KSÍ hafnar því að taka þátt í að þagga niður ofbeldismál

KSÍ hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem því er hafnað að sam­bandið taki þátt í því að þagga niður ofbeld­is­mál eða hylma yfir með ger­endum. Þar segir jafn­framt að „dylgjum“ um slíkt sé alfarið vísað á bug.

Guðni Bergsson er formaður KSÍ.
Guðni Bergsson er for­maður KSÍ. Mynd: Úr safni

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag, þar sem segir að sam­bandið geri „engar til­raunir til að þagga niður ofbeld­is­mál eða hylma yfir með ger­endum.“ Þar segir jafn­framt að „dylgjum“ um slíkt sé alfarið vísað á bug.

Yfir­lýs­ingin var send á fjöl­miðla undir yfir­skrift­inni „Að gefnu til­efni“ en lítið hefur heyrst úr her­búðum sam­bands­ins í kjöl­far þess að Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, kenn­ari við Borg­ar­holts­skóla og for­kona jafn­réttis­nefndar Kenn­ara­sam­bands Íslands, rit­aði aðsenda grein á Vísi og gagn­rýndi sam­bandið harð­lega.

Þar vís­aði hún til frá­sagnar ungrar konu af kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem hún varð fyrir árið 2010. Ger­end­urnir voru sagðir hafa verið lands­liðs­menn Íslands í fót­bolta. Þetta mál er ótengt máli lands­liðs­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar, sem þessa dag­ana sætir lög­reglu­rann­sókn í Englandi vegna meintra kyn­ferð­is­brota gegn barni.

„Fleiri frá­sagnir eru um lands­liðs­menn sem eru sagðir beita konur ofbeldi – bæði kyn­ferð­is­legu og heim­il­is­of­beldi. Þetta virð­ist ekki hafa haft nein áhrif á vel­gengni þess­ara manna. Þeim er hampað og njóta mik­illa vin­sælda meðal þjóð­ar­innar. Þöggunin er alger, og KSÍ ber vita­skuld ábyrgð á henni,“ sagði meðal ann­ars í grein Hönnu Bjargar, sem vakti mikla athygli.

Segja hvatt til aðkomu lögreglu ef grunur sé um lögbrot

Í yfir­lýs­ing­unni í dag seg­ist KSÍ leggja áherslu á „fag­leg vinnu­brögð“ þegar fram komi „ábend­ingar eða kvart­anir um meint ofbeldi“ sem megi rekja til starf­semi innan hreyf­ing­ar­innar.

[adspot]

KSÍ hafnar því sem áður segir að sam­bandið taki þátt í því að þagga niður mál og vísar ásök­unum um slíkt á bug sem dylgjum.

„Ef grunur er um lög­brot er ávallt hvatt til aðkomu lög­reglu­yf­ir­valda og eins er leitað aðstoðar hjá Sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­mála, sem er sér­fræð­ingur rík­is­ins í með­ferð slíkra mála,“ segir í yfir­lýs­ingu sam­bands­ins, sem seg­ist ekki geta tjáð sig um ein­stök mál „sem upp kunna að koma á opin­berum vett­vangi vegna trún­aðar og per­sónu­vernd­ar­mála.“

KSÍ seg­ist „ávallt til­búið til að gera betur“ og að það víki sé er ekki undan „mál­efna­legri gagn­rýni á starf sam­bands­ins.“

„Því er sam­talið um ofbeld­is­mál mik­il­vægt og ábend­ingum sem eru til þess fallnar að bæta hag iðk­enda og áhuga­fólks um knatt­spyrnu vel tekið.“

Yfirlýsing KSÍ í heild sinni

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) leggur áherslu á fag­leg vinnu­brögð þegar fram koma ábend­ingar eða kvart­anir um meint ofbeldi sem með einum eða öðrum hætti má rekja til starf­semi innan hreyf­ing­ar­innar. Knatt­spyrnu­hreyf­ingin á Íslandi er fjöl­menn og eru skráðir iðk­endur um 30 þús­und. KSÍ hefur ríka hags­muni af því að sá mikli fjöldi sem starfar eða tekur þátt í starf­semi knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar hér á landi upp­lifi öryggi og vel­ferð í starfi sínu eða þátt­töku og sam­bandið tekur skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi.

Ef til­kynn­ingar um mál sem tengj­ast ein­elti eða ofbeldi (m.a. kyn­ferð­is­of­beldi) koma inn á borð sam­bands­ins er tryggt að þau fari í við­eig­andi ferli. Allir verk­ferlar slíkra mála hafa verið end­ur­bættir og hafði fyrsta bylgja #Metoo m.a. áhrif þar á. Jafn­rétt­is­á­ætlun og jafn­rétt­is­stefna sam­bands­ins hafa verið upp­færðar og er þar fjallað sér­stak­lega um kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Þá hefur KSÍ staðið fyrir vinnu­stofu um kyn­ferð­is­of­beldi fyrir aðild­ar­fé­lög sín og bætt fræðslu um kyn­ferð­is­of­beldi inn í náms­efni þjálf­ara­mennt­unar.

Eins og gefur að skilja eru mál sem varða kyn­ferð­is­of­beldi vand­með­farin og kallar með­ferð þeirra á fag­leg, vönduð og ekki síður yfir­veguð vinnu­brögð. Ef grunur er um lög­brot er ávallt hvatt til aðkomu lög­reglu­yf­ir­valda og eins er leitað aðstoðar hjá Sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­mála, sem er sér­fræð­ingur rík­is­ins í með­ferð slíkra mála.

KSÍ getur ekki tjáð sig um ein­stök mál sem upp kunna að koma á opin­berum vett­vangi vegna trún­aðar og per­sónu­vernd­ar­mála. Rétt er þó að ítreka að KSÍ gerir engar til­raunir til að þagga niður ofbeld­is­mál eða hylma yfir með ger­endum. Dylgjum um slíkt er alfarið vísað á bug.

KSÍ er ávallt til­búið til að gera betur og víkur sér ekki undan mál­efna­legri gagn­rýni á starf sam­bands­ins. Því er sam­talið um ofbeld­is­mál mik­il­vægt og ábend­ingum sem eru til þess fallnar að bæta hag iðk­enda og áhuga­fólks um knatt­spyrnu vel tekið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár