Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar hætt störfum

Karen Kjart­ans­dóttir segir að hún og for­maður fram­kvæmd­ar­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar hafi haft ólíkar hug­myndir um sam­starf sitt. Hún hefur því sagt upp sem fram­kvæmda­stjóri flokks­ins.

Karen Kjartansdóttir.
Karen Kjart­ans­dóttir. Mynd: Hringbraut

Karen Kjart­ans­dóttir, sem hefur verið fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar í tvö og hálft ár, hefur hætt störfum hjá flokknum. Upp­sögnin á sér stað þegar innan við hálft ár er til næstu þing­is­kosn­ingar, sem fara fram 25, sept­em­ber næst­kom­andi.

Í stöðu­upp­færslu sem Karen birti á Facebook-síðu á vegum Sam­fylk­ing­ar­innar segir: „Á síðasta lands­fundi kusu flokks­menn nýjan for­mann fram­kvæmda­stjórnar, það liggur í eðli starf­sem­innar að fram­kvæmd­ar­stjóri og for­maður fram­kvæmda­stjórnar þurfi að eiga mjög náið sam­starf. Fljótlega kom í ljós að hug­myndir okkar um sam­starfið væru of ólíkar til að það gæti gengið. Ég tel því far­sæl­ast fyrir Sam­fylk­ing­una að leiðir skilji á þessum tímamótum og áður en kosn­inga­barátta hefst af fullum krafti.“

Vísir.is greindi fyrst frá.

Sá sem ágrein­ingur Karenar er við er Kjartan Val­garðs­son. Hann var kjör­inn for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar í nóv­em­ber í fyrra en hefur starfað innan flokks­ins frá stofnun í ýmsum trún­að­ar­störfum.

[adspot]Karen var ráðin fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar í sept­em­ber 2018. Þar áður hafði hún síð­ast gengt stöðu upp­lýs­inga­full­trúa United Silicon og starfað sem upp­lýs­inga­full­trúi Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Karen starf­aði einnig lengi sem blaða- og frétta­maður.

Staða fram­kvæmda­stjóra flokks­ins hafði verið laus frá kosn­ing­unum 2016, þegar fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Kristján Guy Burgess sagði starfi sín lausu eftir lélega útkomu flokks­ins í þing­is­kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár