Breytingar Áslaugar Örnu á lögum um almannavarnir verði einungis til bráðabirgða

Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd afgreiddi í gær frum­varp um borg­ara­lega skyldu starfs­manna opin­berra aðila. Kenn­ara­sam­band Íslands gagn­rýndi frum­varpið harð­lega í vik­unni.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hefur afgreitt frum­varp Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingu á lögum um almanna­varnir er varðar borg­ara­lega skyldu starfs­manna opin­berra aðila.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans leggur nefndin til að verði frum­varpið að lögum skuli þau falla úr gildi þann 31. des­em­ber næst­kom­andi og þar af leið­andi skuli það ein­ungis vera til bráða­birgða.

Í frum­varp­inu, sem var lagt fram í byrjun vik­unnar, felst að tryggja eigi laga­grund­völl fyrir heim­ild opin­berra aðila til að færa starfs­menn til í starfi á hættu­stundu. Opin­berir aðilar sam­kvæmt því eru ríki, sveit­ar­fé­lög og fyr­ir­tæki í þeirra eigu.

Varðandi til­efni og nauð­syn frum­varps­ins kemur fram í grein­ar­gerð þess að á hættu­stundu sé mik­il­vægt að opin­berir aðilar hafi svig­rúm til þess að nýta mannauð sinn í þau verk­efni sem njóti for­gangs hverju sinni. Þá geti starfs­skyld­ur, starfs­að­stæður og starfs­stöðvar starfs­manna þurft að taka tíma­bundnum breyt­ing­um.

[links]„Und­an­farið hafa opin­berir aðilar mark­visst unnið að upp­færslu á við­bragðs­á­ætl­unum meðal ann­ars vegna snjó­flóða­hættu, eld­gosa­hættu og far­sótt­ar­innar COVID-19. Í mörgum við­bragðs­á­ætl­unum er tekið fram að heim­ilt sé að færa fólk milli starfa til að sinna verk­efnum sem hafa for­gang á hættu­stundu. Við þá vinnu hefur komið í ljós að nauð­syn­legt er að tryggja laga­grund­völl fyrir heim­ild opin­berra aðila til að færa starfs­menn til í starfi eftir þörf­um. Slík heim­ild þarf að vera til staðar óháð efni við­bragðs­á­ætl­ana þar sem taka þarf ákvarð­anir hratt og örugg­lega á hættu­stund­u,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að Kenn­ara­sam­band Íslands hefði lagst alfarið gegn því að frum­varpið yrði sam­þykkt óbreytt. Það taldi að þegar hættu­á­stand væri gæti skap­ast öfl­ugur hvati fyrir stjórn­mála­menn að ganga lengra en rétt­læt­an­legt væri til að mæta þeirri ógn sem að stafar. Með frum­varp­inu væru stjórn­völd að auka stór­kost­lega völd sín yfir opin­berum starfs­mönn­um.

Starfsmenn skuli halda óbreyttum launakjörum

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans leggur alls­herjar- og mennta­mála­nefnd til að við lögin bæt­ist nýtt ákvæði til bráða­birgða og að þar komi fram að það sé borg­ara­leg skylda starfs­manna opin­berra aðila að gegna störfum í þágu almanna­varna á hættu­stundu. Opin­berum aðilum verði heim­ilt að breyta tíma­bundið starfs­skyldum starfs­manna og að flytja þá tíma­bundið milli starfs­stöðva og opin­berra aðila til að sinna verk­efnum sem hafa for­gang á hættu­stundu. Þá skuli starfs­menn halda óbreyttum launa­kjörum. Þó verði því bætt við að starfs­maður þurfi ekki að sinna þess­ari skyldu ef heilsu­far hans sé í hættu, eða ein­hvers sem hann ber ábyrgð á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár