Nánast lögmál að hlutabréf hækki og að eftirspurn sé meiri en framboð

Mynd: Nasdaq OMX Iceland
Mynd: Nasdaq OMX Iceland

Öll félög sem hafa verið skráð á íslenskan hluta­bréfa­markað eftir hrun hafa hækkað í verði utan við eitt. Þá var umfram­eft­ir­spurn í hluta­fjár­út­boðum þeirra allra. Virði sumra félag­anna hefur marg­fald­ast á nokkrum árum þótt þau hafi mörg hver greitt út arð til hluta­hafa sinna og borgað hratt niður skuldir á sama tíma.

Það virð­ist því nán­ast ófrá­víkj­an­leg regla að hluta­bréf í skráðum félögum á Íslandi hækki eftir að við­skipti með þau hefj­ast á mark­aði og það er jafn ófrá­víkj­an­leg regla að meiri eft­ir­spurn er eftir hluta­bréfum þeirra í frumút­boðum en fram­boð.

Betri fjárfestar en aðrir

Sú aðferð­ar­fræði sem bank­arnir hafa beitt við að selja hluti í fyr­ir­tækjum sem þeir hafa annað hvort kom­ist yfir, eða verið falið af öðrum eig­endum að selja, hefur verið tölu­vert í sviðs­ljós­inu að und­an­förnu vegna skrán­ingar Símans á markað. Í aðdrag­anda þeirrar skrán­ingar fékk hópur sem Orri Hauksson, for­stjóri Símans, fór fyrir að kaupa fimm pró­sent hlut í félag­inu á geng­inu 2,5 krónur á hlut.

Þegar Kjarninn leit­aði upp­lýs­inga hjá Arion banka um hvað hefði valdið því að hóp­ur­inn hafi fengið að kaupa þennan hlut í aðdrag­anda útboðs sagði bank­inn að í fjár­festa­hópnum séu aðilar sem alla jafna fjár­festi ekki á Íslandi sem hafi auk þess mikla reynslu úr fjar­skipta­heim­inum. „Sú þekk­ing sem þeir koma með að rekstri Símans var einn af þeim þáttum sem bank­inn leit til við ákvörðun um söl­una. Félagið stendur sterkara eftir með bæði lyk­il­stjórn­endur og ein­stak­linga með alþjóð­lega reynslu úr fjar­skipta­heim­inum í hluta­hafa­hópnum“.

Sala á hlut í Símanum til efnuðustu viðskiptavina Arion banka í aðdraganda útboðs hefur verið gagnrýnd harðlega. Virði hlutar þeirra hefur aukist um tæpan hálfan milljarð króna.
Sala á hlut í Símanum til efn­uð­ustu við­skipta­vina Arion banka í aðdrag­anda útboðs hefur verið gagn­rýnd harð­lega. Virði hlutar þeirra hefur auk­ist um tæpan hálfan millj­arð króna.

Stærstu eigendurnir íslenskir fjárfestar

Hluti þeirra sem keyptu eru hins vegar íslenskir fjár­festar sem taka virkan þátt í fjár­fest­ingum á Íslandi. Þar ber helst að Þar ber helst að nefna við­skipta­fé­lag­anna Árna Hauksson, Hall­björn Karlsson og Sig­ur­björn Þor­kels­son sem keyptu stærsta hlut­inn. Tveir aðrir íslenskir fjár­festar, Stefán Ákason, fyrrum for­stöðu­maður skulda­bréfa­miðl­unar Kaup­þings, og Ómar Svav­ars­son, fyrrum for­stjóri Vodafone á Íslandi, voru líka hluti af fjár­festa­hópnum. Auk þess hefur verið gagn­rýnt að hluti þeirra stjórn­enda sem fengu kaup­rétt hafi verið ráðnir til Símans eftir að hann gekk í gegnum fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu og gekk frá ýmsum erf­iðum sam­keppn­is­málum og hafi því lítið með stöðu félags­ins í dag að gera. Því sé óþarfi að verð­launa þá með ódýrum kaup­rétti.

Þessi hópur má ekki selja hlut sinn fyrr en í jan­úar 2017 og getur því ekki inn­leyst neinn hagnað strax. Virði hlut­ar­ins hefur samt sem áður auk­ist mikið, eða um 46 pró­sent. Þá var innan við vika síðan að Síminn var skráður á markað. Virð­is­aukn­ingin er upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna.

Arion banki hefur staðið með þess­ari aðferð­ar­fræði við sölu á hlut í Símanum og sagt hana rétta. Halldór Bjarkar Lúð­vígs­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­banka­sviðs Arion banka, og sá ein­stak­lingur sem hefur mest um það að segja hvernig bank­inn stendur að því að losa um eignir, skrif­aði nýverið grein í Morg­un­blaðið þar sem hann varði hana. Halldór Bjarkar sagði gagn­rýn­ina vera „eft­irá­speki“. „Það var mat Arion banka að það myndi styrkja hluta­fjár­út­boðið og Símann til fram­tíðar að fá að félag­inu hóp alþjóð­legra fjár­festa með reynslu af fjár­fest­ingum og fjar­skiptum í fjölda landa. Þessi hópur er því ekki ein­ungis að koma með fjár­magn í félagið heldur einnig dýr­mæta þekk­ingu og reynslu á sviði fjar­skipta sem mun von­andi nýt­ast félag­inu og hlut­höfum þess til fram­tíðar,“ sagði Halldór Bjarkar.

Þessi afstaða var end­ur­tekin í yfir­lýs­ingu bank­ans sem send var út á föstu­dag. Stjórn­endur hans standa fylli­lega við þá ákvörðun að selja fimm pró­sent hlut til stjórn­enda Símans og með­fjár­festa þeirra á 2,5 krónur á hlut.

Fimmföld umframeftirspurn eftir Símabréfum

Arion banki var ekki síður gagn­rýndur fyrir að selja hópi vild­ar­við­skipta sinna, sem eru í eigna­stýr­ingu hjá bank­anum, annan fimm pró­sent hlut í Símanum á geng­inu 2,8 krónur á hlut, í lok sept­em­ber. Valið var í þann hóp eftir umsvifum. Því fengu efn­uð­ustu við­skipta­vinir einka­banka­þjón­ustu og mark­aðsvið­skipta Arion banka þennan afslátt, aðrir ekki. Þá voru ein­ungis nokkrir dagar þangað til að opið útboð á hlutum í félag­inu fór fram. Þessi hópur, sem hefur ekki verið nafn­greindur, má selja sína hluti í jan­úar. Virði þeirra hefur þegar hækkað um 30 pró­sent, eða 447 millj­ónir króna.

Gagn­rýnin sem Arion banki hefur fengið á sig fékk byr undir báða vængi þegar útboði Símans lauk fyrr í þessum mán­uði. Í ljós kom að mikil umfram­eft­ir­spurn var eftir bréfum í Símanum. Alls nam sölu­and­virði þess 21 pró­sent hlutar sem seldur var um 6,7 millj­örðum króna. Heild­ar­eft­ir­spurn var hins vegar 33 millj­arðar króna. Því var eft­ir­spurnin fimm sinnum meiri en fram­boðið. Verðið er hærra en flestir grein­ing­ar­að­ilar töldu að það yrði, eða 3,33 krónur að með­al­tali.

Síðan að við­skipti hófust með bréf Símans í síð­ustu viku hefur gengið hækkað og var 3,64 krónur á hlut í lok lið­innar viku. Auk þess hefur velta með bréf í Símanum verið mikil. Þ.e. það eru margir að selja og kaupa.

Aðferðarfræði sem beitt hefur verið við sölu á bréfum í sumum þeirra félaga sem sett hafa verið á markað hefur verið gagnrýnd. Völdum viðskiptavinum banka hefur verið hleypt að slíkum kaupum á undan öðrum og á lægra verði. Mynd: Nasdaq OMX Iceland.
Aðferð­ar­fræði sem beitt hefur verið við sölu á bréfum í sumum þeirra félaga sem sett hafa verið á markað hefur verið gagn­rýnd. Völdum við­skipta­vinum banka hefur verið hleypt að slíkum kaupum á undan öðrum og á lægra verði. Mynd: Nasdaq OMX Iceland.

Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, sagði við skrán­ingu Símans að bank­inn hlusti og með­taki gagn­rýni sem fram hafi komið. „Við beitum bara þess­ari aðferð núna. Við með­tökum og hlustum á alla gagn­rýni, inn­byrðum hana og metum svo með til­liti til þess hvernig við gerum hluti fram á veg­inn,“ sagði Hösk­uldur við RÚV.

Bankinn við­ur­kenndi síðan fyrir helgi að salan til vild­ar­við­skipta­vin­anna hefði ekki verið í lagi. Óljóst er hvort hún hafi frek­ari afleið­ingar. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, hefur til að mynda sagt að mál­inu sé ekki lokið. Leið­rétta þurfi mis­tökin sem Arion banki gerði. Ríkið á 13 pró­sent hlut í bank­anum.

Nánast öll bréf hafa hækkað

Allir sem að við­skipt­unum komu, bæði þeir sem seldu og þeir sem keyptu, hafa bent á að það hafi alls ekk­ert legið fyrir að verðið væri lágt þegar við­skiptin voru ákveðin. Það væri ekki hægt að sjá fyrir að eft­ir­spurn yrði mikil né að fjár­festar myndu verða til­búnir að greiða hátt verð fyrir hlut­inn.

Og auð­vitað er það rétt. Það er ekki hægt að sjá fyrir fram­tíð­ina. En það voru þó allar líkur á því að mikil eft­ir­spurn yrði eftir bréf­unum. Í þeim tólf útboðum sem farið hafa fram vegna nýskrán­ingar félaga á Aðal­markað frá hruni hefur verið umfram­eft­ir­spurn í öllum. Hún hefur stundum verið marg­föld - í til­felli TM var hún t.d. átta­tíu­föld - og í flestum til­fellum hefur skrán­ing­ar­gengið verið við hærri mörk útboðs­ins.

Í raun er það þannig að eina félagið sem hefur verið nýskráð á markað þar sem gengið í dag er lægra en það var við skrán­ingu er trygg­inga­fé­lagið Sjóvá. Þar munar reyndar mjög litlu.

Gengi bréfa í Eik, Reitum, HB Granda, N1, TM, VÍS, Fjar­skiptum (móð­ur­fé­lags Vodafone), Eimskipa, Regins og Haga er hærra nú en það var í hluta­fjár­út­boð­unum sem haldin voru í aðdrag­anda skrán­ingar félaga á markað, eða í til­felli HB Granda útboðs sem end­ur­vakti við­skipti með bréf félags­ins. Við þennan hóp má svo bæta Icelandair, en félagið fór í hluta­fjár­aukn­ingu í nóv­em­ber 2010 þar sem hlutir voru seldir á 2,5 krónur á hlut. Gengi bréfa Icelandair er nú um 32,1 krónur á hlut.

Auk þess hafa þau þrjú félög, sem lifðu ásamt Icelandair hrunið af sem skráð félög, hækkað mikið. Gengi hluta­bréfa í Össuri var 73 krónur á hlut í mars 2009. Það er nú um 455 krónur á hlut. Gengi hluta­bréfa í Marel voru um 44 krónur á hlut í mars 2009 en er nú um 218,5 krónur á hlut og hefur tæp­lega fimm­fald­ast. Bréf Nýherja hafa hækkað umtals­vert á und­an­förnum árum eftir að hafa gengið í gegnum nokkra erf­ið­leika eftir hrun. Frá því að gengi bréfa í félag­inu náði eft­ir­hruns­botni sínum í októ­ber 2013, þegar það var 2,9 krónur á hlut, hefur það hækkað mikið og er nú 13,4 krónur á hlut. Það hefur því tæp­lega fimm­fald­ast á tveimur árum.

Þegar tryggingarfélögin TM og VÍS voru sett á markað settu fjölmargir leikendur á markaði inn tilboð sem þeir höfðu enga möguleika að standa við, til að tryggja sér sem minnsta skerðingu að útboði loknu. Þess vegna var umframeftirspurn eftir bréfum í TM áttatíuföld. Mynd: Nasdaq OMX Iceland
Þegar trygg­ing­ar­fé­lögin TM og VÍS voru sett á markað settu fjöl­margir leik­endur á mark­aði inn til­boð sem þeir höfðu enga mögu­leika að standa við, til að tryggja sér sem minnsta skerð­ingu að útboði loknu. Þess vegna var umfram­eft­ir­spurn eftir bréfum í TM átta­tíu­föld. Mynd: Nasdaq OMX Iceland

Mörg hlutafjárútboð gagnrýnd harkalega

Þótt nán­ast öll hluta­bréf hafi hækkað í verði þá er það ekki svo skrán­ing Símans sé eina nýskrán­ingin sem hefur vakið upp tor­tryggni og veikt til­trú á mark­aðnum. Þvert á móti hafa gagn­rýn­is­málin verið fjöl­mörg. Þegar Hagar voru skráðir á markað undir lok árs 2011 var þegar búið að selja stóran hlut í félag­inu á lægra verði en bauðst í útboð­inu. Auk þess var ekki greint frá því að hagn­aður Haga gæti hækkað um 25 pró­sent að loknu útboði vegna geng­is­lána­dóms.

Þegar Eimskip var sett á markað varð allt vit­laust vegna hárra kaup­rétt­ar­samn­inga sem átti að gera við helstu stjórn­endur félags­ins, og varð að lokum til þess að fallið var frá þeim. Þegar trygg­ing­ar­fé­lögin TM og VÍS voru sett á markað settu fjöl­margir leik­endur á mark­aði inn til­boð sem þeir höfðu enga mögu­leika að standa við, til að tryggja sér sem minnsta skerð­ingu að útboði loknu. Þess vegna var umfram­eft­ir­spurn eftir bréfum í TM átta­tíu­föld.

Í aðdrag­anda þess að Reitir voru settir á markað ákvað Arion banki að selja völdum fjár­festum hlut í félag­inu á lgæra gengi nokkrum mán­uðum áður en að útboð fór fram. Þegar fast­eigna­fé­lögin Land­festar og Eik voru sam­einuð, um ári áður en sam­einað félag var sett á markað, seldi Arion banki hluti í Eik til fjár­festa á lægra gengi en var í hluta­fjár­út­boði þess.

Allt ofan­talið hefur veikt til­trú á íslenska hluta­bréfa­mark­að­inum og fjár­mála­kerf­inu í heild. Í ljósi þess að stærstu bit­arnir úr end­ur­skipu­lagn­ingu íslensks atvinnu­lífs, stóru við­skipta­bank­arnir þrír, eru lík­ast til allir á leið á markað í náinni fram­tíð er ljóst að sporin hræða ansi marga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár