Einstaklingar sem eru til rannsóknar skuli stíga til hliðar

Stjórn KSÍ hefur sam­þykkt að ef mál ein­stak­lings er til með­ferðar hjá rann­sóknar- eða ákæru­valdi skuli hann stíga til hliðar hjá KSÍ á meðan með­ferð máls stendur yfir. Aron Einar Gunn­ars­son kemur því ekki til greina í lands­liðs­hóp­inn á næst­unni.

Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir for­maður KSÍ Mynd: KSÍ

Stjórn KSÍ hefur sam­þykkt að haft sé að leið­ar­ljósi það meg­in­við­mið, þegar mál ein­stak­linga eru til með­ferðar hjá rann­sóknar- eða ákæru­valdi og/eða sam­skipta­ráð­gjafa vegna meintra alvar­legra brota, að þá skuli við­kom­andi stíga til hliðar í hlut­verki sínu hjá KSÍ á meðan með­ferð máls stendur yfir. Það gildir jafnt um dóm­ara, þjálf­ara, leik­menn, for­ystu­menn, starfs­menn og aðra þá sem eru innan KSÍ.

Þetta kemur fram á vef KSÍ í dag.

Þar segir að á fundi stjórnar KSÍ þann 19. maí síð­ast­lið­inn hafi verið rætt um skýrslu starfs­hóps KSÍ og við­brögð KSÍ. Einnig hafi verið rætt um skýrslu starfs­hóps ÍSÍ um verk­ferla, vinnu­brögð og við­mið í íþrótta­hreyf­ing­unni.

Málið var rætt á fund­inum en frek­ari umræðu var frestað til fram­halds­fundar stjórnar 23. maí en á þeim fundi var álykt­unin sam­þykkt og tekur hún strax gildi

„Stjórn KSÍ mun ræða önnur atriði í drög­unum áfram og mun jafn­framt óska eftir aðkomu laga- og leik­reglna­nefndar. Stjórn KSÍ leggur mikla áherslu á að vandað sé til verka og að málið sé áfram unnið af ábyrgð, fag­mennsku og yfir­vegun,“ segir á vef sam­bands­ins.

„Ég sem þjálfari vinn bara undir þessum verkreglum“

Arnar Þór Við­ars­son þjálf­ari karla­lands­liðs Íslands í knatt­spyrnu til­kynnti fyrr í dag leik­manna­hóp­inn fyr­ir þrjá leiki gegn Ísra­el og Alban­íu og vin­áttu­lands­leik gegn San Marínó sem fram fara 2. til 13. júní næst­kom­andi.

Hann segir í sam­tali við fot­bolti.net að það hafi verið léttir að fá ramma frá stjórn­inni til að fara eftir við ákvörðun um það hverjir væru í lið­inu.

„Það hefur ekki verið skemmti­legt að þurfa sigla fram­hjá ákveðnum hlutum. Aron Einar fellur enn undir þess­ari ákvörðun stjórnar. Ég sem þjálf­ari vinn bara undir þessum verk­reglum," bætti Arnar við í sam­tali við fot­bolta.net.

Kærir niður­fell­ingu héraðssak­sókn­ara

Hér­aðs­sak­sókn­ari lét mál Arons Ein­ars Gunn­ars­sonar og Eggerts Gunnþórs Jóns­sonar, þar sem sem þeir voru sak­aðir um hópnauðgun árið 2010, niður falla fyrr í mán­uð­inum en málið var umtalað í fjöl­miðlum á sínum tíma.

Kon­an sem kærði knatt­spyrnu­menn­ina tvo fyr­ir hópnauðgun síð­ast­liðið haust hef­ur aftur á móti kært niður­fell­ingu hér­aðs­sak­sókn­ara. Þetta stað­festi Ómar Smára­son, yf­ir­maður sam­skipta­deild­ar KSÍ, að lokn­um fjöl­miðla­fundi í höf­uð­stöðvum sam­bands­ins rétt í þessu. Mbl.is greinir frá.

Höfðu upplýsingar um ofbeldi en svöruðu með villandi hætti

Skýrsla nefndar sem Íþrótta­sam­band Íslands (ÍSÍ) skip­aði til að gera úttekt á við­brögðum og máls­­með­­­ferð KSÍ vegna kyn­­ferð­is­of­beld­is­­mála sem tengd­ust leik­­mönnum í lands­liðum Íslands var birt í des­em­ber í fyrra. Þar kom meðal ann­ars fram að KSÍ hefði fengið upp­lýs­ingar um meinta hópnauðgun tveggja lands­liðs­manna fyrir ell­efu árum síðan í byrjun júní á síð­asta ári. Eftir til­kynn­ingu þar um frá starfs­manni sam­bands­ins, tengda­móður þol­and­ans, var meðal ann­ars rætt við annan ger­and­ann. Samt ákvað KSÍ að hlíta ráð­legg­ingu almanna­tengsla­fyr­ir­tækis og svara fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um málið með vill­andi hætt­i.

[links]Að mati nefnd­­ar­innar mátti til sanns vegar færa að yfir­­lýs­ing­­arnar hefðu borið með sér ákveðin merki þögg­un­­ar- og nauðg­un­ar­menn­ing­ar, þar sem því var í reynd hafnað í yfir­­lýs­ing­unum að mál kvenn­anna hefðu komið til vit­undar KSÍ.

Guðni Bergs­­­son sagði í yfir­­­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í kjöl­farið að hann hefði borið ábyrgð á við­brögðum sam­­­bands­ins, vegna þeirra ofbeld­is­­­mála sem komu upp í for­­­mann­s­­­tíð hans. Sömu sögu væri að segja um miðlun upp­­­lýs­inga til fjöl­miðla og almenn­ings. „Þar hefði ég getað gert bet­­­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár