta er því nokkur vinna fyrir flokk­ana í aðdrag­anda kosn­inga, eins og Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur, sem þekkir vel til í her­búðum Vinstri grænna, nefndi á Twitter á dög­unum.

Björn Leví segir við Kjarnann að það sé alltaf mikil vinna fyrir fram­boðin að safna und­ir­skrift­unum í aðdrag­anda kosn­inga. Rafræna kerfið hafi alveg hjálpað til og virst vera mjög aðgengi­legt, þar til upp hafi komið villur sem geri það að verkum að kerfið sé ekki aðgengi­legt.

Hann seg­ist hugsi yfir því að þurfa mögu­lega að fara að stökkva af stað núna, á mun skemmri tíma en verið hefur, til að safna und­ir­skriftum með gamla lag­inu. „Þetta er bara stress,“ segir Björn Leví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár