Íslenskir húseigendur borga mest allra í Evrópu

Þrátt fyrir lágt verð á hita og raf­magni var hús­næð­is­kostn­aður þeirra sem búa í eigin hús­næði mestur allra Evr­ópu­landa hér­lendis árið 2018. Hús­næð­is­kostn­aður leigj­enda hér­lendis er hins vegar minna íþyngj­andi heldur en í flestum öðrum Evr­ópu­löndum.

Evr­ópskir hús­eig­endur borg­uðu hvergi jafn­mikið fyrir að búa í eigin hús­næði heldur en á Íslandi árið 2018. Þetta kemur fram í tölum frá hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, en bent var á þær í nýj­ustu Kjara­f­réttum stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar, sem kom út í gær.

Fjármagnskostnaður meginástæðan

Samkvæmt Eflingu er það einkum fjár­magns­kostn­aður við að eign­ast íbúð­ar­hús­næði sem skapar þessa óvenju óhag­stæðu útkomu fyrir Ísland. Aðrar mæl­ingar Eurostat benda í sömu átt, en í fáum öðrum Evr­ópu­löndum fer jafn­stór hluti af neyslu­út­gjöldum í hús­næð­is­kaup.

Á hinn bóg­inn borga Íslend­ingar að jafn­aði helm­ingi minna en hinn almenni íbúi Evr­ópu­sam­bands­ins í raf­magn og hita. Einungis tvö pró­sent af heild­ar­út­gjöldum heim­il­anna fóru í þann mála­flokk hér­lendis árið 2019, en sam­svar­andi hlut­fall á hinum Norð­ur­lönd­unum var á milli fjórum og fimm pró­sentum.

Leigjendur hlutfallslega betur settir

Hús­næð­is­kostn­aður hjá leigj­endum er aftur á móti mun minna íþyngj­andi hér­lendis heldur en í flestum öðrum Evr­ópu­löndum. Alls þurftu 17,5 pró­sent leigj­enda á Íslandi að greiða meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum í leigu, sam­an­borið við fjórð­ung allra leigj­enda í Evr­ópu­sam­band­inu.

Hlut­falls­lega góð staða leigj­enda nær að bæta upp fyrir mik­inn hús­næð­is­kostnað hús­eig­enda, en heild­ar­kostn­að­ur­inn vegna hús­næðis er svip­aður byrði á neyt­endur hér­lendis og í Evr­ópu­sam­band­inu. Alls fóru að með­al­tali 27 pró­sent útgjalda heim­ila í hús­næði, hita og raf­magn hér­lendis árið 2020, en sam­svar­andi hlut­fall í öllu Evr­ópu­sam­band­inu nam 26 pró­sentum. Kostn­að­ar­lið­ur­inn var meðal ann­ars meira íþyngj­andi í Svíþjóð, Danmörku og Finn­landi.

Hvergi jafnmikil aukning og hérlendis

Í tölum Eurostat má einnig finna sam­an­burð á húnsæðis­kostn­aði þeirra sem búa í eigin hús­næði á síð­ustu árum. Á árunum 2015-2020 jókst kostn­að­ur­inn um 73 pró­sent, en það var lang­mesta kostn­að­ar­aukn­ingin í allri Evrópu. Næst­mesta aukn­ingin á tíma­bil­inu var í Ung­verja­landi, en þar jókst hús­næð­is­kostn­aður hús­eig­enda um 38 pró­sent.

Á sama tíma jókst kostn­aður þeirra sem búa í eigin hús­næði um fjórð­ung í Svíþjóð og fimmt­ung í Noregi. Í Danmörku og Finn­landi jókst hann hins vegar um minna en tíu pró­sent á þessum fimm árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár