Unnið að því að leggja niður Neytendastofu

Stjórn­völd sjá fyrir sér að hugs­an­lega verði hægt að færa öll verk­efni frá Neyt­enda­stofu á næsta ári og leggja stofn­un­ina niður, með mögu­legum sparn­aði fyrir rík­is­sjóð. Stofn­unin tók til starfa árið 2005 og fær tæpar 240 millj­ónir úr rík­is­sjóði í ár.

Neytendastofa er með aðsetur í Borgartúni.
Neyt­enda­stofa er með aðsetur í Borg­ar­túni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn­völd sjá fyrir sér að hugs­an­lega verði hægt að færa öll verk­efni Neyt­enda­stofu til ann­arra stofn­ana á næsta ári og leggja Neyt­enda­stofu niður í kjöl­farið, með mögu­legum sparn­aði fyrir rík­is­sjóð, sam­kvæmt því sem fram kemur í drögum að nýju stjórn­ar­frum­varpi sem birt voru í dag á sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Í því stjórn­ar­frum­varpi eru gerðar til­lögur um að breyta lögum þannig að stjórn­sýslu­verk­efni á sviði vöru­ör­ygg­is­mála, opin­berrar mark­aðs­gæslu og mælifræði verði færð til Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar og stjórn­sýslu­verk­efni á sviði raf­rænnar auð­kenn­ingar og traust­þjón­ustu verði færð til Póst- og fjar­skipta­stofn­unar.

Samkvæmt frum­varp­inu mun Neyt­enda­stofa starfa enn um sinn í breyttri mynd ef það verður að lögum og muni þá „nær ein­göngu sinna eft­ir­lits­verk­efnum á sviði neyt­enda­réttar.“ Unnið sé að hugs­an­legri til­færslu þeirra verk­efna til ann­arrar stofn­unar árið 2021 og nið­ur­lagn­ingu Neyt­enda­stofu „með mögu­legum sparn­aði fyrir rík­is­sjóð.“

Hefur starfað frá því árið 2005

Neyt­enda­stofa varð til árið 2005 og tók þá við verk­efnum frá Sam­keppn­is­stofnun og Lög­gild­ing­ar­stofu. Stofn­unin er ein þeirra eft­ir­lits­stofn­ana sem hafa eft­ir­lit með við­skipta­líf­inu og lögum frá Alþingi sem sett eru vegna öryggis og rétt­inda neyt­enda.

Sem dæmi um verk­efni sem stofn­unin sinnir má nefna eft­ir­lit með því hvort þær and­lits­grímur sem til sölu hafa verið hér­lendis síðan far­aldur COVID-19 fór að geisa séu með CE-merk­ingar. Neyt­enda­stofa heyrir undir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti.

Samhliða stofnun Neyt­enda­stofu var emb­ætti tals­manns neyt­enda stofnað, en það sér­staka emb­ætti var lagt niður árið 2013.

237,4 milljónir úr ríkissjóði

Samkvæmt fjár­lögum árs­ins 2020 fær Neyt­enda­stofa 237,4 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og hefur að auki 51,5 millj­ónir króna í sér­tekjur. Samkvæmt frum­varps­drög­unum í sam­ráðs­gátt­inni er ráð­gert er að um 130 milljón króna brúttó­fram­lag fylgi þeim verk­efnum sem flytj­ast frá Neyt­enda­stofu til Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar vegna launa­kostn­aðar, húsa­leigu og ann­ars kostn­aðar. Þar af er gert er ráð fyrir að 51,5 millj­óna króna sér­tekj­urnar flytj­ist með til Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar.

Jafn­framt er gert ráð fyrir að 21 milljón króna fylgi verk­efnum sem flytj­ast frá Neyt­enda­stofu til Póst- og fjar­skipta­stofn­unar, sem verði end­ur­skoðað í lok árs 2021 í sam­ræmi við lög um raf­ræna auð­kenn­ingu og traust­þjón­ustu fyrir raf­ræn við­skipti.

Ýmsar stofnanir hafa eftirlit með neytendatengdum málum

Þrátt fyrir að Neyt­enda­stofa sé eina rík­is­stofn­unin sem hafi orðið neyt­andi í nafni sínu eru fjöl­margar rík­is­stofn­anir sem sjá um eft­ir­lit með neyt­enda­tengdum málum með beinum eða óbeinum hætti.

Má þar til dæmis nefna Fjár­mála­eft­ir­litið, Póst- og fjar­skipta­stofnun og Sam­göngu­stofu. Aðrar almennar eft­ir­lits­stofn­anir, svo sem Lyfja­stofnun, Mat­væla­stofnun og Umhverf­is­stofnun sinna eft­ir­liti með neyt­enda­tengdum vörum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár