Gera ráð fyrir að 2.100 greinist með veiruna í þessari bylgju faraldursins

Ný for­spá vís­inda­manna um þróun kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér á landi gerir ráð fyrir því allt að 2.600 manns grein­ist með COVID-19 í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins. Ald­urs­dreif­ing smit­aðra hefur verið hag­stæð hér á landi til þessa.

Nú er gert ráð fyrir því að rúm­lega 2.100 manns muni grein­ast með COVID-19 hér á landi í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins, en talan gæti náð 2.600 sam­kvæmt svart­sýnni spá. Þetta kemur fram í upp­færðri for­spá vís­inda­manna Háskóla Íslands, Land­spít­ala og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, sem mið­ast við gögn til og með 5. apríl.

Gert er ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem eru með virkan sjúk­dóm nái hámarki í þess­ari viku og að þeir verði um 1.400 tals­ins. Samkvæmt svart­sýnni spá gæti þó farið svo að toppnum verði ekki náð fyrr en í næstu viku og að 1.700 ein­stak­lingar hafi þá virkan sjúk­dóm á sama tíma.

Samkvæmt nýj­ustu gögnum er gert ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja far­ald­urs­ins fer yfir þurfi 140 manns að leggj­ast inn á sjúkra­hús, en fjöld­inn gæti náð hátt í 170 manns. Mest álag á heil­brg­iðis­þjón­ustu verður fyrir miðjan apríl, en þá er gert ráð fyrir að um það bil 70 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma, en svart­sýnni spá er 90 ein­stak­lingar.

Uppfærð for­spá gerir ráð fyrir því að tíma far­ald­urs­ins muni 28 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega og þurfa gjör­gæslu­inn­lög, en svart­sýnni spá gerir ráð fyrir því að þessir sjúk­lingar verði allt að 41 tals­ins.

Mestu álagi á gjör­gæslu­deildir er spáð í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 11 sjúk­lingar liggi á gjör­gæslu á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það verið 19 manns.

Ef fleiri eldri fara að veikjast má búast við þyngri stöðu

Vert er að hafa í huga, segja vís­inda­menn­irnir, að hér á landi hefur ald­urs­dreif­ing smit­aðra ein­stak­linga verið hag­stæð til þessa.

Smá­vægi­leg hliðrun ald­urs­dreif­ingar í átt að fleiri greindum smitum meðal ein­stak­linga yfir sex­tugt myndi auka álag á heil­brigð­is­þjón­ustu tals­vert, sam­kvæmt hermun sem vís­inda­menn­irnir fram­kvæmdu.

Ef fleiri eldri mann­eskjur myndu smit­ast en raunin hefur verið til þessa gæti staðan í heil­brigð­is­kerf­inu þannig orðið tölu­vert þyngri og upp­safn­aðar gjör­gæslu­legur orðið vel yfir 50 tals­ins.

Jafnvel gæti farið svo að allt að 25 manns þyrftu á gjör­gæslu­inn­lögn á sama tíma skömmu fyrir miðjan mán­uð­inn, sam­kvæmt svart­sýnni spá sem byggir á því að fleiri smit grein­ist hjá eldra fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár