Guðlaugur Þór spyr um Símasöluna - Arion banki ver söluferlið

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur beint spurn­ingum í níu liðum til Banka­sýslu rík­is­ins vegna sölu Arion banka á eign­ar­hlut í Símanum. Meðal þess sem þing­mað­ur­inn spyr að er hvers vegna vild­ar­við­skipt­ar­vinum bank­ans hafi verið seldur hlutur í Símanum á undan öðrum á mun lægra gengi en í almennu útboði á 21 pró­senta hlut í síð­ustu viku. Hann spyr einnig um hvert ferlið hafi verið þegar ákveðnum við­skipta­vinum og stjórn­endum Símans var boðið að kaupa hluti í fyr­ir­tæk­inu á undan öðrum og hvort salan hafi mögu­lega falið í sér mark­aðs­mis­notkun.

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag. Í umfjöllun blaðs­ins kemur fram að stjórn Kaup­skila, félags sem fer með 87 pró­senta eign­ar­hlut slita­bús Kaup­þings í Arion banka, muni taka málið til umfjöll­unar síðar í þess­ari viku. Reynir Axelsson, stjórn­ar­for­maður Kaup­skila, segir í sam­tali við blaðið að til greina komi að beina fyr­ir­spurnum til bank­ans varð­andi sölu­ferlið en stjórnin hafi ekki tekið neina afstöðu ennþá.


Almennu hluta­fjár­út­boði Arion banka á 21 pró­senta hlut í Símanum lauk í síð­ustu viku og verða bréf félags­ins tekin til við­skipta í Kaup­höll­inni næst­kom­andi fimmtu­dag. Mikil umfram­eft­ir­spurn var í útboð­inu og seld­ust bréfin á með­al­geng­inu 3,3. Áður, í ágúst síð­ast­liðnum, var gengið frá sölu fimm pró­senta hlutar í félag­inu á geng­inu 2,5 til Orra Hauks­sonar, for­stjóra Símans, og fleiri stjórn­enda félags­ins auk ann­arra fjár­festa. Í aðdrag­anda útboðs­ins seldi Arion banki síðan vild­ar­við­skipt­ar­vinum sínum sam­tals fimm pró­senta hlut á geng­inu 2,8 krónur. Alls átti bank­inn 38 pró­senta hlut í Símanum, sem hann eign­að­ist eftir end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins árið 2012, og stendur því eftir með undir tíu pró­sent eign­ar­hlut.

Ver söluna

Í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag fjallar Halldór Bjarkar Lúð­vígs­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­banka­sviðs Arion banka, um sölu­ferlið og þá gagn­rýni sem það hefur hlotið í fjöl­miðlum. Hann segir að gagn­rýnin sé „eft­irá­speki“ og bendir á að ekki hafi verið hægt að gefa sér nið­ur­stöðu útboðs­ins fyr­ir­fram.


„Það sem liggur ljóst fyrir í dag að loknu útboði lá ekki ljóst fyrir nokkrum vikum og mán­uðum áður en útboðið fór fram. Það er því auð­velt að gagn­rýna þá ákvörðun að selja hluti á fyrr­nefndu gengi, nú þegar nið­ur­staða útboðs­ins liggur fyrir. Eins og fyrr segir hefur Arion banki komið að fjölda hluta­fjár­út­boða á und­an­förnum árum. Í þeim hefur eft­ir­spurn verið mis­jöfn og verð hluta­bréfa hefur end­ur­spegl­ast af því. Í því sam­hengi má minna á útboð HB Granda hf. þar sem farið var út með verð­bilið 26,6-32,5 krónur á hlut, en nið­ur­staða útboðs var 27,7 krónur á hlut, sem er tals­vert undir mið­gildi verð­bils­ins. Í til­felli Eikar fast­eigna­fé­lags var útboðs­gengið 6,8 krónur á hlut á meðan verð­bilið var 6,25-6,95 krónur á hlut. Í því til­felli var útboðs­gengið því yfir mið­gild­inu en nokkuð undir efri mörkum verð­bils. Það er því ekki hægt að gefa sér þá nið­ur­stöðu sem kom út úr útboði Símans fyr­ir­fram. Sú staða hefði getað komið upp, ef útboðs­gengið hefði endað við neðri enda verð­bils­ins, að bank­inn hefði fengið á sig gagn­rýni fyrir að selja hluti á 2,8 krónur á hlut með sölu­hömlum. Þá hefði það gengi mögu­lega þótt of hátt,“ skrifar Halldór Bjarkar.


Hann bendir einnig á að báðir hóp­arnir sem keyptu fyrir útboðið, þ.e. Stjórn­endur og sam­fjár­festar ann­ars vegar og við­skipta­vinir eigna­stýr­ingar og verð­bréfa­miðl­unar Arion banka hins vegar, séu bundnir sölu­hömlum. Fyrr­nefndi hóp­ur­inn má ekki selja bréfin fyrr en 1. jan­úar 2017 og hinn hóp­ur­inn má ekki losa um bréfin fyrr en þremur mán­uðum eftir að bréfin eru tekin til við­skipta í Kaup­höll­inni. „Þeir sem gagn­rýna mik­inn hagnað af þess­ari fjár­fest­ingu horfa fram hjá því að ekki er um inn­leystan hagnað að ræða og ómögu­legt að sjá fyrir hvert hluta­bréfa­verðið verður í upp­hafi árs 2017. Að auki má nefna að fyrr­nefndir kaup­enda­hópar höfðu aðgang að tak­mark­aðri upp­lýs­ingum en kaup­end­urnir í hinu almenna útboði, þar sem skrán­ing­ar­lýs­ing lá ekki fyrir. Því er eðli­legt að þeim bjóð­ist bréfin á lægra verði til að end­ur­spegla aukna áhættu,“ segir Halldór Bjarkar. Að sögn hans var mark­mið Arion banka að hámarka sölu­and­virði hlut­ar­ins og tryggja far­sæla skrán­ingu félags­ins. Taldi bank­inn það góða leið að minnka eign­ar­hlut sinn í aðdrag­anda útboðs og skrán­ingar.


„Það var mat Arion banka að það myndi styrkja hluta­fjár­út­boðið og Símann til fram­tíðar að fá að félag­inu hóp alþjóð­legra fjár­festa með reynslu af fjár­fest­ingum og fjar­skiptum í fjölda landa. Þessi hópur er því ekki ein­ungis að koma með fjár­magn í félagið heldur einnig dýr­mæta þekk­ingu og reynslu á sviði fjar­skipta sem mun von­andi nýt­ast félag­inu og hlut­höfum þess til fram­tíðar. Í því sam­hengi er rétt að halda því til haga að bank­inn kom ekki að því að setja saman þennan fjár­festa­hóp, en gerði þó kröfu um að hóp­ur­inn byggi yfir alþjóð­legri reynslu og tengslum. Stjórn­endur Símans settu fjár­festa­hóp­inn saman,“ segir í grein­inni og tekur Halldór Bjarkar fram að salan til hóps­ins hafi staðið yfir allt frá snemma árs 2015 og að verð hafi verið ákveðið snemma. Ýmis tækni­leg vanda­mál hafi hins vegar frestað því að gengið var frá við­skiptum en fjár­festar frá fimm löndum eru í hópnum.

Auðvelt að gagnrýna bankann

Í lok grein­ar­innar segir Halldór Bjarkar að nú þegar sölu­ferl­inu sé nán­ast lokið og allar upp­lýs­ingar liggi fyrir þá sé auð­velt að gagn­rýna bank­ann fyrir það að selja hluti á gengi sem var lægra en útboðs­gengið. Þær upp­lýs­ingar hafi aftur á móti ekki legið fyrir í upp­hafi ferl­is­ins auk þess sem sam­an­burð­ur­inn taki ekki til skil­mála þeirrar sölu hvað varðar sölu­bann.


„Það er alls­endis óvíst hvaða áhrif það hefði haft á nið­ur­stöðu útboðs­ins ef fram­boð hefði verið meira eða ef Arion banki hefði ætlað að eiga fleiri bréf að útboði loknu. Hér nægir að horfa á reynslu fyrri útboða til að sjá að það er ekki sjálf­gefið að útboðs­gengið endi í efri mörkum verð­bils. Full­yrð­ingar sem hafa heyrst um ofur­gróða þeirra sem fjár­festu í hluta­bréfum Símans með sölu­banni til byrjun árs 2017 eru því ekki á rökum reistar og bíða þarf til árs­ins 2017, þegar sölu­hömlum verður aflétt, til að sjá hver loka­nið­ur­staðan verður á þeim við­skiptum. Það er þó vita­skuld von bank­ans að fjár­fest­ingar í Símanum, bæði í útboð­inu og aðdrag­anda þess, reyn­ist far­sælar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár