Rannsókn Sanherja á Seðla­bank­anum Samherji hóf eigin rann­sókn á rann­sókn Seðla­banka Íslands á við­skiptum félags­ins fljót­lega eftir hús­leit­ina hjá fyr­ir­tæk­inu í mars 2012. Ráðgjafi Samherja leit­aði meðal ann­ars til tveggja fyrr­ver­andi starfs­manna bank­ans eftir upp­lýs­ingum. Þor­steinn Már Bald­vins­son sést hér í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í vik­unni ásamt ráð­gjaf­anum. Jóni Óttari Ólafs­syni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hljóðritaði samtal við fyrrverandi starfsmann Seðlabankans og skrifaði skýrslu um það fyrir Samherja

Jón Óttar Ólafsson, fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður og ráð­gjafi Samherja, fékk upp­lýs­ingar frá tveimur fyrr­ver­andi starfs­mönnum Seðla­banka Íslands um rann­sókn bank­ans á Samherja. Annar starfs­mað­ur­inn vissi ekki að Jón Óttar væri að vinna fyrir Samherja og vissi ekki að sam­talið við hann væri hljóð­ritað. Seðla­banka­mál Samherja hefur opin­berað nýjan verueika á Íslandi þar sem stór­fyr­ir­tæki beitir áður óþekktum aðferðum í bar­áttu sinni gegn opin­berum stofn­unum og fjöl­miðlum.

Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður, hljóð­rit­aði sam­tal við fyrr­ver­andi starfs­mann gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands gegn vit­und hans og skrif­aði skýrslu upp úr sam­tal­inu fyrir útgerð­ar­fé­lagið. Samtalið átti sér stað í nóv­em­ber árið 2012 eftir að Seðla­banki Íslands hafði hafið rann­sókn á útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja.

Þessi fyrr­ver­andi starfs­maður Seðla­bank­ans heitir Jónas Helgason og var hann helsti rann­sak­andi Seðla­bank­ans í Sam­herj­a­mál­inu á vor­mán­uðum 2012. Jónas tók meðal ann­ars þátt í hús­leitum Seðla­bank­ans í Sam­herj­a­mál­inu í mars árið 2012, en hann hafði þar á undan unnið í lög­regl­unni í 22 ár, meðal ann­ars með Jóni Óttari. Jónas lét af störfum í Seðla­bank­anum sex mán­uðum áður en hann átti umrætt sam­tal við Jón Óttar. 

„Ég er bara dálítið sleg­inn yfir þessu“

Jónas segir í sam­tali við Stundina að hann hafi ekki vitað að Jón Óttar, og sam­starfs­maður hans og með­eig­andi að ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu PPP sf., Guð­mundur Haukur Gunn­ars­son, væru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár