Ríkisstjórnarflokkarnir fengju einungis 30 þingmenn samkvæmt nýrri könnun Maskínu

Í nýrri könnun Maskínu fyrir frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis dalar fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins um tæp þrjú pró­sentu­stig. Rík­is­stjórnin myndi ekki halda þing­meiri­hluta sínum, sam­kvæmt könn­un­inni.

Ríkisstjórnin héldi ekki þingmeirihluta sínum ef niðurstöður kosninga yrðu í takt við nýja könnun Maskínu.
Rík­is­stjórnin héldi ekki þing­meiri­hluta sínum ef nið­ur­stöður kosn­inga yrðu í takt við nýja könnun Maskínu. Mynd: Samsett

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins dalar nokkuð og mælist 20,9 pró­sent í nýrri könnun frá Maskínu, sem greint var frá í kvöld­fréttum Stöðvar 2. Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar gæti flokk­ur­inn ekki myndað rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki eftir kom­andi kosn­ingar, en sam­kvæmt útreikn­ingum í frétt Stöðvar 2 fengju stjórn­ar­flokk­arnir ein­ungis 30 þing­menn kjörna.

Vinstri græn mæl­ast með 14,1 pró­sent fylgi í könnun Maskínu og Sam­fylk­ingin með 13,7 pró­sent. Þar næst koma Píratar með 12,7 pró­sent fylgi og Viðreisn með 12,3 pró­sent. Framsókn mælist síðan með 9,9 pró­sent og Sós­í­alista­flokk­ur­inn með 6,3 pró­sent, sem er tveimur pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu mæl­ingu Maskínu.

Mið­flokk­ur­inn fengi 5,5 pró­sent atkvæða ef nið­ur­stöður kosn­inga yrðu í takt við nið­ur­stöður þess­arar könn­unar Maskínu og Flokkur fólks­ins mælist með 4,2 pró­sent.

Flokkur fólks­ins fengi ekki þing­mann, sam­kvæmt útreikn­ingum í frétt Stöðvar 2. Þess ber þó að geta að tekið var fram í frétt­inni að of fáir þátt­tak­endur hefðu tekið þátt í könn­un­inni til að þeir útreikn­ingar gætu talist „nákvæm vís­indi.“

Fjóra flokka þyrfti til að ná meirihluta

Samkvæmt nið­ur­stöðum þess­arar könn­unnar og útreikn­ingum sem settir eru fram í frétt Stöð 2 um væntan þing­manna­fjölda flokk­anna þyrfti fjóra flokka að lág­marki til þess að mynda rík­is­stjórn sem hefði meiri­hluta á þingi.

[adspot]

Ef Viðreisn kysi að hlaupa undir bagga með núver­andi rík­is­stjórn­ar­flokkum yrði sú stjórn með 38 þing­menn og rúman þing­meiri­hluta.

Ef hins vegar Vinstri græn, Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn myndu fara í sam­starf, rétt eins og flokk­arnir gera í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, hefði sú rík­is­stjórn 35 þing­menn og einnig rúman meiri­hluta á þingi, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar.

Athuga­semd rit­stjórnar: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar var sú ályktun dregin að 4,2 pró­senta fylgi myndi ekki duga Flokki fólks­ins til þess að fá þing­mann kjör­inn. Ekki er hægt að full­yrða það að óat­hug­uðu máli, þar sem flokkar geta fengið kjör­dæma­kjörna þing­menn án þess að fá yfir 5 pró­sent atkvæða á lands­vísu. Tekið er fram í frétt Stöðvar 2 að útreikn­ingar á þing­manna­fjöld­anum séu ekki „nákvæm vís­indi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár