Fréttamál

Samherjamálið

Greinar

Sagan af „smurningum“ Íslendinga í Nígeríu í ljósi Namibíumáls Samherja
Rannsókn

Sagan af „smurn­ingum“ Íslend­inga í Nígeríu í ljósi Namib­íu­máls Samherja

Sagan um skreið­ar­við­skipti Íslands í Nígeríu kann að eiga þátt í skoð­unum sumra útgerð­ar­manna á Íslandi á Namib­íu­mál­inu þar sem mútur og hvers kyns sporslur tíðk­ist víða í löndum Afríku. Ólafur Björns­son hjá sam­lagi skreið­ar­fram­leið­enda tal­aði fjálg­lega um mútur og „smurn­ingar“ í bók sinni um við­skipti Íslend­inga með skreið til Nígeríu. Íslenskir útgerð­ar­menn, eins og Gunnar Tómasson, vísa til skreið­ar­við­skipt­anna sem ákveð­inni hlið­stæðu Namib­íu­máls Samherja þegar þeir eru spurðir um mat sitt á þessu máli.
Mörg ár liðu þar til ákært var í málum sem líkjast Samherjamálinu í Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Mörg ár liðu þar til ákært var í málum sem líkj­ast Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu

Tvö af þekkt­ustu málum Sví­þjóðar þar sem mútu­greiðslur í öðrum löndum voru rann­sökuð í fimm og átta ár áður en. ákærur voru gefnar út í þeim. Í báðum til­fellum höfðu fyr­ir­tækin við­ur­kennt að hafa mútað áhrifa­mönnum í Úsbekistan og Djibouti. Ólafur Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari segir ómögu­legt að full­yrða hvenær rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu muni ljúka.
Katrín  segist ekki vita hvaða íslensku stjórnmálamenn þrýstu á stjórnvöld í Færeyjum
Fréttir

Katrín seg­ist ekki vita hvaða íslensku stjórn­mála­menn þrýstu á stjórn­völd í Færeyjum

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki vita hvaða þing­menn það voru sem settu þrýst­ing á stjórn­völd í Færeyjum út af breyt­ingum á lögum þar í landi á eign­ar­haldi erlendra aðila í sjáv­ar­út­vegi. Katrín tekur ekki afstöðu til þess hvort það voru mis­tök að gera Kristján Þór Júl­í­us­son að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Hún tekur hins vegar afstöðu gegn aðferðum Samherja gegn Seðla­banka Íslands og RÚV.
Namibíski lögmaðurinn í Samherjamálinu: Tilraun „til að ráða mig af dögum“
FréttirSamherjamálið

Namibíski lög­mað­ur­inn í Sam­herj­a­mál­inu: Tilraun „til að ráða mig af dögum“

Namibíski lög­mað­ur­inn Marén de Klerk býr að sögn yfir upp­lýs­ingum sem sýna að for­seti Namibíu hafi skipu­lagt greiðslur frá fyr­ir­tækjum eins og Samherja til Swapo-flokks­ins til að flokk­ur­inn gæti haldið völdum. Hann segir að líf sitt sé í rúst vegna mis­taka og að hann vilji hjálpa til við rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins.
Gögn sýna útsendara Samherja ræða við mútuþega um að hylja peningaslóðina
FréttirSamherjamálið

Gögn sýna útsend­ara Samherja ræða við mútu­þega um að hylja pen­inga­slóð­ina

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, ásak­aði upp­ljóstr­ar­ann í Namibíu og ávítti fjöl­miðla fyrir umfjöllun um mútu­mál félags­ins í Namibíu. Nú sýna ný gögn að rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn Jón Óttar Ólafsson sem Þor­steinn kvaðst hafa sent til Namibíu átti í sam­skiptum við mútu­þeg­ann James Hatuikulipi sum­arið 2019 um hvernig tek­ist hefði að hylja slóð pen­inga­greiðsln­anna.
Dómurinn í máli Þorsteins Más getur haft  fordæmisgildi í 18 sambærilegum málum
FréttirSamherjamálið

Dómurinn í máli Þor­steins Más getur haft for­dæm­is­gildi í 18 sam­bæri­legum málum

Seðla­banki Íslands aft­ur­kall­aði alls 19 ákvarð­anir um sektir vegna brota á gjald­eyr­is­hafta­lög­unum. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur nú gert Seðla­banka Íslands að greiða Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, bætur vegna kostn­aðar hans við að sækja rétt sinn gagn­vart bank­anum. Dómurinn getur verið for­dæm­is­gef­andi fyrir aðra sem greiddu sektir.
Hljóðritaði samtal við fyrrverandi starfsmann Seðlabankans og skrifaði skýrslu um það fyrir Samherja
RannsóknSamherjaskjölin

Hljóð­rit­aði sam­tal við fyrr­ver­andi starfs­mann Seðla­bank­ans og skrif­aði skýrslu um það fyrir Samherja

Jón Óttar Ólafsson, fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður og ráð­gjafi Samherja, fékk upp­lýs­ingar frá tveimur fyrr­ver­andi starfs­mönnum Seðla­banka Íslands um rann­sókn bank­ans á Samherja. Annar starfs­mað­ur­inn vissi ekki að Jón Óttar væri að vinna fyrir Samherja og vissi ekki að sam­talið við hann væri hljóð­ritað. Seðla­banka­mál Samherja hefur opin­berað nýjan verueika á Íslandi þar sem stór­fyr­ir­tæki beitir áður óþekktum aðferðum í bar­áttu sinni gegn opin­berum stofn­unum og fjöl­miðlum.

Mest lesið undanfarið ár