Gögnin ekki opinberuð fyrr en eftir helgi

Dóms­mála­ráðu­neytið ætlar ekki að birta gögn um fram­kvæmd upp­reist æru fyrr en eftir helgi. Til stóð að birta gögnin í gær.

Innanríkisráðuneytinu var skipt upp í dómsmálaráðuneyti og samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneyti á þessu ári.
Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu var skipt upp í dóms­mála­ráðu­neyti og sam­göngu- og sveit­ar­stjórna­ráðu­neyti á þessu ári. Mynd: Birgir Þór

Gögnin er varða upp­reist æru sem dóms­mála­ráðu­neyt­inu hefur verið gert að veita fjöl­miðlum aðgang að verða ekki opin­beruð fyrr en eftir helgi, að því er Frétta­blaðið hefur eftir ráðu­neyt­is­starfs­mönnum.

Blaða­menn hafa óskað eftir aðgangi að máls­gögn­unum í málum þeirra ein­stak­linga sem stjórn­völd hafa veitt upp­reist æru en ráðu­neytið hefur ekki viljað gera það á grund­velli per­sónu­verndar. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál kvað upp úrskurð sinn í vik­unni þar sem dóms­mála­ráðu­neyt­inu er gert að afhenda gögnin.

[adspot]

Aðeins hafa gögnin í máli Roberts Downey verið opin­beruð. Alls eru gögn í málum 32 ein­stak­linga sem ráðu­neytið þarf að afhenda. Fjórtán ein­stak­lingar hafi fengið upp­reist æru á grund­velli und­an­þágu­heim­ildar í hegn­ing­ar­lögum en hinir átján hafi farið leið meg­in­regl­unnar. Robert Downey er einn þeirra fjórtán sem veitt var upp­reist æru með vísan til hegn­ing­ar­laga.

Fyrri part dags í gær var stefnt að því að afhenda gögnin fyrir hádegið, en þegar leið á dag­inn „var komið annað hljóð í strokk­inn“, að sögn Frétta­blaðs­ins og þá stefnt að því að birta gögnin eftir helg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár