Ríkisstjórnin leggur fram frumvarp sem heimilar innheimtu veggjalda

Búið er að leggja fram frum­varp sem hefur það mark­mið að auka veru­lega fjár­magn til vega­fram­kvæmda, sem áætlað er að geti skapað allt að fjögur þús­und störf. Um er að ræða sam­vinnu­verk­efni ríkis og einka­að­ila sem fjár­mögnuð verða með veggjöldum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp sem heim­ilar Vega­gerð­inni að gera samn­ing við einka­að­ila um sam­vinnu­verk­efni um ákveðnar sam­göngu­fram­kvæmdir. Þær fram­kvæmdir sem um ræðir eru Sunda­braut, tvö­földun Hval­fjarð­ar­ganga, Axar­vegur og fram­væmdir við hring­veg­inn á nokkrum stöðum. Þeir eru norð­austan við Selfoss og brú á Ölfusá, um Horn­ar­fjarð­ar­fljót, um Mýrdal og jarð­göng í Reyn­is­fjalli.

Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að mark­mið lag­anna sé að auka veru­lega fjár­magn til vega­fram­kvæmda og mæta mik­illi þörf fyrir fjár­fest­ingar í sam­göngum, bæta umferð­ar­ör­yggi og stytta og bæta veg­teng­ingar milli byggða. „Áætlað er að sam­vinnu­verk­efnin geti skapað allt að 4.000 árs­verk. Und­ir­bún­ingur frum­varps­ins hefur staðið lengi og er í sam­ræmi við til­lögu að sam­göngu­á­ætlun fyrir tíma­bilið 2020-2034.“

Heimila að leggja á veggjöld

Lyk­il­at­riði í frum­varp­inu er að sam­kvæmt því verður heim­ilt að fjár­magna sam­vinnu­verk­efni að hluta eða öllu leyti með gjald­töku af umferð um mann­virki sem sam­vinnu­verk­efnið nær til. „Veggjöld geta í heild eða að hluta staðið straum af bygg­ing­ar­kostn­aði, við­haldi, rekstri, þróun og eðli­legum afrakstri af fjár­fest­ingu mann­virkis. Gjald­taka vegna notk­unar til­tek­ins mann­virkis skal ekki hefj­ast fyrr en fram­kvæmd lýkur og opnað er fyrir almenna umferð. Gjald­taka fyrir hvert mann­virki skal ekki standa lengur en í 30 ár.“

[adspot]Þá verður Vega­gerð­inni heim­ilt að fela einka­að­ilum með samn­ingi um sam­vinnu­verk­efni að taka gjald af umferð á samn­ings­tím­anum og að stofna sér­stakt félag, eða fela sér­stöku félagi í eigu rík­is­ins, það hlut­verk að sjá um gjald­töku, eftir atvikum sam­hliða því að ann­ast ein­staka þætti sam­vinnu­verk­efnis.

Ráðherra segir ávinning vera margvíslegan

Sigurður Ingi segir að það sé ljóst að jafn umfangs­miklar fram­kvæmdir, eins og sam­vinnu­verk­efnin boða, skapi mik­inn fjölda árs­verka, bæði hjá verk­tökum en ekki síður hjá ráð­gjöfum og hönn­uðum. „Áætla má að í heild verði til á bil­inu 3.000-4.000 árs­verk. Þau mynda einnig sterkan hvata til nýsköp­unar sem getur lækkað kostnað og stytt fram­kvæmda­tíma.“

Hann segir að öll verk­efnin feli í sér stytt­ingu vega ásamt því að stuðla að bættu umferð­ar­ör­yggi. Veg­a­stytt­ing minnki ferða­tíma fólks, dragi úr flutn­ings­kostn­aði fyrir fyr­ir­tæki og minnki losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og ann­arrar umferð­ar­tengdrar meng­unar.

„Sam­vinnu­verk­efnin bæt­ast við allar vega­fram­kvæmdir sem fjár­magn­aðar eru með hefð­bundnum hætti á fjár­lögum en í nýj­ustu sam­göngu­á­ætlun voru fram­lög aukin um fjóra millj­arða á ári næstu fimm árin miðað við fyrri áætl­anir,“ segir Sigurður Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár