Ríkisstjórn Biden byrjuð að taka á sig mynd

Valda­skipti á milli rík­is­stjórna í Banda­ríkj­unum hafa loks form­lega haf­ist eftir að Joe Biden var lýstur sig­ur­veg­ari for­seta­kosn­ing­anna af hinu opin­bera í gær. Nú hafa til­nefn­ingar borist í rík­is­stjórn Biden og leyn­ast þar nokkur kunn­ug­leg and­lit.

Janet Yellen, tilnefndur fjármálaráðherra Bandaríkjanna
Janet Yellen, til­nefndur fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna Mynd: EPA

Joe Biden, nýkjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna, hefur til­nefnt Janet Yellen, fyrrum seðla­banka­stjóra Banda­ríkj­anna, sem fjár­mála­ráð­herra og John Kerry, fyrrum utan­rík­is­ráð­herra, sem sér­stakan sendi­herra lofts­lags­mála. Til­nefn­ing­arnar voru form­lega kynntar á blaða­manna­fundi fyrr í dag, en fjöl­miðlar vest­an­hafs stað­festu þær í gær.

Ferlið formlega hafið

Rúmum tveimur vikum eftir að helstu fjöl­miðlar í Banda­ríkj­unum lýstu Joe Biden sig­ur­veg­ara for­seta­kosn­ing­anna þar í landi geta valda­skiptin form­lega haf­ist eftir að Stoð­þjón­usta Banda­ríkj­anna (e. General Services Administration) við­ur­kenndi úrslitin síð­ast­lið­inn mánu­dag.

Yfir­lýs­ing Stoð­þjón­ust­unnar er seinni á ferð­inni en vana­lega, en sein­kun­ina má rekja til tregðu frá­far­andi Banda­ríkja­for­seta, Donald Trump, við að við­ur­kenna kosn­inga­úr­slitin. Trump hefur efnt til fjölda mál­sókna vegna meintra kosn­inga­svika í mörgum ríkjum Banda­ríkj­anna og kraf­ist end­ur­taln­ingar á atkvæð­unum. Enn hafa mál­sókn­irnar og end­ur­taln­ing­arnar ekki breytt úrslit­unum að neinu ráði.

Samkvæmt frétt New York Times um málið lýsti Emily W. Murphy, for­stjóri Stoð­þjón­ust­unnar, yfir sigri Biden á mánu­dag­inn eftir að þing­menn úr röðum repúblik­ana og áhrifa­fólk í við­skipta­líf­inu höfðu for­dæmt seina­gang­inn í að hefja form­leg valda­skipti. Sjálfur hefur Biden og helstu aðstoð­ar­menn hans hans haldið því fram að þessi seinkun ógni þjóðar­ör­yggi Banda­ríkj­anna og getu nýju rík­is­stjórn­ar­innar til að bregð­ast við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Þrátt fyrir að hafa ekki enn við­ur­kennt ósigur í kosn­ing­unum lagði Trump þó blessun sína yfir ákvörðun Murphy í Twitter-færslu sem birt­ist í gær­kvöldi og sjá má hér að neðan. Í henni lof­samar frá­far­andi for­set­inn störf hennar hjá Stoð­þjón­ust­unni og segir bar­áttu sinni hvergi nær lokið.

Starfs­hópur undir Biden sem sér um valda­skiptin fagn­aði svo ákvörðun Murphy í frétta­til­kynn­ingu sem send var út í gær­kvöldi, en sam­kvæmt henni var ákvörð­unin „nauð­syn­legt skref til að byrja að takast á við áskor­an­irnar sem þjóðin okkar stendur fyrir, að ná stjórn á far­aldr­inum og koma hag­kerf­inu aftur á rétta braut“.

Janet Yellen sem fjármálaráðherra

Sem liður í valda­skipt­unum hefur starfs­hópur Joe Biden stað­fest til­nefn­ingar til ráð­herra í verð­andi rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna. Sem fjár­mála­ráð­herra ætlar Biden að til­nefna Janet Yellen, fyrrum aðal­hag­fræð­ing seðla­banka Banda­ríkj­anna, seðla­banka­stjóra og aðal­hag­fræð­ing fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Yellen er sér­fræð­ingur í vinnu­mark­aðs­hag­fræði, en hún hefur kennt við háskól­ana Berkeley, Harvard og London School of Economics. Hún var seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna á árunum 2014 til 2018 og sá þar um að vinda ofan af umfangs­mik­illi pen­inga­prentun sem bank­inn hafði ráð­ist í í kjöl­far efna­hag­skrepp­unnar árið 2008. Yellen, sem er 74 ára, var fyrsta konan til að gegna stöðu seðla­banka­stjóra, en ef öld­unga­deild Banda­ríkja­þings stað­festir til­nefn­ingu Biden mun hún einnig verða fyrsti kven­kyns fjár­mála­ráð­herra lands­ins í 231 árs sögu emb­ætt­is­ins.

John Kerry sem sendiherra loftslagsmála

Fjöl­miðlar vest­an­hafs hafa einnig stað­fest að Biden muni til­nefna John Kerry, fyrrum for­seta­fram­bjóð­anda og utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sem sér­stakan sendi­herra lofts­lags­mála.

Kerry, sem er 76 ára, var mót­fram­bjóð­andi George Bush yngri í for­seta­kosn­ing­unum árið 2004 og tap­aði þar með 251 kjör­manni gegn 286. Hann gegndi svo emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Baracks Obama á seinna kjör­tíma­bili hans árin 2013-2017. Sem utan­rík­is­ráð­herra skrif­aði hann undir Par­ís­ar­sátt­mál­ann fyrir hönd Banda­ríkj­anna árið 2016.

Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum for­seti Íslands fagn­aði til­nefn­ingu Kerrys með Twitter-færslu í gær, sem sjá má hér að neðan. Í færsl­unni, sem skrifuð er á ensku, kallar Ólafur til­nefn­ing­una sögu­lega, auk þess sem hann deilir mynd­bandi af ræðu Kerry á ráð­stefnu Hring­borðs Norð­ur­slóða í fyrra.

Fimm aðrir staðfestir

Til við­bótar við Yellen og Kerry hafa fjöl­miðlar stað­fest fimm aðra kandídata í verð­andi rík­is­stjórn Bidens. Alej­andro Mayorkas, sem var aðstoð­ar­for­stjóri inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á tíma­bil­inu 2013-2016, verður til­nefndur sem inn­an­rík­is­ráð­herra, en hann yrði fyrsti Banda­ríkja­mað­ur­inn af rómönskum upp­runa sem hefði umsjón yfir mál­efnum inn­flytj­enda þar í landi.

Sem utan­rík­is­ráð­herra hyggst Biden til­nefna Antony J. Blinken, en sam­kvæmt breska blað­inu The Guardian er hann um margt frá­brugð­inn frá­far­andi utan­rík­is­ráð­herra, Mike Pompeo. Blinken, sem ólst að hluta til upp í Frakk­landi, hefur verið yfir­lýstur stuðn­ings­maður auk­innar sam­vinnu Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­landa.

Þar að auki mun Biden til­nefna Avril D. Haines sem yfir­mann grein­ing­ar­deildar banda­rískra stjórn­valda (e. Director of National Intelligence) og yrði hún fyrst kvenna til að gegna því hlut­verki. Einnig er búist við því að fyrrum þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Bidens þegar hann gegndi emb­ætti vara­for­seta, Jake Sullivan, verði til­nefndur þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi, auk þess sem Linda Thomas-Greenfield verði til­nefnd sem sendi­herra Banda­ríkj­anna við Sam­ein­uðu þjóð­irnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár