Fréttamál

Samherjamálið

Greinar

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.
Skattrannsókn á Samherja snýst um hundruð milljóna króna
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Skatt­rann­sókn á Samherja snýst um hund­ruð millj­óna króna

Skatt­rann­sókn, sem hófst í kjöl­far upp­ljóstrana um starfs­hætti Samherja í Namibíu, hefur staðið frá árs­lokum 2019. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar telja skatta­yf­ir­völd að fyr­ir­tækið hafi komið sér undan því að greiða skatta í stórum stíl; svo nemur hund­ruðum millj­óna króna. Skúffu­fé­lag á Máritíus sem stofnað var fyrir milli­göngu íslensks lög­manns og félag á Marshall-eyjum, sem for­stjóri Samherja þvertók fyrir að til­heyrði Samherja, eru í skot­línu skatts­ins.
Færeyskur ráðherra krafinn svara um Samherjarannsókn
FréttirSamherjaskjölin

Fær­eyskur ráð­herra kraf­inn svara um Sam­herja­rann­sókn

Högni Hoydal, for­maður Þjóð­veld­is­flokks­ins fær­eyska, hefur í fær­eyska þing­inu óskað eftir svörum við því hvað líði rann­sókn lög­reglu á meintum skatta­laga­brotum Samherja í Færeyjum. Samherji end­ur­greiddi 340 millj­ónir króna til fær­eyska Skatts­ins, sem vís­aði mál­inu til lög­reglu. Síðan hefur lítið af því frést.
Félag Samherja sem átti útgerðina í Namibíu seldi kvóta sinn á Íslandi
FréttirSamherjamálið

Félag Samherja sem átti útgerð­ina í Namibíu seldi kvóta sinn á Íslandi

Eign­ar­halds­fé­lagið sem Samherji not­aði til að halda utan um rekstur sinn í Namibíu seldi fisk­veiði­kvóta sinn á Íslandi til íslensks dótt­ur­fé­lags Samherja árið 2020. Þetta fyr­ir­tæki, Sæból fjár­fest­ing­ar­fé­lag, var í 28. sæti yfir stærstu kvóta­eig­endur á Íslandi um vorið 2019. Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram hvernig reynt hefur verið að skera á tengsl þess við Ísland í kjöl­far Namib­íu­máls­ins.
Þorsteinn Már segir ný gögn og vitni til staðar í Seðlabankamálinu
FréttirSamherjamálið

Þor­steinn Már segir ný gögn og vitni til staðar í Seðla­banka­mál­inu

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, segir ný gögn liggja fyrir í skaða­bóta­máli sínu gegn Seðla­bank­anum. Áfrýjun Seðla­banka Íslands í máli hans var tekin til með­ferðar í Lands­rétti dag en for­stjór­inn hafði betur í hér­aði. „Ég held að þú hljótir að gera þér grein fyrir því að ég vil ekki tala við þig,“ sagði hann við Stundina í Lands­rétti í dag.
Sakborningur í Namibíumálinu laus gegn 7 milljóna tryggingu
FréttirSamherjamálið

Sak­born­ingur í Namib­íu­mál­inu laus gegn 7 millj­óna trygg­ingu

Ricar­do Gusta­vo, sem set­ið hef­ur í varð­haldi síð­an í nóv­em­ber 2019 vegna Namib­íu­máls Sam­herja, er laus úr haldi gegn trygg­ingu. Hon­um hef­ur þó ver­ið gert að halda sig heima og þarf að sæta ra­f­rænu eft­ir­lits. Ekki er von á að mál hans og fjölda ann­arra sak­born­inga verði tek­ið til efn­is­með­ferð­ar hjá dóm­stólum fyrr en á næsta ári.
Seðlabankinn neitar að afhenda úrskurð um niðurfellingu á kæru Samherja gegn starfsmönnum bankans
FréttirSamherjamálið

Seðla­bank­inn neitar að afhenda úrskurð um nið­ur­fell­ingu á kæru Samherja gegn starfs­mönnum bank­ans

Seðla­banki Íslands vill ekki afhenda úrskurð um nið­ur­fell­ingu kæru­máls Samherja gegn fimm starfs­mönnum bank­ans. Bankinn vísar til þess að málið varði einka­hags­muni starfs­manna bank­ans. Embætti rík­is­sak­sókn­ara skil­aði löngum úrskurði með rök­stuðn­ingi fyrir stað­fest­ingu nið­ur­fell­ingar máls­ins.

Mest lesið undanfarið ár