Forysta stjórnarandstöðunnar ræðir vantrauststillögu á morgun

Forysta stjórn­ar­an­stöð­unnar fundar um stöðu for­sæt­is­ráð­herra og mögu­lega van­traust­s­til­lögu. Formaður BF segir stöð­una for­dæma­lausa. Píratar eru ekki til­búnir í kosn­ingar 2016 en for­mað­ur­inn segir að stundum þurfi að hugsa stærra en um sjálfan sig.

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna, ásamt þingflokksformönnum, ætla að stilla saman strengi sína á morgun og ræða möguleikann á vantrauststillögu á Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Formenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, ásamt þing­flokks­for­mönnum, ætla að stilla saman strengi sína á morgun og ræða mögu­leik­ann á van­traust­s­til­lögu á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra.

Formenn og þing­flokks­for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna ætla að funda klukkan 14 á morgun og ræða mögu­lega van­traust­s­til­lögu á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og stöðu hans gagn­vart þing­inu vegna Wintris-máls­ins.

For­menn­irnir, þau Árni Páll Árnason Sam­fylk­ingu, Birgitta Jóns­dóttir Pírötum, Katrín Jak­obs­dóttir, Vinstri grænum, og Óttarr Proppé, Bjartri fram­tíð, segj­ast í sam­tali við Kjarnann ætla að stilla saman strengi sína og ræða næstu skref í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin með for­sæt­is­rað­herra.

Fordæmalaust ástand

Óttarr segir ástandið sem upp er komið vera algjör­lega for­dæma­laust.

„Ég hall­ast frekar að því að það sé til­efni til van­trausts,” segir hann. „Síðan hefur for­sæt­is­ráð­herra sjálfur kallað eftir því, sem er svo­lítið óvenju­legt, en sýnir að minnsta kosti að fólk er að velta þessu fyrir sér alls staðar.”

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir að nauð­syn­legt sé að stilla saman strengi sína áður en þing komi saman á mánu­dag.

„Það hefur bæði verið umræða um van­traust­s­til­lögu og líka hvaða upp­lýs­ingar við viljum fá fram á þing­inu um þetta mál,” segir hún. „Trú­verð­ug­leiki for­sæt­is­ráð­herra hefur skað­ast mjög mikið og þau svör sem hann hefur gefið hingað til eru ekki full­nægj­andi. Hann kaus að upp­lýsa þingið ekki um málið og það verður að ræða.”

„Stundum verður maður að hugsa stærra"

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, segir að aðal umræðu­efnið á fund­inum á morgun verði Sig­mundur Davíð og hans við­brögð. Píratar hafi mik­inn áhuga á að leggja fram van­traust­s­til­lögu.

„Þetta mál er allt mjög sér­stakt. Færsla eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra á Facebook, sem talar um Gróu á leiti, sem kemur svo í ljós að eru rann­sókn­ar­blaða­menn. Og svo að Sig­mundur neiti að tala við RÚV og tali við Útvarp Sögu í stað­inn. Þetta er allt svo ótrú­legt.”

Varðandi mögu­leika á kosn­ingum á þessu ári segir Birgitta að það væri í raun ekki það ákjós­an­leg­asta fyrir Pírata.

„Við erum ekki undir það búin. En stundum verður maður að hugsa stærra en um sjálfan sig.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár