Bændasamtök telja tillögur ráðherra ekki leysa vanda sinn að fullu

Bænda­sam­tök Íslands og Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda segir að hætta sé á að þær aðgerðir sem land­bún­að­ar­ráð­herra kynnti í morgun, og kosta 650 millj­ónir króna, séu ekki nægar og verði aðeins til að draga slæmt ástand á lang­inn.

Tillögur ráðherra gera ráð fyrir að fé verði fækkað um 20 prósent. Áætlað er að um 450 þúsund kindur séu í landinu.
Tillögur ráð­herra gera ráð fyrir að fé verði fækkað um 20 pró­sent. Áætlað er að um 450 þús­und kindur séu í land­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bænda­sam­tök Íslands og Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda segja til­lögur stjórn­valda vegna erf­ið­leika sauð­fjár­bænda, sem kynntar voru opin­ber­lega í dag, séu á ábyrgð Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Ekki sé um að ræða sam­komu­lag stjórn­valda við bændur og sam­tökin telja þær ekki leysa vanda sauð­fjár­bænda að fullu þó þær séu í rétta átt. „Bændur hafa lagt fram til­lögur til stjórn­valda sem miða að því að taka heild­stætt á þeim vanda sem við blasir. Lyk­il­at­riði í þeim lausnum er að virkja tíma­bundnar aðgerðir til sveiflu­jöfn­unar, svo sem að gera afurða­stöðvum kleift að taka sam­eig­in­lega ábyrgð á útflutn­ingi kinda­kjöts. Þær hug­myndir hafa ekki fengið braut­ar­gengi og staðan því óbreytt. Hættan er sú að þær aðgerðir sem land­bún­að­ar­ráð­herra nú leggur til séu ekki nægar og verði aðeins til þess að draga ástandið á lang­inn. “ Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sem sam­tökin hafa sent frá sér.

[links]Þar segir einnig að sam­komu­lag sé um að flýta end­ur­skoðun sauð­fjár­hluta búvöru­samn­inga og að stefnt sé að því að nið­ur­staða hennar liggi fyrir 1. apríl á næsta ári. „Í þeirri vinnu þarf að ræða áfram þau mál sem ekki eru leyst og eins meta árangur af þeim aðgerðum sem ráð­ist verður í núna.“

Kjarninn greindi frá því í morgun að til­lögur stjórn­valda vegna yfir­stand­andi erf­ið­leika í sauð­fjár­rækt muni kosta rík­is­sjóð um 650 millj­ónir króna, komi þær til fram­kvæmda. Sam­kvæmt þeim verður gripið til umfangs­mik­illa aðgerða til að draga úr fram­leiðslu kinda­kjöts og fækka um leið fé um 20 pró­sent. Þeir bændur sem hætta sauð­fjár­fram­leiðslu munu geta haldið 90 pró­sent af greiðslum sam­kvæmt sauð­fjár­samn­ingi í fimm ár og gripið verður til sér­tækra aðgerða til að draga úr yfir­vof­andi kjara­skerð­ingu bænda.

Á móti verður þess kraf­ist að búvöru­samn­ingur sauð­fjár­bænda, sem var und­ir­rit­aður í fyrra og gildir til tíu ára, verði end­ur­skoð­að­ur. 

[adspot]Þau útgjöld sem sam­þykkt hefur verið að ráð­ast í verða þó ekki nálægt þeim 1,9 millj­­arði króna sem Lands­­sam­tök sauð­fjár­­bænda hafa sagt að þurfti til að bæta sauð­fjár­­bændum upp tap þeirra vegna fram­­leiðslu árs­ins 2017. Ekk­ert er um end­ur­upp­töku útflutn­ings­skyldu í til­lög­un­um, en háværar kröfur hafa verið um að slík verði tekin aftur upp. Útflutn­ings­skyldan var aflögð 2009 eftir að ríkið keypti hana af bænd­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár